Fálkinn - 27.09.1930, Blaðsíða 8
X
F A L K I N N
Á þessu ári liafa víða orðið eldsum-
brot í jörðu, þó að alt hafi verið
með kyrrum kjörum hjer á landi.
Meðal annars hefir talsverður órói
verið í Vesúvíusi, en það er nú ekki
ný bóla. Hins vegar er Vesúvíus oft
hæglátur, þó að hann vilji láta sjá
að hann sje ekki dauður. Lætur
hann sjer þá nægja að hafa „damp-
inn uppi“ og stendur reykjarmökk-
urinn stundum úr honum mánuð-
um og jafnvel árum saman, án þess
að hraun flóð komi svo að ieljandi
sje, eða að skaðar hljótist af. Dreg-
ur þetta ferðafólk að. Hjer er mynd
frá Vesúvíus, tekin núna í sumar.
)m. '"><■ i‘!Á :<M, »■!»•:.
mmm
iiíi
Á myndinni hjer að ofan sjest veðhlaup á barnabílum við bað-
stað einn suður í Evrópu. Eins og sjá má á myndinni er þátt-
takan mikil.
Bræðurnir Hunter liafa nýlega sett nýtt met í því að halda
sjer á flugi, miklu hærra en það sem áður var. Hjer sjest vjel
þeirra vera að fá sjer eldsneyti á flugi, úr annari vjel. Sjest
bensínleiðslan milli vjelanna.
Þessi mynd er frá indversku borginni Pesjavar, rjelt við landa-
mæri Afganistans. Þar hefir alt verið í báli og brandi lengi og
umsát um borgina, svo að hún er i hershöndum.
Hjer sjest nýjasta farartækið og er það kallað halastjörnubíll-
inn. Hann getur farið bæði á sjó og landi og í lofti, og maðurinn
sem smíðaði hann segir hann geta flogið yfir þvert Atlantshaf.
♦