Fálkinn


Fálkinn - 25.01.1930, Síða 11

Fálkinn - 25.01.1930, Síða 11
F A L K I N N 11 Yngstu lesendurnir. Alcirei finst börnunum jafn hress- fndi að leika sjer eins og á vetrum Pegar hvitur snjórinn hefir lagst yfir jandið og ísinn hulið allar tjarnir. '3á er loftið svo hressandi og heil- faemt, ryk er hvergi og kalda loftið leikur um vangana og segir við krakkana, sem úti eru: Nú skuluð þið sPrikla duglega, þvi annars verður ykkur kalt! Þegar svo stendur á er gaman að eiga skauta og sleða eða skíði. Því annars nýtur maður ekki snjósins og svellsins eins og skyldi. Sterkur sleöi. Hf þið eigið ekki sleða, þá getið Pið smíðað hann sjálfir, strákar, ef ])ið eruð nokkurnveginn laghentir. °g ekki er ómögulegt að hann pabbi ykkar vilji hjálpa ykkur eitthvað við smíðina. Hann verður vist að leggja iil efnið hvort sem er, og kærir sig v,st ekki uin, að þið skemmið það. Þyrirmyndi'na sjáið þið hjerna á Piyndinni en stærðinni getið þið ráðið sjálfir. Þið verðið bara. að PÍuna eftir, að velja sterkar spítur 5 sleðann og ekki kvistóttar. Og svo verðið þið að láta gjarðajárn á meið- ;,na. Ef þið hafið góða sleðabrekku °g hæfilegan snjó skal verða nógur skriður á sleoanum. Smæstu böriiin verða líka að fú að vera með. I bæjum, þar sem barnavagnar eru notaðir handa ungbörnum, er það býsna erfitt að koma vögnunuin á- Þ'am í miklum snjó. Þá er miklu hentugra að hafa litinn sleða í stað vagnsins, og slíkan sleða er auðvelt nð búa til. Þú átt kannske litinn sleða fyrir, og þá er ekki annar vandinn en að smíða dálítinn kassa, likan þeim, sem þú sjerð á mynd- inni hjer að ofan, ,og sett á sleðann. Þá hefirðu útbúnað, sem er niiklii hentugri handa honum bróður þín- um eða systur en barnavagninn. Þú verður að haga stærðinni á kassan- um eftir stærð barnsins, sem á að vera i honum, en hafa hann þó nógu stóran, svo hægt sje að hafa í honum nóg af teppum og koddum. búa þjer .það til. Að fáu er eins gaman og að aka fyrir vindi á skautum, og ef vindurinn er nægi- legur, er ]>að alveg ótrúlega mikil ferð, sem liægt er að ná með þessu móti. Þú skalt varast að hafa seglið of stórt því þá ræðurðu ekki við það. Það er hentugra að hafa seglið minna, og geta haft fulla stjórn á þvi. Fyrir 12—14 ára gamla clrengi er mátulegt að hafa seglið 1,35 metra að neðan, fremri brúnina 1,80 m. og afturbrúnina 1,05 m. Að neðan og á fremri brún eru hafðii reirstokk- ar eins og notaðir eru í keyri og milli stokkahna þriðji stokkurinn, dálítið giídari, sem haldið er í. Best er að fésta stokkana saman með leðuról, því þú verður seglið sveigj- anlegra. Að byggja snjóhús. Ef þið eruð orðin leið á skauta- hlaupum og sleðanum þá getið þið haft góða skemtun af að byggja snjó- hús, þar sem þið getið skotist inn og hvílt ykkur þegar þið eruð að leika ykkur úti. Eskimóarnir i Can- ada lifa í svona húsum allan vetur- inn og þegar þeir eru á ferðalagi byggja þeir sjer altaf hús að kveldi og sofa í því um nóttina. Það sama gerði Vilhjálmur Stefánsson land- könnuður, þegar hann var á rann- sóknarferðum sínum í Norður- Canada. Þið veljið ykkur stað, þar sem nóg er af föstum snjó og skerið úr honum kekki, sem eru um 40 x 50 cm. á lengd og breidd og 20 cm. á þykt. Þið getið notað skóflu eða langan bitlauSaii hníf til þess að skera snjóinn. Kekkirnir eru síðan lagðir í kring, þannig að kofinn, eða borgin, verði um 3 metrar í þver- mál. Og svo er haldið áfram, lag eft- tag, eins og þið sjáið á myndinni, og altaf lálið mjókka-eftir þvi sem ofar dregur, alveg eins og borgirnar, sem fyrruni voru notaðar fyrir fjár- luis hjer á landi. Snjóborgin fallgerð. Þegar horgin er komin upp tek- urðu hnífinn eða skófluna og skerð dyr á húsið. Að því loknu tekurðu brjefarusl og kveikir á því inni i kpfanum. Við það hitnar svo, að snjórinn mýkist og þá falla snjó- kekkirnir betur saman en áður og rifurnar hverfa. Loks getur þú fágað kofan að utan með því að fella snjó upp í rifurnar. Og reynist veðrið hagstætt þá getur þú átt snjóborg- ina þína langa lengi. Það er svo heitt í svona kofum, að Eskimóarnir lifa i þeim í grimdarfrosti og liður vel. Og þegar þú verður stór, getur verið að það komi sjer vel fyrir þig einhvterntíma á vetrarlagi að kunna að gera snjóhús til þess að liggja í yfir nóttina. Tóta sgstir. VILTI MAÐURINN HVÍTI Jm daginn ljest maður nokkur í Ástraliu, sem lifað hafði undarlegu lífi. Fyrir mörgum árum var breskur liermaður, William Bucley, dæmdur i útlegð fyrir glæp. Hann flýði á- samt tveim öðrum föngum. Annar þeirra var drepinn á flótanum, hinn var handtekinn, en William komst inn í frumskóginn og faldi sig. Af tilviljun fann villimannaflokkur hann og fluttu svertingjarnir hann með sjer í kofa sína. William var maður óvenju hár vexti en sverttingjarnir lágvaxnir mjög. Nú bjóst William við því að þeir myndu drepa sig og jeta, en það fór á annan veg. Þeir tóku vel á móti honum og gerðu honum alt liið liesta. Og þannig liðu nokk- ur ár, að William lifði lifi svert- ingjanna. Hann stjórnaði þeim i skærum við nábúana, vann jafnan sigur og komst í mikið álit meðal svertingjanna. En William langaði á burt. Og eitt kvöld strauk liann úr herbúðum svertingjanna og komst heilu og höldnu til hvítra nianna. Hann liafði þá dvalið meðal villimanna í 23 ár og hafði gleymt móðurmáli sínu. Bresku yfirvöldin náðuðu hann og gerðu hann að túlk hjá sjer, því hann talaði vel mál villimannanna, en það mál er mjög erfitt. ----x----- Mustafa Kemal hefir skipað svo fyrir, að sjerhver kaupmaður, sem gert hefir sig sekan i hverri þeirri yfirsjón sem varðar við lög, skuli festa upp spjald á búðardyrnar hjá sjer, þar sem ávirðingar kaupmanns- ins eru skrásettar. SKRADDARINN FJEKK PRINSESSUNA. Ivvenskraddarinn Lucien Lelong í París fjekk nýlega tigna brúði með einkennilegu móti. Svo bar við kvöld eitt, að Dmitri fursti af Rússlandi kom inn á vínkrá i C’annes. Hann er mikill á velli, 6 feta hár og herða- breiður með afbrigðum. Gekk hann beint að veitingarborði til tveggja stúlkna, sem þar sátu og velti þeim ofan af stólunum. Stúlkur þessar voru báðar rússneskar prinsessur. Svo tók hann í öxlina á þeim og vippaði þeim út á götu. — Astæðan til þessa tiltækis var sú, að furstan- um þótti staðurinn ekki samboðinn þessum tignu ungfrúm. — Annari prinsessunni varð svo mikið um þetta, að hún hljóp að næsta bekk og settist þar og fór að hágráta. Þá bar þar að Lucien Lelong. Hann settist hjá henni og fór að hugga hana og þáð tókst svo vel, að áður en þau stóðu upp af bekknum voru þau harðtrúlofuð. Og nú er veslings prir.sessan, sem áður átti ekkert til, orðin vel stæð skraddarafrú, sem hefir nóg af öllu og fær dýrindis- failega kjóla hjá manninum sínum hvenær seni hún vill. ANDINN f SÍMANUM Það har við nýlega í Madrid, að rithöfundur einn andaðist. Hafði lít- ið orð farið af honum um æfina. Viku eftir dauða lians er hringt til vinkonu hans einnar, sem var leik- kona. Þykist lnin þekkja rödd hins látna vinar síns í símanum. Biður hann hana um að fara heim til sin og i skrifborðsskúffuna sína, þar muni hún finna handrit að bók, sem hann biður hana að koma á fram- færi. Leikkonan gerði eins og liún var beðin um. Bókin var gefin út, með formála eftir leikkonuna, og er nú mest lesna bókin á Spáni. En fyrir dauða höfundarins hafði eng- inn forleggjari viljað nýta handritið.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.