Fálkinn


Fálkinn - 10.05.1930, Blaðsíða 8

Fálkinn - 10.05.1930, Blaðsíða 8
FXLKINN S ■y • ;.■'••.';••••••."'. •*W-. i y.. ;••' flgft ; • ' • ■ iSM'. . '. •■ ' ■ '' / !»SSS jÞað bar við í vetur suður í Suður-Afríku, að bóndi nokkur, sem var á ferð meðfram sjónum nálægt þorpinu Iíommetze sá heilan hóp af stórfiskum spriklandi upp í fjöru. Þegar hann kom nær sá hann að þarna höfðu hlaupið á land 120 stórir hvalir og voru sumir í andarslitrunum. Hvalirnir stundu og byltu sjer og duldist bóndanum ekki að þeir voru veikir. Hann reyndi að reka þá, sem neðst voru í flæðarmálinu út í sjó aftur, en þeir voru svo máttfarnir að þeir gátu ekki synt og skol- upust í land aftur og drápust þar. Hvalreki þessi þótti miklum tíðindum sæta, og það því fremur, sem þetta hvalakyn, sem á vísindamáli nefnist Pseudorca crassidens, var talið útdautt. Fólkið í nágrenninu hagnýtti sjer ýmislegt af hvölunum og át ketið, og varð ekki meint við. Þessi atburður staðfestir þá þjóðtrú, að hvalir, sem komnir eru að dauða hlaupi á land til þess að drepast fremur á þurru landi en kafna i sjó. Sá viðburður, sem nú er mest talað um, er barátta Sjálfstæðismanna í lndlandi, gegn hin- um ensku yfirvöldum. Sjálfstæðisflokkurinn, eða Swarajistarnir, sem þeir eru kallaðir á máli Hindúa, hafa meðal annars brotið lög, með því að vinna salt úr sjó, en í Indlandi er einkaleyfi á saltgerð. Ilafa yfirvöldin því tekið fjölda manns fasta fyrir brot á saltlög- tmum, þar á meðal nokkra nánustu fylgismenn Gandhis og son hans. Víða hafa orðið skær- ur milli sjálfstæðismanna og yfirvaldanna og hafa báðir aðilar mist menn. Því þó and- staða sjálfstæðismanna eiga að heita „óvirk", að því leyti, að Gandhi hefir bannað mönn- um sínum að bera vopn, þá hefir brugðið út if þessu.Myndineraf G.oghelstumönnumhans, Mynd þessi er af Koutepoff, hin- um rússneska foringja bolsje- vikaandstæðinga, sem hvarf í vetur. ganga margar sögur og kynlegar um hvarf hans, þar á meðal sú, að það standi i sam- bandi við samninga erlendra olíukonga við Rússa, og að olíu- kongarnir hafi falið hann,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.