Fálkinn


Fálkinn - 14.06.1930, Síða 6

Fálkinn - 14.06.1930, Síða 6
6 F Á L K I N N Einkennileg og fögur fjallmyndun og bygging við klettaströnd Korsiku. þann samning með sjer, 1768, að Frakkar skyldu sjá um að lialda uppreisnarmönnum í skefjum og ráða fyrir eynni þangað til þeir liefðu fengið endurgoldinn allan kostnað þann, sem þeir höfðu haft af hjálpinni við Genúamenn og liernaðinum á Korsíka. Paoli veitti enn viðnám um stund í von um að fá liðsauka hjá Bret- um, en er hann brást gat hann ekki reist rönd við Frökkum og tókst þeim það á einu ári, sem Genúamönnum hafði ekki tekist á mörgum öldum. En kostnaður- inn af hernáminu varð um tvær miljónir franka, og hann gátu Genúamenn ekki greitt og fengu Frakkar því eyjuna, árið 1769. Sama árið fæddist Napoleon mikli, en eftir að eyjan var orð- in frönsk. Munaði því minstu, að þessi síðari keisari Frakka og einn kunnasti hershöfðingi ver- aldarsögunnar fæddist undir fána Genúamanna. Sama árið fór Paoli til Englands til þess að fá lijálp þar í sjálfstæðisbarátt- unni. Óeirðir hjeldu áfram á Korsíka og í byrjun frönsku stjórnarbyltingarinnar voru um tíma horfur á, að Korsíka fengi einskonar heimastjórn, en þegar Jakobinar náðu völdum í Frakk- landi hvarf sú von aftur. Sneri Paoli þá heim til Korsíka og byrj- aði uppreisn aftur með nokkurri aðstoð frá Englendingum og árið eftir tókst lionum að koma á beimastjórn á Korsíka undir yf- irforræði Englendinga. En þetta lijelst þó ekki nema til 1796, því þá kom her Napóleons til skjal- anna og lagði eyna aftur undir Frakka. Eftir það flýði Paoli aftur til Englands; þótti sjálf- stæðismönnum á Korsíka hann hafa brugðist illa skyldum sín- Svona er umhorfs ú almúgaheimili ú Korsíka og líkt þessu hefir her- bergið verið, sem Napoleon mikli fœddist í. (Wínarpylsur) nesti á Þingvallahátíðina. Það Lndhægast og sennilega ódýrast. SLÍTURFJEL46 SUBUBLANDS REYHJAVIK SÍMNEFNI: SLÁTURFJELAO LÍNUR) Það er skemtileg tilviljun, að á 10 alda afmæli þingis íslendinga, skuli nðursuðustarfsemi vor eiga 10 afmæli. Alt, sem landsmenn losna við að sækja til annara landa, er spor í áttina til aukins sjálfstæðis og velmeg- unar, — og sú 10 ára reynsla, sem fengin er fyrir gæðum niðursuðuvara vorra, er næg trygging fyrir því, að ekki þurfi að flytja hingað frá útlöndum, i tegundir: Kindakjöt Kjötkál (hvítkál og kjöt) Kæfu Bayjarabjúg Fiskbollur Fáið þessar vörur í mun reynast yður best, handhægast og : Fæst í flestöllum matvöruverslunum. um, sem föðurlandsvinur, er hann ljet Englendinga verða for- ráðendur eyjarinnar. Paoli hvarf þá til Englands og dó þar, árið 1807. Korsíkumenn halda fast við forna siði eins og margarafskekt- ar þjóðir. Þar er blóðhefnd enn- þá óskrifuð lög margra, einkum fjallabúanna og þykir sá maður bregðast sóma ættarinnar, sem ekki liefnir morðs á ættingja sínum, í sömu mynt. Stigamenn hafast enn við á Korsíka og gera friðsömu fólki ýmsar skráveifur. Eru margar sögur til af þeim og afrekum þeirra og sumir þeirra ná þjóðfrægð, eins og Skugga- Sveinn hjer eða Hrói höttur í Englandi. Korsíkubúar eru litlir fram- faramenn. Land þeirra er frjó- samt en illa ræktað og lands- menn lifa flestir frá liendinni til munnsins og láta hverjum degi nægja sína þjáning. Rækla þeir einkum hveiti, rúg, aldin og olíu- við og liafa talsverða kvikfjár- iækt. Stærsti bærinn er Ajaccio. í Rússlandi eru 150 miljónir manna en aöeins 23.000 bifreiðar, en í Kali- forníu 3 miljónir manna og hálf önn- ur miljón bifreiða. í Moskva eru að- eins 120 lokaðar bifreiðar en eiga að verða 2000 að óri, og 3000 almenn- ingsbifreiðar stórar en eiga að verða 1400 eftir þrjú ár — ef peningar verða til. -----X----- Á Pislarsögusjónleikjunum í Ober- ammergau er verð aðgöngumiða, 15, 20 eða 10 mörlc að sýningu hverri. Leiksýningarnar hefjast kl. 8 að morgni og standa til kl. 8, en frá geng- ur timi til miðdegisverðar. En til þess að geta fengið keypta aðgöngumiða að leikjunum verður maður að sýna skilríki fyrir, að maður hafi keypt húsnæði og mat fyrir daginn og morg- unverð fyrir næsta dag. og það kostar frá 48—33 mörk, eftir dýrleika gisti- húsanna, sem i boði eru. ----x---- Fjelaga tala bifreiðafjelags Banda- rikjanna er nú 1.400.000. Hjer á landi er ekkert bifreiðafjelag til og væri þó ekki vanþörf á, því að fjelðg þessi vinna að ýmsum nauðsynjamálum er að bifreiðaakstri lúta. ----x—— Kínverjar hafa í hyggju að leggja 11 nýjar þjóðbrauíir um landið, þvi að vegaleysið verður æ tilfinnanlegra, sjerstaklega eftir að bifreiðum fór að fjölga þar. Til þess að koma þessari óætlun í framkvæmd vantar þá ekk- ert nema — peningana. Eiga þessir vegir að vera undir stjórn jórnbrauta- ráðuneytisins og eiga bílaviðgerðar- stöðvar að vera meðfram veginum. ------------------X------

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.