Fálkinn - 17.08.1929, Qupperneq 1
KAPPREIÐAR Á BIFHJÓLUM
-s
Veðreiðar hafa löngum verið ein uppáhaldsskemtun fólks í stórborgunum að sumarlagi, og það hefir þótl ,,fínt“ að eiga
góða ueðhlaupahesta. En síðan tnfreiðar og hifhjól komu lit sögnnnar hefir stórum minkað heslahald í stórborgunum,
þuí flestum þykir þægilegra og ódýrara að ciga bifreið. Eigi leið á töngu áður en menn fóru að efna lil kappaksturs á þess-
um tækjum og eru þesskonar kappmói nú orðin að kalla daglegur uiðburður i flestum stórborgum, og þeir menn sem
skara fram úr á mólunum eftirlætisgoð fólksins. Lifa sumir þessara ökugikkja á þuí að ferðast borg úr borg og alca á bif-
reið eða bifhjóli. Á myndunum hjer að ofan má sjá kappakstursmenn á slíkum mótum. Er mikill uandi að sitja bifhjólin,
þuí snarpar bugður eru á kappakstursbrautunum. Það kemur eigi ósjaldan fyrir, að slys uerða á þessurn rnótum, ýmist
renna hjólin út undan sjer og keppandinn dettur, eða að tueir keppendar eða fleiri rekast á.