Fálkinn - 24.05.1930, Qupperneq 4
FUKINN
4
Á mánudaginn kemur eru 100
ár liðin frá fæðingu ein shins
merkasta borgara, sem Regkja-
vík hefir alið á síðustu öld-
um, Geirs Jóhannessonar Zoega,
kaupmanns og útgerðarmanns.
Kemur hann einkum við sögu
sjávarútvegs íslendinga og mjj-
ungar þær, sem urðu í þessari
atvinnugrein á seinni hluta síð-
ustu aldar eiga flestar rót sína
til hans að relcja, bæði' beinlínis
og óbeinlínis. Fyrsta þilskipið,
sem hann gerði út hjeðan keypti
hann í fjelagi við Kristinn lieit-
inn í Engey og Jón Þórðarson í
Hlíðarhúsum árið 1865, og þó út-
gerð þessi gengi stirðlega fram-
an af, Ijet þessi mildi áhuga-
maður ekki bugast en færði út
kvíarnar og keypti næst skonn-
mjög vönduð, árið 1877. Þá
komu skipin „Fálkinn", „Geir“,
„Ane Mathilde“, „To Venner'
og loks „Margrjet“, sem hjer
birtist mynd af. Geir heitinn
varð brautryðjandi þilskipaút-
vegsins við Faxaflóa og urðu
skip hans mörg áiður en lauk.
Andaðist hann 17. mars 1917,
tæpra 87 ára gamall. Myndin,
sem hjer birtist af lionum er
tekin á efri árum hans, en
myndin af húsi hans „Sjóbúð“
er iekin fyrir rúmlega 30 árum-
ortuna „Reykjavík“, en þriðja skipið var „Gylfi“, skonnorta
— / síðasta tölublaði „Ægis“, er
ítarleg grein um Geir heitinn,
eftir Sveinbjörn Egilsson rit-
stjóra, og vísast til hennar þeim,
sem vilja kynnast nánar þess-
um merkismantii.
Fríkirkjuklukkurnar,
sem mynd var birt af t síðasta
blaði eru 32A kg. á þyngd sú
stærri, en hin 237 kg. Hafði
stjórn „Bræðrafjelags Fríkirkju-
safnaðarins“ leitað tilboða í þær
víðsvegar um og bárust henni
mörg. Var það hæsta nær helm-
ingi hærra en það, sem tekið var,
en það var frá Á Einarsson &
Funk og var langbest og hag-
kvæmast, enda mun firmað
sjálft hafa annast útvegurnar
alveg ókeypis. Eru klukkurnar
keyptar hjá víðfrægri smíðastöð,
Gebr Ulrich í Apolda í Þýska-
landi. Hefir önnur klukkan
djúpan B-tón en hin Des-tón.
Á klukkurnar er letrað auk þess,
sem áður liefir verið sagt frá,
ártölin 1899 og 1929, auk upp-
hafsversins í Passíusálmunurn,
sem er steypt á minni klukkuna.
Friðrik Jónsson kaupm. varð Einar Jónsson magister verður Benóný Benónýsson kaupmað-
sjötugur þ. 22-_ þ. m. ferlugur 27. þ. m. ur verður sextugur 29. þ. m.
B í L -
gleraugu,
TENNIS"
skermar,
S Ó L •
gleraugu
best og
ódýrust >
gleraugnabúðinni^augavejj^
lllllllliIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIII11
Fálkinn Íæst eftirleiðis keyptur
í tóbakssölunni í Hótel Borfl
IIIIIIIBIIIIIIIIIMllllllllllllllH11
Best er að auglýsa í Fálkanuffl-^