Stúdentablaðið - 31.10.1959, Qupperneq 10
10
StúdentablaS
ið safn ónauðsynlegra minja
gamals kúgara. Fleira margt
var farið með þátttakendur, en
rúmið leyfir vart frekari frá-
sagnir.
Konur herskyldar?
Umræður voru margvísleg-
legar og fluttur sægur af gagn-
merkum erindum. Rætt var um
fyrirbærið „Háskólinn og þjóð-
félagið", en þær snerust mest
uppí innbyrðis deilur þátttak-
enda, aðallega nýlendna og
heimsvelda. Þá voru umræður
um rannsóknarstörf stúdenta,
svimandi upphæðir, mikill pró-
sentureikningur í aukningu til-
rauna og sérlega aukningu við-
lokinna tilrauna. Mikill rúblu-
reikningur. Skýrt frá vand-
kvæðum verkamanna í Lenin-
grad, sem áttu við einhverja
flutningaörðugleika að etja.
Stúdentar brugðu við skjótt og
leystu úr vandanum með ein-
hverri gagnmerkri uppfinningu.
Þannig tókst þeim „to bring
their knowledge closer to life“
og gekk það slagorð sem rauð-
ur þráður gegnum umræður.
„Higher education in the U. S.
S. R. is absolutely free,“ sagði
góðlátur formaður Stúdenta-
rannsóknaráðsins (sbr. það,
sem áður hafði komið fram: „Is
bound by thousands of
threads. . .“)
Þá voru íþróttaumræður og
mikil áherzla lögð á afrek í
sentímetramálum og sekúndu-
brotum. Ekki fékkst gefið upp,
þrátt fyrir ítrekaðar fyrir-
spumir, hver væru laun
sovézkra íþróttamanna. Var
borið við vankunnáttu. Um þau
vissi enginn hinna annars
margvísu svaramanna nám-
skeiðsins. Sem næst 600.000
stúdentar hinsvegar sagðir í
íþróttafélögum sovézkra há-
okóla. Stúdentar eiga heims-
meistara kvenna í skák. Auk
þess eiga þeir 6 heimsmet í
frjálsum íþróttum, 9 Evrópu-
met og 15 sovézk met í sömu
greinum.
Svo var lengi rætt um stúd-
entasamtök í Sovétríkjunum.
Forseti „Verkamannasambands
stúdenta,“ tróð upp og hélt
langa tölu um nytsemd samtak-
anna. Öll stúdentasamtök í So-
vétríkjunum eru „Trade Uni-
ons“, sem auðvitað kjósa sjálf
stjórnendur sína og ráða sér
að öllu leyti sjálf, þótt sérhver
háskóli, og þá væntanlega líka
stúdentar, séu „bound by thou-
sands of threads....“ o.s frv.
Lýst ítarlega menningarfélög-
um vísinda- og tæknifélögum
og áðumefndum íþróttafélög-
um. Noregur spurði, hve há
hlutfallstala stúdenta væri í
kommúnistaflokknum. Því
fékkst aldrei svarað beint, en
þegar spurningin var ítrekuð,
var sagt, að því sem næst 8%
stúdenta væru í einhverjum
tengslum við flokkinn. Hinsveg-
ar var sagt, að til væru sér-
leg samtök í hverjum háskóla
og öllum rannsóknarstofnunum,
sem nefnd eru „Komsomol, All-
Union Lenin Young Communist
League“ og tilheyrðu flestir
sovézkir stúdentar þeim sam-
tökum, en engum var sagt
skylt að vera þar félagi. Held-
ur fékkst því aldrei beint svar-
að, hver væri hlutfallstala stúd-
enta í samtökum þessum, en
sagt, að það væri mikill meiri-
hluti þeirra og skal ekki dregíð
í efa. Háskólastúdentar eru
herskyldir. eins og aðrir „borg-
arar“ Sovétríkjanna. Einn rúss-
neskur ræðumaður sagði, að
stúlkur, sem stunduðu nám við
háskóla, væru einnig herskyld-
ar. Ekki hafði hann fyrr lokið
máli sínu, er hann var tekinn á
eintal af stjórnanda námskeiðs-
ins. Nokkru síðar sté hann aft-
ur í stólinn, brosandi og fyrir-
gefanlegur og lýsti það argasta
misminni og ranghermi, að
stúlkur eða konur væru her-
skyldar. Skyldu áheyrendur
hafa það, sem sannara reynd-
ist og því vildi hann leiðrétta
þessa hlægilegu vitleysu. Hlógu
þátttakendur ákaft að vand-
ræðum mannsins og klöppuðu
honum mikið lof fyrir „leiðrétt-
ingu“ þessa.
Friðurinn tryggður.
Að enduðu námskeiði þessu
var þátttakendum haldið hóf í
prófessoramatsal háskólans.
Voru þar dýrar veitingar og
vín og mungát þeirra Sovét-
búa. Sátu menn lengi undir
borðum við mikil ræðuhöld,
gjafir voru afhentar, útrýmt á
svipstundu allra varhygð og
tortryggni þjóða í milli og allar
atóm- og vetnisbombur eyði-
iagðar. Allir sem töluðu eða
færðu gjafir, fengu kossa á
báðar kinnar frá atvinnustúd-
entinum Bugrov, forseta stúd-
entasamtakanna og líka frá
kvinnu einni, sem sérlega virt-
ist gerð út í þessu göfuga
skyni.
Daginn eftir héldu flestir
þátttakenda heimleiðis, þökk-
uðu gestgjöfum sínum sæmileg-
asta beina og voru allir nokkru
nær um „Æðri menntun í
Sovétríkjunum.11
STtJDENTARLAÐ
Vtg.: Stúdentaráð Háskóla ísl.
Ritn.: Styrmir Gunnarsson stud.
jur., ritstjóri. Þór Magnússon
stud. mag., Haraldur Henrýs-
son, stud. jur. (Pr. Stórh.pr.)