Stúdentablaðið - 31.10.1959, Page 9
StúdentablaS
9
notið prýðilegustu balletlistar.
Heimsótt „Moscow Power Ins-
titute.“ Varð það all söguleg
ferð, því túlkarnir gleymdust
og þátttakendur urðu því að
hafa sama sem þögn og þolin-
mæði og horfa á velviljaðar
handahreyfingar sovézkra leið-
sögumanna, sem bentu þeim á
nytsöm tæki og tól. I þeirri
ferð gafst líka kostur þess að
kynnast sovézkri rigningu, því
rölt var með hópinn góða stund
í mikilli rigningu milli húsa. Á
einum stað í þessum merka
leiðangri var öllum þátttakend-
um smalað í einn sal. Síðan var
lileypt í réttina álíka mörgum
covézkum stúdentum. Þar var
setið í 3 klukkutíma og rabb-
að um frið og vináttu, hve
hættuleg kiarnorkan væri og
hve gott og fagurt marknr.ð
æðri menntur.ar í Sovétríkjun-
um væri: „Always with the
people. Together with the ent-
ire Soviet psople they are parti-
cipating in the buildmg of
communism, combiuing study
with productove labour. Stud-
ents not only attend lectures
but share in designing the pro-
jects of the seven-year plan, in
housing construction and in
ploughing up virgin land,“
útskýrði ábyrgðarfullur Rússi
fyrir hinum fáfróða íslenzka
þátttakanda, sem fannst það
svo sem indælt og gott í þvísa
landi. Að endaðri setunni var
haldið til sýningargarða hinna
15 sovézku ríkja. Einskonar
undra- og ódáinsgarðar, þar
sem sýnt er allt hið fullkomn-
asta í framleiðslu- og atvinnu-
háttum og vísindum. Þar var
rafmagnstækni og geimkönnun,
flugvéla- og þotusmíði, boðið á
ótal veitingahús, fjölbreytni
danska Tívolís í skemmtitækj-
um, syndandi svanir á vötnum,
merkjadrengir og pylsuvagnar
og litlir sjálfrennungar, eins og
á Briisselsýningunni. Semsagt,
hliðstæða flestra hluta í munaði
og menningu Vestursins á
stóru plássi í Moskvuborg, en
aðeins til sparinota fyrir bænd-
ur af landsbyggðinni, verka-
menn í fríi og forvitna ferða-
langa. Þátttakemdur komu í
skála Armeníu og var borið
ljúffengt konjak, heimsótt „El-
ektrónía", fullkomnasta sam-
safn rafmagnstækni. Einnig
komið í eldflaugaskála og sýnd
þróun smíðarinnar; skoðuð nýj-
asta þotan, sem komið er fyrir
á miklu torgi sem næst í miðj-
um görðunum. Þá var boðið í
leikhús háskólans. Þar var
indæl og hugljúf skemmtan,
einsöngur djúpra bassa og
mjúkróma kvenna, spænskur
dans, hrífandi Lizt í túlkun
ungs snillings, handhafa verð-
launa frá síðustu listahátíð í
Moskvuborg. Óviðjafnanlegur
ballett Ribakovu nokkurrar,
sem talin er líklegasti erfingi
Ulanovu prímadonnu. Boltakast
eins og í bezta sirkus, leikþátt-
ur um ungar ástir og vagnhjól,
f jarrænn kínverskur dans og
rússneskur vísnasöngur. Á eftir
var efnt til dansleiks í enn ein-
um salnum — svokallað „get-
together with Moscow stud-
ents“ —; vestrænir slagarar í
hávegum og skemmtan ágæt,
m.a. héldu 40 enskir stúdentar,
sem þar voru einnig staddir,
uppi miklum hringdansi og
fylltist fólk hollum galsa. Einn
daginn átti að fara með hjörð-
ina í ,,Atómstöð“ Sovétríkj-
anna, en á síðustu stundu var
hætt við þá ferð. Var því borið
við, að allir „verkamennirnir og
vísindamennirnir sætu á ráð-
stefnu og því miður yrði því
ekki við komið.“ Var gerður
mjög slæmur rómur að þeim
málalokum meðal þátttakenda.
I staðinn var farið með hala-
rófuna í Kreml og grafhýsi fé-
laganna Stalins og Lenins,
skoðaðar gamlar undarlegar
kirkjur, varðveittar frábæra vel
að skipan Lenins sáluga, sem
viðstödd vitni hins dauða tíma
til samanburðar og eftirbreytni
hinu kirkju- og trúlausa Sovéti.
Einnig könnuð keisarahöll, íbor-
Nokkrir þátttakenda staddir i landafræSideild háskólans
að kynna sér kortagerS.