Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 5

Stúdentablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 5
STÚDENTABLAÐIÐ 5 Það var fundað, kosið og drukkið Með hækkandi sól (og fækkandi skóladögum) í köldum og grimm- um marsmánuði skolaði hinu vest- ræna lýðræði á fjörur stúdenta við Háskóla íslands. Rétt eins og í fyrra og hitteðfyrra (já og flest ár þar á undan) bauðst þessum villráfandi sauðum það einstæða tækifæri að fá að kjósa. Kosningavélar fylk- inganna voru ræstar nokkru fyrir mánaðamótin febrúar-mars og þegar nær leið kjördegi var búið að koma áróðursblöðum og dreifi- bréfurn inn í hvern krók og kima á háskólalóðinni. Eftir langa og stranga fundi og stefnuskrárráðstefnur fylkinganna rann kjördagurinn 15. mars upp. Kvöldið áður var ágætlega heppn- aður framboðsfundur í hátíðarsal háskólans. Þar var hvert sæti skipað þegar mest var og auk þess fólk á randi um kaffistofu og ganga byggingarinnar. Að kvöldi kjördags settust vöku- menn að í Óðali en umbar og vinstri menn héldu sinn fagnað í Stúdentakjallaranum. Sátu menn nú og drukku rauðvínið sitt, bíð- andi eftir úrslitum. Talningu var lokið milli klukkan átta og níu og hafa vökumenn að vonum glaðst nokkuð við að heyra úrslit, en öðru mafi gegndi um gesti Stúdenta- kjallarans. Var nú síður uppi á mönnum tippið en verið hafði —þó ekki hafi þunglyndi bitnað í nokkru á við- skiptum kjallarans nema síður sé. Með hjálp Bakkusar og píanóleik- ara sem var gestkomandi í kjallar- anurn hófst brátt gleði hin mesta og söngur. Segja illar tungur að í gieði sinni og bróðurkærleik hafi umbar og vinstri menn samið um hvern meirihlutann á fætur öðrum. Stúd- entakjallarinn lokaði klukkan tvö en eitthvað fréttist af samkomu- gestum á randi um stúdentagarð- ana fram undir dagmál. Einhverjum umbum var minna um samkomuna í kjallaranum gef- ið og tóku boði vökumanna sem auglýst höfðu Óðalshátíð sína öll- um opna. Þar var samankominn múgur og margmenni að sögn við- staddra og gleði mikil. Óðali var lokað um óttubil og fór þá harðasti kjarni vökumanna í heimili félags- ins hvar gleði stóð frm undir mörgun. Stúdentar Munið landssöfnun Nýrra sjónarmiða til styrktar álverinu. Bauk hefur verið komið fyrir í anddyri félagsstofnunar Vísnaþáttur vinstrimanna Það heyrir nú frekar til undan- teking að menn komi skoðunum sínum á framfærí í bundnu máli, — en gerðist þó, á annars frekar þurr- um framboðsfundi. Voru þar vinstri menn að verki og við gefum þeim orðið. Eftir að hafa hlýtt á munnræpu eins vökustaursins var ekki annað við hæfi en að hann fengi að heyra álit okkar vinstri manna á orðum þeirn: Bull og blaður bölvað þvaður það trúir þessu ekki nokkur maður. Ekki virtust þeir hafa skilið sneið- ina, — enda erfitt unt vik á þeim bænum. Tóku þeir til við að rnont- ast af afrekum sínum er þeirn þóttu/þótti bera tvídæmalaust merki um ágæti sitt. Enn reyndum við að siða greyin til með smávísu: Hægrisinnar og heimskir menn hátt sér hreykja á stundum þá viti bornir vinstri menn vitkast á þeim fundum. Svo sagði einhver (ath. það var ekki vinstri maður!) að kominn væri tími til að við vitkumst — en það vita allir vitibornir menn að aldrei er of seint að læra. En sumir hafa víst gefist upp fyrir aldurs sakir. Að lokum kveðja okkar vinstri manna til allra hægri manna er á fundinum voru, (ein skrumskæld og stolin): Á þá ég þeirn augum lít að iðki hætti fífla sem vinstri maður víst ég hlýt þá vökukjafta að stífla. Með baráttukveðju, Vinstrimenn.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.