Fálkinn


Fálkinn - 16.11.1929, Blaðsíða 11

Fálkinn - 16.11.1929, Blaðsíða 11
P A L K I N N 11 Til þess eru vítin að varast þau. Þið lesið oft í blöðunum um alls- konar slys, sem bera að höndum. Hjer á landi eru druknanir tíðustu slysin, enda hefir tiltölulega milcill hluti þjóðarinnar atvinnu af sjó- mensku. Stundum lesið þið um skip- strönd og druknanir. Við mörg skip- strönd ber það við, að sumir af á- höfninni bjargast á sundi, ef skipið strandar nærri landi. Líka lesið þið um menn, sem verða úti, eða fólk sem verður undir bifrciðum og bein- brotnar eða bíður bana. Stundum geta slysin orsakast af rafmagninu, af þvi að leiðslurnar eru ekki í lagi, og stundum hljótast sprengingar og eldsvoðar af gasi. Og líka má minna á slysin, sem hljótast af þvi að menn fara óvarlega með skotvopn. Þau eru ekki fátíð. <2 Vertu varkár á götunni. Þegar þú gengur á strætum, þar sem nokkur umferð er, áttu jafnan að ganga á gangstjettinni, eða utar- lega á götunni, ef engin gangstjett er. Það er mesti ósiður að ganga á miðri götunni, þar sem vagnarnir ciga að aka. Og þurfir þú að fara yfir götuna þá verðurðu að vera varkár. Fyrst átt þú að athuga hvort nokkur vagn sje nálægur og ef svo er, þá bið- ur þú þangað til hann er kominn framhjá. Að skjótast fyrir framan vagn á síðustu stundu er ósiður, sem getur kostað þig lífið. Segjum að þjer skriki fótur og þú dettir rjett fyrir framan vagninn. Þá átt þú á hættu að hann geti ekki staðnæmst nógu fljótt heldur aki yfir þig. Ekki aö vega salt á stólum. Margir unglingar liafa gaman af því að vega salt á stólnum sínum, eins og þið sjáið drenginn gera á myndinni. Þótt þetta virðist meinlaust gaman þá getur það samt orðið að slysi. Það hefir þráfaldlega komið íyrir, að börn liafa stórmeitt sig á þessu, ef stóllinn hefir dottið aftur yfir sig. Og þar að auki skemmir þetta stólana. Stóllinn er með fjörum fótum og þeir eru gerðir til þess að þeir sjeu notaðir. Munið það. Margir krakkar hafa gaman af að leika sjer að hnífum, tálga spitu eða þessháttar. Og stundum er krökk- um gefinn hnífur áður en þau kunna með liann að fara. Þegar þið fáið fyrsta hnífinn, þá verðið þið að biðja fullorðna fólkið að kenna ykkur livernig þið eigið að nota liann. Ann- ars eigið þið víst að skera ykkur eða stinga. Haltu lilaupinu niður. Ungir drengir eiga í raun og veru aldrei að fara með skotvopn. En sjeu þeir lcomnir á þann aldur að þeim megi leyfast að eiga byssu, þá verða þeir að temja sjer ítrustu varkárni. Sumir hafa gaman af þvi að hræða aðra með því að miða á þá óhlaðinni byssu. Þetta er versti ósiður, sem þið aldrei skulið gera ykkur sek i, og meira að segja skuluð þið ávita livern þann, sem þið sjáið gera þetta. Því maður veit aldrei hvað af þessu kann að hljótast. Byssan getur verið hlað- in þó maður lialdi annað, enda eru þess mörg dæmi, að þessi ósiður hef- ir orðið mönnum að bana. Ef þið eigið byssu, þá eigið þið að gera ykkur að reglu, að skilja aldrei við hana lilaðna, hvernig sem stendur á. Þvi ávalt getur einhver komið að og farið að fitla við byssuna og þá er ekki slysið lengi að verða. Þegar þið berið hlaðna byssu, eigið þið altaf að láta hlaupið snúa skáhalt, niður, ef ske kynni að skotið riði af. Tóta fbænka. z < l-l UJ CL SjERKOSTIR Gagnsær rúmgóður blekgeymir. Engin Gumiblaðra. Gerður úr »Bekalite«, hald- góðu efni áður ó- þektu í lindarpenna- iðnaðinum. Algerlega loftþiettur A|s NORSK-ISLANDSK HANDELSKOMPANI TELEGR.ADR. GERM. OSLO. Kaupið það besta. Nankinsföt með þessu alviðurkenda er trygginQ fyrir hald- góðum og velsniðnum slitfötum. Sillirnle oaoaooaaooaaooooooooooao? o o o o o o O UHIUlUltlJii o o o o o o o o o o ö o o o o o o o o o o o o o o o o o o o Silfurplett - borðbúnaður, Kaffistell, Rafmagns- lampar, Burstastell, Ávaxtaskálar, Konfekt- skálar, Blómsturvasar, Kiyddílát, Blykbyttur og margt fleira. Hvergi ódýrara. Laugaveg 5. Simi 436. o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o 0000000000000000000000000 Bruni varð nýlega i stærstu kvik- myndagerð Breta í Wimbledon í London. Brunnu þar kvikmyndir fyrir margar miljónir Itróna, þar á meðal eina eintakið sem til var af nýtekinni mynd, sem kostað hafði um tvær miljónir króna. Verður því að taka myndina aftur. Iialli turninn i Píza er frægur um allan iieim og liklega liefir þessi lurn dregið mestan liluta ferða- mannastraumsins til Píza fremur en nokkuð annað. Nú hefir það komið á daginn, að i enska smábænum Chester- field, sem hægindastólarnir eru kendir við, er kirkjuturn einn sem hallast. Og i ensku ferðamannabæklingunum verður framvegis lýsing á þessum turni og áskorun til allra ferðamanna um að koma til Chesterfield og skoða turninn. Annars eru það margir turn- ar, sem ekki eru nákvæmlega lóðrjett- ir, t. d. kirkjuturninn i Salisbury. En liann hallast aðeins um tvö fet frá lóðrjettri línu. Ung stiilka i Paris vakti nýlega at- hygli á sjer með cinkennilegum hætti. Hún kom inn á veitingastað með hund i bandi. Hundurinn var eins og liundar gei’ast að öðru leyti en því, að rófan á honum var máluð með þrem litum, rauðu, bláu og gulu. Og nú er annarhver hundur i Paris með málaða rófu!

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.