Stúdentablaðið - 01.05.1970, Qupperneq 1
stúdenta
biad
APrIl — MAÍ
M
1970
Útgefandi: Stúdentafélag Háskóla íslands.
Ritnefnd: Ólafur Thóroddsen,
ritstj. og ábm.,
Jónas Ragnarsson,
Sigurður Sigurjónsson.
Filmusetning, offsetprentun:
Lithoprent h.f.
FRÁ RITNEFND:
HITT í MARK
Mikil áherzla hefur verið lögð á það hin tvö síð-
ustu ár að kynna stöðu og þarfir Háskólans fyrir
hinum almenna borgara. Bent hefur verið á, hve
mjög Háskólann skorti fjármagn til uppbygginga
og eðlilegrar þróunar. Einkum hafa stúdentar
gengið fram fyrir skjöldu í þeirri viðleitni að vekja
almenning til umhugsunar, með kynningarritum,
sem dreift hefur verið um land allt með góðum
árangri. En áhrifamesta framlagið til þessa af hálfu
stúdenta er án efa Háskóladagurinn, sem haldinn
var hinn 8. marz. Þá kom greinilega í ljós, að fjöldi
fólks hefur fullan hug á að styrkja Háskólann og
kynnast því, sem innan veggja hans fer fram. Sú
kenning að Háskólinn sé einhver einkastofnun
„akademiskra“ borgara beið alvarlegt skipbrot,
þegar fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins þekktist
heimboð stúdenta á Háskóladag.
HLUTUR HAPPDRÆTTISINS
Umræddan dag gafst fólki kostur á að sjá, hvað
unnizt hefur í uppbyggingu Háskólans. En Há-
skólinn á eftir að breytasU Á næstu fjórum árum
verður stigið stórt framfaraskref í húsnæðismálum
skólans. Ráðizt verður í byggingu lagadeildarhúss,
verkfræðideildarhúss og að líkindum einnig lækna-
deildarhúss. Má gera ráð fyrir að heildar kostnað-
arverð húsanna verði a.m.k. 300 milljónir króna.
Háskólinn verður sjálfur að standa straum af
þessum kostnaði. Hið opinbera annast rekstur
skólans, en veitir nú auk þess 30 milljónir opin-
berlega til byggingaframkvæmda. Aðal fjárplógur
skólans er Happdrætti Háskólans. Um síðustu
áramót voru í sjóði þess tæpar 40 milljónir, og hin
næstu ár er áætlað að hagnaður verði um 40
milljónir árlega. Á þennan hátt er unnt að spanna
fjárþörf skólans að mestu.
Tölur þessar sýna glögglega, hversu mjög fram-
farir og nýbyggingar byggjast á hagkvæmum
rekstri Happdrættisins. Margir styrkja Happdrætt-
ið einungis vegna málefnisins, en ekki gróða-
vonarinnar, sem kyndir þó víða undir. Stúdentar
ættu ekki að láta sitt eftir liggja. Miði er mögu-
leiki, þegar allt kemur til alls.S.
SENDUM
STÚDENTUM
KVEÐJUR:
AKURFELL S.F.,
Umboös- og heildverzlun,
Skipholti 5, sími 24966.
ALMENNA BYGGIIMGAFÉLAGIÐ H.F.,
Suðurlandsbraut 32, sími 38590.
ÁLMUR S.F., smíðastofa,
Ármúla'10, sími 81315.
ANISIA ÞÓRÐARDÓTTIR H.F.,
prjónastofa, Hallarmúla 1, sími 83172.
NEON, rafljósagerð,
Ármúla/Hallarmúla, sími 33636.
KORKIÐJAN H.F.,
Skúlagötu 57, sími 14231 - 23200.
KVISTUR, trésmiðja,
Súðarvogi 42.
MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR,
Laugavegi 164, sími 11125.
I B M,
Klapparstíg, sími 25120.
HAUKAR H.F.,
Grandagarði, símar 16485 - 155579.
HEKLA H.F.,
Laugavegi 170, sími 21240.
HÍBÝLAPRÝÐI, húsgagnaverzlun,
Hallarmúla, sími 38177.