Fálkinn - 04.10.1930, Qupperneq 8
8
F A L K I N N
/ ávaxtahjeruðum Ameríku þykir
lítið til J)ess koma að borða ávext-
ina eins og þeir koma af jörðinni,
vegna þess að þar er svo mikið af
þeim. Hinsvegar kosta menn kapps
um, að búa til sem Ijúffengasta rjetti
úr þeim. Á þeita ekki síst við um
eplin, og meðal margs, sem Ame-
ríkumenn hafa beitt hugviti sínu að,
má nefna að þeir hafa lagt stund
á að finna nýjar og nýjar tegundir
af eplaköku. Þessar fimm stúlkur,
sem sjást hjer á myndinni til vinstri
þykja afar snjallar í þvi að búa til
eplaköku og hafa fengið verðlaun
fyrir þessar afurðir sínar á ýmsum
sýningum. Og þessvegna hefir Ijós-
myndarinn fundið upp á því snjall-
ræði, að mynda þær í eplahrúgunni,
sem sjest á myndinni.
Ýmsir halda, að þjóðbúningar og
gamlir þjóðsiðir sjeu fyrir löngu
horfnir úr sögunni hjá hinum
stærri þjóðum Evrópu. En því fer
fjarri. Þjóðbúninga og þá marga má
finna hjá nær öllum þjóðum Norð-
urálfunnar. í Noregi skifta þeir
lugum, þegar smærri afbrigði eru
talin með, í Svíþjóð sömuleiðis, í
Danmörku eru enn til ýmsir þjóð-
búningar og sömuleiðis í Hollandi
og Þýskalandi. Og þegar kemur
suður í Tjekkóslóvakiu, Ungverja-
tand og í Balkanlöndin, verður fyr-
ir fjöldinn allur af svona búningum.
Þjóðdansar eru til í flestum lönd-
nm og á síðari árum hefir runnið
apP fyrir mönnum að þar sje um
þjóðlegt verðmæti að ræða, sem
ekki megi glatast. Hafa því síðustu
áratugir verið endurvakningartíma-
bil þjóðdansanna í mörgum Ev-
rópulöndum. Hjer til vinstri er
mynd, sem fyrir skömmu var tek-
in af skemtun í Spreewald í Þýska-
landi. Sýnir hún vendneskar stúlk-
ur vera að dansa þjóðdansa sina —
vitanlega í æfagömlum þjóðbún-
ingum
1 Buenos Aires, höfuðborg Argen-
tínu varð mýlega uppþot mikið og
úr því bylting, útaf óánægju með
forsetann. Stjórnin veitti viðnám
fyrst í stað en varð að gefast upp
en byltingamenn tóku við völdum.
Gerðist alt þetla að mestu leyti
blóðsúthellingalaust. Hjer til vinstri
birtist mynd af þinghúsi Argentínu,
sem kallað er Capitol, og minnir
mjög, hvað stil snertir á samskonar
byggingu í Washington i Bandaríkj-
unum. Buenos Aires er stórborg
með um tveimur miljónum íbúa og
er viðbrugðið fyrir fegurð.