Fálkinn - 24.05.1930, Qupperneq 3
FÁLKINN
3
VIIÍUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
v. _ mtsljórar:
*ilh. Finsen og Skúli Skúlason.
*'rarnkvwnulaslj.: Svavar lljaltested.
n A Salskrifstofa:
unnkastræti 3, Reykjavik. Sími 2210.
k)pm virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjötlisgade 14.
BlíifSið kemur út hvern laugardag.
^skriftarverð er kr. 1.70 ú mánuði;
Rr- 5.00 ú ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Mlar áskriftir greiðist fyrirfram.
^u9lýsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Um víða veröld.
----x---
ÓÞÆGILEG UPPGÖTVUN.
Reynið að fylgjast með kæru les-
endur, þvi nú kemur mjög flókin
saga um skilnaðarmál, sem jafpyel
hefir vakið athygli í Ameriku, sem
er þó talin vera land hjónaskilnaðar.
Frank T. Urban heitir maður nokk-
ur, sem vill skilja við konu sína. Hann
er strætisvagnstjóri í Chicago og gift-
ist konu nokkurri, sem sagðist hafa
verið gift einu sinni áður. Urban er 49
ára gamall og þar sem hann hafði
ekki verulega trú á nýtísku konunni,
valdi hann sjer eiginkonu með langt
hár og vel við aldur. Hjet hún frú
Ridley.
Fyrsta árið lifðu þau saman í sóma
og yfirlæti og bar ekki neitt á milli.
En dag nokkurn fjekk Urban brjef
með haminguóskum frá einhverjum
mr. Cradock. Urban hafði aldrei heyrt
á manninn minst, enda kom innihald
FALKON er nafnið á Regnfrakkanum, sem mest riður
sjer til rúms nú.
FALCON frakkinn ber af öðrum Regnfrökkum hvað snið
og vandaðan frágang snertir.
FALCON-frakkinn hefir verið þrautreyndur, og þá sann-
ast, að hann uppfyllir þær ströngustu kröfur, sem gerð-
ar eru til bestu Regnfrakka.
FALCON-frakkinn fæst í mörgum litum og gerðum bæði
fyrir börn, kvenfólk og karlmenn.
FALCON-frakkinn mun ávinna sjer hylli allra hjer á
landi, eins og liann hefir gert i öðrum löndum.
FALCON-frakkinn fæst aðeins lijá okkur.
Skraddaraþankar.
--x--
Öl]um finst það sjálfsagt að mann-
Þýði ekkert að vera að þrá
nað, sem hann aldrei getur fengið,
c? bó eru þcir margir, sem breyta
ins 0g þeir vissu þetta ekki. Því
„ er erfitt að greina milli þess
“’ogulega og ómögulega. Við sjáum,
ö Pað ósamræmi er til í lífinu, að
Umir verða að manni fyrir það, að
nðast hvað eftir annað í það ófram-
'’^^nnlega, en aðrir komast áfram
>.°ð því að gera það gagnstæða.
s l!nnrinn slafar af þvi, að meðfædd
ndli hjálpar öðrum en iðni hin-
um.
En i þroskasögu mannsins eru
’niabil, þar sem iðnin gerir bagga-
nninri. Það er gott og blessað, að
'ra óragur við hið ómögulega, ef mað-
..*nn er góðum gáfum gæddur, en
1 n\ °g nákvæmni eru hættuminni
’ðir til frama, sem altaf koma að
v-.fb og allir virða. Fólkið, sem
öð lJvi ómögulega verður ávalt
rUvisi en allur fjöldinn og sam-
irnist honum illa.
(li, 'ð ómögulega hefir mikið aðdrátt-
i a‘i á ýmsar sálir og ekki altaf
v r sterkustu. Þessvegna er það, að
^ 'lr lilutir, sem ekki eru bygðir
naunverulegum grundvelli, ganga
q 0 Vel. Hið ómögulega, stórfelda
f^ J.^niarkalausa gripur liugmynda-
Ur°* • GJns og nokkurskonar andleg-
0 sv*nú og knýr fólk út i slórræði
„otíjrirt-ki, sem það sjer ekki til
nln"*11 iesnnd af því ómögulega cr
a !ennust: óskin um að vera tvent
rtf siaeU á sama tima, t. d. bragða-
nia^r °g Söfugmenni, — trúin á, að
n, vllr, geti orðið veglyndur maður
er .éheiðarlegum aðferðum. Hún
’njög almenn nú á dögum.
efR ^ei.r eru °I ^arr’ sem vinna
l£. 1r fyrirfram settri áætlun. Þeir
sjái ,rekasi áfram af tilviljuninni og
bá (-*r ^ærr á að krækja i hagnað
að j nga Þeir honum á sig, án þess
ban 1Ug^a um hvernig þeir náðu í
re]j ' yn það er hættulegt, að láta
hann P^nnig með straumnum, þvi
gönJ re^ur niann stundum út í ó-
uurnar og torfærurnar.
brjefsins honum nokkuð kynlega fyr-
ir sjónir, því Cardoock segir i brjef-
inu, að hann voni að Urbani takist,
liað sem hvorki honum eða mr. Bas-
cope hafi tekist, sem sje að gjöra frú
Cradock hamingjusama. Urban botn-
aði ekki neitt i neinu, Sýndi hann
konu sinni brjefið, svo hún gæti gef-
ið honum einhverjar upplýsingar um
málið. Þær voru á þá leið að hún
hefði i rauninni verið gift tvisvar áð-
ur en hún giftist Urban. Jæja, nú vissi
Urban þá líver þessi Cradock var en
liver var þá Bascope? Hann þaul-
hugsaði málið og ákvað seinast að
fara á fund Cradocks. Ivomst hann nú
að raun um að Bascop hafði verið
fyrsti maður frú Ridley. En hver var
þá Ridley? Cradock hafði aldrei
lieyrt hans getið en það var auðsjeð
af þessu að konan hafði minsta
kosti verið gift fjórum sinnum.
Urban fór nú að leita að Bascope.
Fann hann hann í dálitlu sveitaþorpi
og var hann nýlenduvörusali. Urban
spurði hann um konuna og sagði
hann þá Urban, að kona hans hefði
verið gift einu sinni áður, þegar hann
gekk. að eiga hana, hefði fyrri mað-
ur hennar verið dyravörður, Sund-
ell að nafni. Urban fór á fund Sund-
ells og hann sagði honum að kona
sú, sem hann hefði verið kvæntur
og skilið við, hefði áður verið gift
ítölskum rakara, Zingarelli. Urban
fann ftalann, sem viðurkendi að hafa
verið kvæntur umræddri konu eftir
að hún skildi við mr. Pena. Urban
náði í heimilisfang þessa manns og
hjá honum fjekk hann aftur nafn ú
manni, sem mr. Pena fullyrti að kona
sín liefði verið gift áður cn hann
gekk að eiga hana. í von um að þetta
væri fyrsti maðurinn, leitaði hann
uppi mann þenna og komst þá að
raun um að fyrsti maður konu sinn-
gr hefði heitið Schackleford. Hefði
hann farist af slysi eftir nokkurra
ára sambúð þeirra hjóna.
Urban sneri sjer nú til yfirvald-
anna. Það var sannanlegt að kona
hans hafði verið gift átta sinnum
áður en hann átti hana — og það
fanst honum fullmikið af þvi góða.
En það er óvíst hvort Urban getur
losnað við konu sina á þennan hátt.
Hún hefir altaf fengið löglegan skiln-
að. Og svona smáskreytni eins og það
að liún hefði ekki verið gift nema
einu sinni reikna menn í Ameríku
ekki fyrir neina skiinaðarsök.
———x-----
MAÐURINN MENNISLAUSl.
Enskt blað segir frá atviki, sem
vakið hefir mikla eftirtekt.
Söguhetjan er maður að nafni
William Peacy. Gekk hann inn í
enska flotann árið 1918 og vann á
beitiskipinu „Flavia“, Við sjóorustu
misti hann minnið, var fluttur á
sjúkrahús og lá þar i fjóra mánuði
sárþjáður. Að lokum varð hann þó
svo heilbrigður að hann fjekk að
fara heim til sín hressingarferð. Með-
an hann dvaldi heima gifti hann
sig í Glouchester og byrjaði nokkru
seinna að vinna. Eftir að hann hafði
verið um borð um tíma tóku fjelag-
ar hans eftir því að hann fór að
vera dálítið undarlegur og fóru þeir
að hafa grun um að hann mundi ekki
vera með öllum mjalla. Hann misti
stundum alveg minnið. Mundi stund-
um ekki einu sinni livað liann sjálfur
hjet og jiekti ekki fjelaga sina. Að
nokkrum stundum liðnum var eins
og sjúkdómurin hyrfi aftur með öllu,
hann rækti vinnu sina vel og dyggi-
lega og virtist þá ekld geta skilið
fjelaga sína, þegar þeir voru að lýsa
fyrir honum hvernig hann hagaði
sjer i veikindaköstunum. Dag nokk-
urn gekk Peacy á land við Portland
þegar hann átti landgönguleyfi. En
hann kom áldrei aftur.
Hin unga kona Peacy i Glouchest-
cr hafði ekki liugmynd um að maður
hennar væri aftur kominn i herinn.
Hún hjelt að hann dveldi i Lund-
únum. En þegar hún frjetti ekki
neitt af honum varð hún náttúrlega
afar hrædd og leitaði lögreglunnar.
Mynd Peacý kom í öllum blöðum
í landinu og fjelagar lians á beiti-
skipiriu þektu hana strax, en þá var
hann sem sagt horfinn af skipinu.
En svo vildi til að nokkrum vik-
um seinna fanst líkið af berum
manni i einni af útborgum Lundúna.
Líkið var hræðilega útleikið og var
auðsjeð að maðurinn hafði verið
myrtur og rændur af stórglæpa-
mönnum. Mönnum datt strax i hug
að þetta myndi vera líkið af Peacy.
Kona hans var sótt og þóttist hún
þess fullviss að þetta væri hann.
1 sex ár vann ekkjan baki brotnu
fyrir sjer og barni sínu, sem fædd-
ist eftir að Peacy hvarf. Einn góðan
veðurdag kyntist hún hattagjörðar-
manni, þau urðu ástfangin hvort í
öðru og giftu sig. Lifðu þau mjög
hamingjusömu lífi.
En svo einn góðan veðurdag kem-
ur gráhærður maður og ber að dyr-
um hjá þeim hjónum. Hann segist
vera Peacy. Konan verður frá sjer
numin af skelfingu. Peacy segist hafa
mist minnið eftir að hann kom i
land í Portland og flakkað um eftjr
það. Að lokum hafi lögreglan ték-
ið sig og flutt sig á sjúkrahús, þar
hafi hann dvalið í fjögur ár. Nú væri
hann þó orðinn frískur og hafði
fengið vinnu í ölgerðarverksmiðjú:
Peacy vildi ekki eyðileggja ham-
ingju konu sinnar og leyfði henni
að hún mætti skilja við sig. Að svo
búnu varð hún að fá aðra vígslu með
seinni manni sínum, þvi allan þann
tíma, sem Peacy hafði verið á lífi
var giftingin dæmd ólögleg.