Fálkinn


Fálkinn - 27.09.1930, Blaðsíða 9

Fálkinn - 27.09.1930, Blaðsíða 9
F Á L K I N N 9 t sumar fóru síðustu fröhsku setuliðssveitirnar úr Rínarlöndunum. Á efri myndinni sjest setuliðið vera að fara frá Mainz, en á hinni n eðri flugeldasýning, sem höfð var í minningu þess, að Þjóðverjar væru á ný orðnir útverðir við Rín. Á Malajaeyjum var rjettarfar mjög einkennilegi í ýmsum greinum og sumar hegningar grimmúðlegri en líflát, þangað til Bretar ruddu meiri mannúð braut í löggjöfihni. — Ýmsir halda þvi fram að æfilangt fang- elsi í hegningarhúsum norður- urálfumanna sje verra en dauð- inn, en ef svo er þá má fullyrða, að lífstíðar fangelsi hjá Malaj- um sje þúsund sinnum verra en pyntingardauði. Fangarnir eru nfl. ekki látnir vera í venju- legu fangelsi heldur lolmðir inni í litlu búri eins og því, sem sjá má á myndinni og þjáning- ar þær, sem þeir verða að líða, eru svo miklar, að engin orð fá lýst þeim. Nú liafa þessi hræði legu fangelsi verið afnumin, en 1 Bandarikjunum í Aiueríku er'< bifreiðum leyft að aka miklii hraðar en í flestum löndum norðurálfuhnar. En Isamt erug þar fyrirmæli um hámarks- hraða og sjer úrvalsflokkur lögrecjlumanna um, að þeim sje hlýtt. Iiafa þessir lögreglu- menn hraðskreið bifhjól að far- artækjum og halda sig meðfram þjóðvegunum. Sjái þeir menn aka of hart þá aka þeir enn þá hraðar þangað til þeir ná í sökudólginn og draga hann fyr- ir lög og dóm. Hjer er mynd af einum þessara lögreglu- manna. Hjer er mynd af staðfána Fær- eyinga, þeim sem mest uppi- standið varð út úr á Alþingis- hátíðinni í sumar, en þeir við- burðir drógu dilk á eftir sjer, að danski fáninn var skorinn niður d Þórshöfn á Ólafsvöku- hátíðinni þar og varð úr því mesta hitamál þar í eyjum. Fær- eyski fáninn er að gerð likur þeim íslenska og litirnir eru þeir sömu í annari röð. Reitirn- ir fjórir eru hvítir, innri kross- inn rauður og og ytri krossinn blár. eru þó til enn þá, þó þau sjeu ekki notuð.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.