Stúdentablaðið - 31.10.1959, Qupperneq 6
€
Stúdentablað
Norrænt málanámskeið
Fyrir nokkrum árum varð
það að samkomulagi milli stúd-
entasambanda á Norðurlöndum,
að námskeið í tungum þeirra
og bókmenntum skyldu haldin
á hverju ári, til skiptis í lönd-
unum. Námskeið þessi hafa
verið haldin í Danmörku, Nor-
egi og Svíþjóð og er því röðin
kominn að íslandi. Mikill áhugi
var ríkjandi á hinum Norður-
löndunum fyrir því að imnt
yrði að halda námskeiðið hér,
sem fyrst. Tókst að yfirvinna
þá erfiðleika, sem svo stór-
brotnu fyrirtæki eru samfara,
og hófst námskeiðið hér þ. 11.
sept. og mun standa til 5. nóv.
Þátttakendur eru 16 talsins, 7
frá Danmörku, 1 frá Finnlandi,
1 frá Noregi og 7 frá Svíþjóð.
Kennslu annast þeir prófessor-
arnir dr. Hreinn Benediktsson,
íslenzkt mál, dr. Einar Ólafur
Sveinsson, fornbókmenntir og
dr. Steingrímur J. Þorsteinsson
síðari tíma bókmenntir. Auk
þess hafa svo fræðimenn á
ýmsum sviðum flutt fyrirlestra
um margvísleg efni önnur.
Hinir norrænu stúdentar
hafa ferðast víða um, skoðað
Reykjavík undir leiðsögn Árna
Óla ritstjóra, heimsótt forseta-
hjónin á Bessastöðum o. m. fl.
Ríkir almenn ánægja meðal
þátttakenda námskeiðsins, með
dvölina hér á landi.
Kvöldvökur
Svo sem kunnugt er og
STÚDENTABLAÐ hefur áður
skýrt frá, gekkst stúdenta-
ráð fyrir kvöldvökum á Gamla
Garði í fyrra vetur, þar sem ó-
dýrustu veitingar bæjarins voru
á boðstólum. Þessar kvöldvök-
ur féllu í góðan jarðveg meðal
þeirra, sem þar létu sjá sig, en
voru alltof illa sóttar. f vetur
mun þessu verða haldið áfram,
tvisvar í viku, þriðjudags- og
föstudagskvöld kl. 8.30—11.30
Ætlunin er að lífga svolítið upp
á þessi kaffikvöld, með því að
fá ýmsa kunna menn úr hópi
stúdenta eða aðra, til að ræða
þar ýmis efni, t.d. hefur Tómas
Guðmundsson skáld, mætt á
einni slíkri kvöldvöku í vetur
og ennfremur hefur Bragi
Kristjónsson stud. jur. sagt þar
frá Moskvuför. Er þess að
vænta að stúdentar reki nú af
sér slyðruorðið á þessu sviði,
sem öðrum og fjölmenni á
kaffikvöldin á Gamla Garði í
vetur.
Vettvangur Stúdentaráðs
hefur undanfarin ár komið
út, sem ársskýrsla formanns,
en nú hefur verið ákveðið að
gefa hann út fjölritaðann, eins
oft og ástæða þykir til, svo að
stúdentar geti sem bezt fylgzt
með störfum stúdentaráðs.
Auknir styrkir til
stúdenta
Styrkur til stúdenta á fjár-
lögum var hækkaður í níu
hundruð þúsund kr. og þegar
fyrir lágu niðurstöður af störf-
um nefndar þeirrar, er stúd-
entaráð kaus, til að fjalla um
hag læknanema, var framlag
þetta hækkað í eina milljón.
Menntamálaráðuneytið til-
kynnti í vor, að það hefði á-
kveðið að veita fimm styrki,
20.000 kr. á ári í fimm ár til
stúdenta, og hafa þeir allir ver-
ið veittir.
Kynning á landhelgismálinu.
Stúdentaráð hefur sent um
80 aðilum hvíta bók ríkisstjórn-
arinnar um landhelgismálið, og
er kunnugt að ýmsir þessara
aðila hafa kynnt sér málið af
gaumgæfni.
Formannaráðstefna
norrænna stúdentasambanda
var haldin í Uppsölum í sept.
Sóttu hana af hálfu íslenzkra
stúdenta Benedikt Blöndal og
Jón Jakobsson. Rætt var um
ýmis hagsmunamál stúdenta.
Vettv angur