Fálkinn - 25.10.1930, Síða 5
F A L K T N N
5
‘S
■V " . :'n ' /
■
•*
,
■ . >,;
mkwe ssMí i
'wtmM/tfoi ‘msh
*. <Mim
.
.
Smyglarar og smyglaraveiðar
Sunnudags hugleiðing.
Eftir Skovgaard Petersen.
•■■■■
Að vera kristinn er ekki það
sama sem vera skírður til krist-
innar trúar, sækja kirkju og
fara til altaris — enda þótt skírn
in sje hinn djúpi grundvöllur
lífsins í Kristi og kirkjuferðirn-
ar sjálfsagðar hverjum kristn-
um manni. "
Að vera ■ kristinn er heldur,
ekki það sama, sem að viður-
kenna sannleiksgildi ýmisra
þeirra trúarsetninga, sem mann-
inum eru boðuð í kristnum fræð-
um og játast undir þau, enda
þótt að svo hljóti jafnan að fara
til langframa, að trú og kenning
fylgist að. Því að kenningin er
ekki annað en þau sannleiksat-
riði, sem líf kristins manns livíl-
ir á og fær næringu sína frá.
Að vera kristinn er ekki hund-
ið við ákveðið hámark siðfræði-
legrar fullkomnunar. Kristur
átti sjálfur ýmsa bestu vini sína
meðal tollheimtumanna og ber-
syndugra, en vitanlega hefir
vinátta hans og fyrirgefning
einmitt orðið til þess að hækka
lífsskoðun þeirra og beina tak-
marki lífs þeirra inn á æðri
brautir.
Að vera kristinn er
viðhorf alls mannlegs lífs viti að
Kristi og að hann sje miðbikið
i allri hugsun mannsinsogstarfi.
Krislur verður að vera miðdepill
alls persónulífsins og líf manns-
ins verður alt áð miðast við það,
sem Kristur sagði mönnunum að
rjett væri. „Verðið í mjer, þá verð
jeg í yður!“ Þannig kemst Krist-
ur sjálfur að orði. — „Ekki lifi
jeg, heldur lifir Kristur í mjer“,
segir Páll postuli. En það er ekki
alt bundið við orðin ein, heldur
ræður það úrslitunum, að mað-
urinn finni að honum er það
fyrir öllu, að öll hans verk og
hugsanir stjórnist af meðvitund-
inni um Jesú Krist. Sá sem til-
biður Jesú Krist sem frelsara
sinn, liefir aðeins frið þegar
hann finnur til nálægðar hans,
leitar til hans i sorg og gleði, á
takmark sitt í trúnni á hann —
hann, og.hann einn er kristinn.
Reynið þetta, því þetta er lífið
í Iíristi.
Enska lávarðsættin Derby hefir
löngum verið fræg fyrir áhuga sinn
fyrir veðhlaupahestum og oftast átt
flesta og besta góðhesta allra mera-
konga*. Svo er og um hinn núverandi
Derby lávarð að i hesthúsi lians eru
samankomnir fleiri góðhestar undir
saina þaki, en á nokkrum öðrum stað.
Á hann 50 vcðhlaupahesta, auk ung-
viðis. Derby hefir að þvi er sagt er
grætt um þrjár miljónir króna á
hestum sínum síðustu árin.. En nú
er sagt, að hann verði að selja alla
hesta sína vegna fjárskorts. Hefir
hann tapað stórfje á eign sinni i ýms-
um verksmiðjum.
Vörusmyglun landa á milli
hefir jafnan þótt arðvænlegur at-
vinnuvegur. Og áhættan sem hon-
um hefir fylgt hefir gert hann að
hættuspili, sem æfintýramönn-
um þykir gaman að; því að sumir
eru svo gerðir að þá fýsir mest
í það, sem brugðist getur til
beggja vona. Sögurnar af sumum
smyglurunum eru eins og æfin-
týri og berast manna á milli.
Æskan gerir þjóðhetjur úr sum-
um smyglurum og tekur vel eft-
ir æfintýrunum af þeim. — Svo
var það að minsta kosti víða er-
lendis fyrrum daga. En nú á tím-
um, síðan tollmúrarnir sem þjóð-
irnar lilaða í kringum sig eru
farnir að liækka, er smyglunin
orðin meiri og almennari, því að
verkefnið er meira. Og nú eru
það aðeins einslöku menn úr
„stjettinni", sem ná verulegri
frægð — eða rjettara sagt verðá
verulegá alræmdir.
Smyglarar eru alstaðar, í aust-
urlöndum, við strendur og landa-
mæri Evrópu og Ameríku og
skáldin nota oft smyglara sem
fyrirmyndir að söguhetjum sín-
um. Einkum var svo áður. Þá
var smyglunin oft annað ogmeira
en einföld lögbrot og atvinnu-
vegur; smyglararnir voru oft
stórmenni og lýðvinir, sem börð-
ust gegn rangsleitni og aurafíkn
Amerikanskur smyglari á verði, með-
an verið er að skipa upp vörun-
um, sem skip hans hefir meðferðis.
ásælinna liarðstjóra. En þessi
ljójni er nú horfinn af þeim.
Smyglarar nútímans eru hreinir
átvinnurekendur, sem lifa á lög-
brotum og öðru óheiðarlegu at-
hæfi til þess eins að auðga sjálfa
sig. Einkum færðust smyglar-
arar í aukana á striðsárunum og
árunum eftir stríðið og nú eru
þeir orðnir plága í flestum lönd-
um, og yfirvöldunum tekst illa
að stemma stigu fyrir þeim, enda
þótt tollgæsla flestra landa sje
orðin stórum betri og fullkomn-
ari en áður var. Á stríðsárunum
varð víða þurð á ýmsum vörum,
eða að vörur voru svo misjafn-
lega hátt tollaðar í tveimur ná-
grannalöndum eða fleiri, að oft
mátti græða margfalt verð vör-
unnar á því að lauma henni inn
i landið bak við tollverðina.
Smyglun nútímans er aðallega í
því fólgin að stela lögmæltum
tekjum af ríkinu og enginn verð-
ur þjóðhetja á því, heldur verð-
ur hann stimplaður sem óærleg-
ur maður og mætir hvarvetna
fyrirhtningu.
Enda er nú svo komið, að það
eru sjaldnast smyglararnir sjálf-
ir, sem leggja sig í hættuna. Þeir
hafa aðra menn í þjónustu sinni.
og stundum er smyglunin bein-
línis rekin af hlutafjelögum, sem
hafa svo eða svo margra manna
stjórn og fjölda manna og skipa
í þjónustu sinni. Þeir gera út
Hraðlestin fer framhjá og tveir men standa og talá saman. En í lest-
inni situr smyglaraforingi og sjer þá. Af því hvernig þeir standa, fœr
hann að vita, að öllu cr óhœtt, sem hanri hefir meðferðis.
Þarna er verið að flytja sprittdúnka milli skipa.
Mynd af smyg'.aralífi forðum daga. Þeir eru að flytja varninginn inn
i hellisskúta.