Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1930, Blaðsíða 8

Fálkinn - 25.10.1930, Blaðsíða 8
8 F A L K I N N Myndirnar sem hjer eru birtar ern frá allra svartasta tíma trú- arbragðaofsóknanna á Spáni. Af tilviljun einni kom við gröft fyrir kjallara að nýju liúsi þessi ógurlega eymdarsaga fyrir sjón- ir nútímamannanna. Tilviljunin flutti fram í dagsbirtuna lík 18 manna, sem einhverntíma um 1670 eða svo, hefir verið varpað i kjallaraholuna og dáið liafa þar hungurdauða, með öllum þeim skelfingum, sem því fylgir. Og þelta er aðeins einn kjallari, eitt fangelsi af mýmörgum á Spáni, þar sem fólk hefir farist vegna trúar sinnar. En undar- leg tilviljun var það máske að þetta fangelsi var við hliðina á Icirkjunni. Efri myndin er af myrkrastofunni en hin neðri af kirkjunni. mmmmmmrnéi Sundíþróttin er mjög útbreidd í Ameríku, ekki síst meðal barna. Myndin hjer að ofan er frá sundmóti, sem nýlega var haldið í Chicago; tóku þátt í því 900 stúlkur og drengir, öll á aldrinum 12—13 ára. Myndin sýnir nokkra keppendur varpa sjer til sunds á 100 yards skeiði. Nýlega þreyttu sex stúlkur kappflug yfir þvera Norður-Amertku, hafanna á milli. Myndin sýnir fylkisstjórann i Kaliforníú árna þeim fararheila og afhenda þeim uppdrátt af leiðinni, sem þær eiga að fara. ■ ! ,'v" ’:■. .... ' • Myndin hjer til vinstri er af lengsta brúarboganum, sem bygður hefir verið í heimi. Er brú þessi yfir liöfn- inni í Sidney í Ástralíu og er um það bil að verða fullgerð. Ilún er svo há, að siærstu skip geta siglt undir liana og hefir kostað um 120 miljón krónur. Hafið á brúnni milti stöpla er 1650 fet; gangbrúin er 160 feta breið og hæð hennar yfir sjáv- armál er 170 fet.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.