Fálkinn - 10.05.1930, Page 7
FÍLKINN
Snápur er þegna þarfastur.
Eflir Döðvar frá Hnífsdal.
Hannes á Hóli var einn af helstu
stórlöxum sveitarinnar. Auk þess,
sem hann gegndi opinberum störfum,
''ar hann talinn vel efnaður, a. m. k.
uafði liann mikið i veltunni, og slíkt
er. eins og allir vita, eitthver örugg-
asta vörumerki, sem hœgt er að
klístra á tvífætlinga þessa heims.
Hannes var hestamaður mikill og
feiðmaður, reið eins og fantur, hvern-
sem á stóð, nótt og nýtan dag.
, Stundum fór liann til heimboðs út
1 kaupstaðinn og reiddi þá sparifötin
Undir hendinni, en morguninn eftir
var hann til með að koma heim, ríð-
andi i sparifötunum með reiðfötin
1 iuiakkólunum.
— Þetta gerir ekkert til, sagði liann
Siottandi og sló á lærið. — Öll mín
föt eru reiðföt, livort sem er.
Svo var hann vanur að segja frá
janðalaginu og minnast litilsháttár á
uannlögin.
, — Þessi bannlög, hvæsti liann út
Ur sjer í megnustu fyrirlitningu, —
þau eru allsstaðar til bölvúnar. í
Samla daga, þegar blessað brennivín-
le fláut yfir landið, þurfti maður
®kki að drekka nema nokkur staup
ul að finna á sjer, — en nú, — ja, nú
yerður maður að sitja kófsveittur við
1 ^—5 tíma, og hella þessu Spánarvíni
ufan i sig, áður en maður veit hvort
Það er heídur blávatn eða vín.
, Það er ekki smálítill timi, sem fer
1 Þetta bölvans ekki sen mjatl! Nátt-
urlega gengur það fljótara, ef þáð er
ö'andað, til þriðjunga með brenslu-
sÞritti og vanilladropum, en þá fær
uiaður kveisu af öllu saman á eftir,
Sv° ekki er það betra.
Þannig ]jet hann dæluna ganga uns
honum rann. Ófullur var Hannes
*júrteis og skemtilegur, því að hann
var greindur vel.
_ Nú hafði Hannes tekið Bjössa
rnisson fyrir vinnumann, og það
Saiu meira er, hann var búinn að
,ePpa honum aftur, koma honum í
edagt hjónaband og byggja honmn
JOl'ðina Tind.
j Jeg sá þcnna Bjössa i fyrsta skifti
*yrra, þegar við vorum í útilegu við
YiL^or®. Það var laust eftir hádegið.
*o karlmennirnir liöfðum brugðið
okiUr * sjóiun og vorum að baða
ukur, þegar liann kom fram á klapp-
lrnar.
Góðan daginn, piltar! sagði liann.
Má jeg koma út til ykkar?
sj r~Huðvelkoinið, sögðum við, —
-Ofinn er nógu stór.
rrHvar farið þið út í? spurði hann.
. *ð benlum á steininn, sem við
'augum okkur af.
sj Jössi yar þá ekki lengi að hugsa
jj? Um. Hann liljóp til og stökk út í.
1,-,, . var rúm mannhæð, en hann
_°ni ékki að synda.
Þöi a,nn k°ln nú upp og baðaði út
an I unum, en þegar hann fann eng-
i fr °tn undir fótum, skældi hann sig
hv^i^r1311 1 dauðans angist, og rang-
^udi augunum af skelfingu.
h’abbi! grenjaði hann, um leið
öJiann fór í kaf.
],,r~ ^amma! öskraði hann, þegar
Uev]1 i COI.n J,pp aftur. — Hjálp, jeg
Uiði .ein 1 honum, þegar hann fór
J.p *, annað sinn.
Um U fór,einhver til og draslaði lioii-
betr 'np á stætt vatn. En þá tók ekki
Ur :;V;ið-.5iössi var orðin svo hrædd-
Um J,nien kengbognuðu undir lion-
siterð. hvert íútmál, og liausinn tók
verui3r <tvtui’’ Þótt valnið næði raun-
^ ekki liærra en í geirvörtur.
kyl(,.Au’ Það er alisstaðar botnlaust
iegar /’ tn,’úpaði hann og saup voða-
í]Vo i. ,vetjur. — Botnlaust hyld...
°uist það ekki lengra, því að
það er erfitt að hrópa hástöfum með
munninn fullan af sjó.
Loksins fann liann þó botn, þegar
liann var kominn hjer um bil upp í
fjöru, fann hann þannig að fætur
hans runnu á liálu grjótinu og mað-
urinn lilassaðist þarna niður á vold-
ugasta vöðvaflykki likamans. Þá gat
hann ekki sokkið
En það er ekki alt búið ennþá, því
að rjett þegar hann er að gera þá
gleðilegu uppgötvun, að botninn sje
veruleiki, koma þá ekki stelpurnar
biaðskellandi fram í fjöruna til að
fá sjer bað.
Jeg er viss um, að Bjössa hefði
ekki orðið meira um, þótt liann hefði
verið stunginn með fimm-tommu
nagla í ónefndan stað. Hann stóð á
fætur eiiis og örskot, en mundi sam-
'stundis eftir því, að líann var ekki
með neinskonar sundskýlu, og hlunk-
aðist þá niður aftur í þögulli örvænt-
ingu. Svo tók hann feikna bolbeygju
fram um mjaðmirnar og stakk höfð-
inu niður á milli hnjánna.
— Náttúran öll og eðli manns, sagði
strákurinn forðum við biskupinn.
Bjössi sagði ekki neitt, en það var
auðsjeð að slilct kunni ekki góðri
lukku að stýra, — áð ofbjóða hjarta-
taugunum með svo ofsalegri áreynslu,
— einkum ef þess var gætt, að mað-
urinn var ný sloppinn úr helgreipum
danðans og taugakerfið þar af leið-
andi veikt fyrir.
Þetta sáu líka stúlkurnar,------ og
af því að þær vöru miskunnsamar
og máttu ekkert aumt sjá, ruku þær
sín í livora áttina og björguðú þannig
íifi hans.
Nokkru siðar, þegar við vorum öll
komin upp á þurt land, og Bjössi var
búinn að ná sjer eftir hræðsluna og
lifsháskann, drakk hann með okkur
kaffi og sdgði sögur af sjálfum sjer.
Stúlkurnar fóru að spyrja hann
eitthvað út í dans og samkomur þar,
sem liann átti heima.
— Það er oft dansað í ungmenna-
fjelagshúsinu, sagði hann.
Þær spurðu, hvort liann kynni að
dansa.
Já, liann lijelt það nú. — Jeg fer
bara ekki af gólfinu alla nóttina.
Þær vilja allar dansa við mig, því að
jeg get bæði dansað aftur á bak og
áfram, — og líka í hring.
Þá datt þeim i liug að „slá upp
balli“ fyrir hann.
Leikið var á gamla munnhörpu og
dansinn hófst.
Það var gaihan að liorfa á Bjössa,
þar sem hann hringsólaði um völlinn
með stúlkurnar í fanginu.
Þær voru þka allar svo undurgóð-
ar við hann, brostu framan í hann,
hölluðu sjer upp að honum og horfðu
á hann brennandi augum.
Og Bjössi, sem fann, hvernig hann
töfraði allar þessar stúlkur með
glæsileik sinnar dansandi persónu,
keyrði liöfuðið aftur á lierðar og
hreyfði fæturnar i valdsmannlegri
tign.
Þannig var haldið áfram uns stúlk-
urnar voru orðnar þreyttar og vildu
hætta, en Bjössi fór þá að taka upp
stórgrýti lil að sýna okkur krafta
sína. Því næst kvaddi hann okkur öll
með liandabandi og hljóp austur mó-
ana í logandi spretti.
Það væri synd að segja, að Bjössi
hefði ekki liaft álirif á stúlkurnar.
Þær gátu' bókstáflega í hvorugan
fótinn stigið fyrir ofurmagni tilfinn-
inga, og næstu daga á eftir- smurðu
þær tærnar á sjer með bórvastilini
og joðáburði.
Það var því ekkert óeðlilegt þótt
Bjössi væri aðalunUalsefni okkar um
liríð, og við kölluðum hann aldr ú
annað en Bjössa botnlausa, ef til vi 1
sökum æfintýris lians í botnleysi
hafsins, og ef til vill vegna annars.
Sleppum því, en víkjum aftur að
dánumanninum, Hannesi á Hóli.
Veturinn eftir að þetta gerðist, sem
jeg var að segja frá, bætti Hannes
við sig einni vinnukonu. Baunar er
það ekki frásöguvert, svona út af
fyrir sig, en hjer er vinnukonan
bráðnauðsynleg persóna, — sögunn-
ar vegna.
Bjössi rjeðist og þangað nokkru
siðar og starfaði að gegningum. Þeim
kom dável saman, honum og vinnu-
konunni, en ekki varð þó sjeð, að
neitt væri á milli þeirra, sem kallað
er. Líður nú veturinn fram til vors
og ber ekkert til tíðinda annað en
það, að fólk pískrar eitthvað um
vinnukonuna og dregur sínar ályktan-
ir eins og það er vant.
Svo var það eitt kvöld um vorið,
að Bjössi stóð úti á hlaði og horfði
á húsbónda sinn, er var að komá úr
kaupstaðnum. Bóndi reið í loftinu að
vanda og bar fljótt yfir. Hann liafði
eina tollsvilcna i kollinum og þrjár
spænskar í vösunum. Þegar hann
kom i hlaðið stöklc hann af baki,
skipaði strákhnokka, sem þar var, að
taka hestinn, gekk síðan til Bjössa
og bað hann að koma með sjer inn í
stofu.
Þegar þangað var komið tók hann
tappann úr einni flöskunni og helti
i glas fyrir Bjössa, opnaði því næst
vindlakassa og bauð honum einn af
þessuin fínu með gylta hringnum,
sem annars voru ekki boðnir öðrum
en hreppstjóruin, oddvitum, búfræð-
ingum og kaupmönnum.
— Drektu nú strákur! og reyklu
líka! sagði Hannes. — Mjer líkar vel
við þig. Þú ert duglegur maður og
sterkur eins og naut, eins og naut,
já alveg eins og naut.
— Já, jég hef nú altaf fengið orð
fyrir að vera duglegur, sagði Bjössi
og krepti fingurna utan um glasið.
— En þú ert nú ekki búinn að sjá
mikið af því enn. Þú ætlir að sjá mig
við slátt, þegar jeg er vel upplagður.
— Já, jeg veit að þú ert vikingur
að slá.
Þannig hjeldu þeir áfram að tala
um liæfileika Bjössa til alira verka í
meira en klukkustund, en af þvi að
pappírinn er dýr og blekið kostar
peninga, verður það ekki rakið hjer
nákvæmar.
Yið byrjum þá aftur, þegar Hannes
slær á öxlina á Bjössa og segir:
— Eins og jeg sagði áðan, þá stór-
furðar mig á því, að þú skulir ekki
vera farinn að búa sjálfur fyrir löngu,
— jafn bráðduglegur maður.
— Það er nú ekki svo gott að ná
í jörð, umlaði í Bjössa.
— Jörðl Sagðirðu jörð 1! Ætli það
verði ekki einliver ráð með það. Hver
veit nema jeg geti bygt þjer jörð,
hjer í lireppnum og hana ekki af lak-
ari endanum. Hvað segirðu um Tind?
— Tind! át Bjössi upp. — Það er
víst ágætis jörð. En það er vandi að
sljórna búi. Náttúrlega vantar mig
ekki dugnaðinn.
— Nei, það er einmitt það, sem jeg
er altaf að segja, greip Hannes fram
í. — Þú ert alt of duglegur til að eyða
æfinni í vinnumensku. Trúðu mjer
Björn, þú átt eftir að komast áfram
lijer í sveitinni. Mjer kæmi það ekki
á óvart, þó að þú yrðir til þess að
taka við sveitarstjórninni af mjer að
lokum Þar þarf líka duglega menn.
— Jeg yrði þá að fá mjer ráðs-
konu til að stjórna öllU innanliúss,
sagði Bjössi.
— Það er ekkert gagn i þvi. Þú
verður bara að gifta þig.
— Ciifta mig! .... Hvcrri?
— Eins og það sje ekki nóg til af
konuefnuin handa ungum og mynd-
arlegum bónda, sagði Hannes. — Þú
verður bara að velja cinhverja, sem
dugur er i, eius og í. d. hana Jór-
f
unni, vinnukonuna hjerna. Reyndar
er jeg nú ekki viss um að hún tæki
þjer.
— Ha! sagði Bjössi og tók út úr
sjer vindilinn. — Heldurðu að liún
tæki mjer ekki?
— Já, jeg held það næstum. Hún
getur líka valið úr ógiftum mönnum
hjer um slóðir, stúlkan sú, því bæði
er hún gerfilegasti kvenmaðurinn i
sveitinni og svó er hún prýðilega að
sjcr til munns og handa.
l'f til vill liafa það verið minning-
ar frá dansleiknum á slröndinni forð-
uia, of til vili vínið og vindlarnir, —
eitbvað var það, sem styrkti Bjössa
í þeiri'i trú, að Hannesi skjátlaðist.
-- Kún skyldi taka mjer! sagði
hann og barði í borðið.
— Jeg er hræddur um ekki, svar-
aði liannes stríðinn.
— Viltu veðja? spurði Bjössi.
— Já.
— Um hvað mikið?
— :.00 krónur.
— l á fer jeg að leita að Jórunni,
sagði Bjössi. — Hvar er hún.
-— Nei, vertu bara kyr, sagði
Hannes og setti aðra flösku á borðið
fyrir framan harin. — Sittu nú ró-
legur hjcr, á meðan jeg næ í Jórurini
og bið lmna að finna þig hingað inn.
— Já, það er líklega betra, ansaði
Bjössi.
Svo fór Hannes út úr stofunni.
Að góðri stundu liðinni kom Jór-
u.nn inn. Hún var þreyluleg og tek-
in til augnanna, eins og venja er til
uiri vinnukoiuir, sem verða að stjana
undir húsbæudunum í tíma og ótima.
Bjössi stóð upp og gekk til hennar.
Hnjen voru í óþægilega liku ásig-
komulagi og i sjónum forðum, en af
því að hjer var fast gólf undir fót.um
tókst honum loks að komast í jafn-
vægisstöðu frammi fyrir henni.
— Jæja, Jórunn mín, byrjaði hann
og stak höndunum í buxnavasana, —
Nú er jeg að hugsa um að fara að búa
á Tindi og ætla að biðja þig, nei
— biðja þjer, — biðja þín, ætlaði
jeg að segja, —’nei .. Það var rjett
hjá mjer eins og jeg byrjaði fyrst,
------biðja þig að verða konan min.
Jórurin svaraði ekki strax.
Það er engin hætta á því að við
komu—mst ekki af, hjelt hann áfram.
— Tindur er ágætisjörð og jeg erbráð-
duglegur maður eins og allir segja.
Svo skal jeg halda stóra veislu með
súkkulaði, hangilcjöti, rjómatertu,
vindlum, rúllupylsu, brennivíni,
munnhörpumúsik og dansi. — Viltu
þá giftast mjer?
— Já, svaraði hún, eins og út á
þegju.
— Á! þetta vissi jeg! sagði Bjössi
sigri hrósandi við sjálfan sig um leið
og hann opnaði liurðina og kallaði
fram á ganginn. — Hannes! Hannes!
Hvar ertu maður? Jeg er búinn að
vinna veðmálið!
Hannes kom alt í einu í ljós fyrir
framan hann eins og honum hefði
skotið upp úr gólfinu.
— Uss! ekki svona hátt, Bjössi!
sagði hann. Síðan gekk hann inn og
óskaði þeim til liamingju með lianda-
bandi.
Daginn eftir þeysli Bjössi á reið-
hesti húsbóndans tii kaupstaðarins að
panta hringana.
Viku síðar stóð brúðkaupið að við-
stöddu miklu fjölmenni. Þar var kaffi,
súkulaði, rjómaterta, og allskonar
góðgæti, sem venja er til að hafa tim
hönd í slíkuin veislum. Þarna drukku
menn yfir sig og töluðu yfir sig eins
og gengur, og fóru að smátinast heim
undir morguninn.
Þau Bjössi fluttu nú að Tindi í far-'
dögum og vistuðu til sín lijú, gamia
kerlingu og unglingspilt.
Var nú unnið að þessum vanastörf-
uin í sveitinni, sem allir kannast við,
þangað til um miðjan engjaslátt. Þá
fæddist fyrsta barnið hennar Jórurin-
ar.
Framh, á bls. 15.