Fálkinn


Fálkinn - 08.11.1930, Blaðsíða 5

Fálkinn - 08.11.1930, Blaðsíða 5
F A L K I N N 5 Sunnudagshugleiðing. ___________F|óttinn fpá St> Kilda. Eftir Pétur Sigurðsson. Þegar egjan var gfirgefin. Það er ve rið að skipa innanstokksmuniinum um borð. ,,Verið ávalt glaðir vegna samfjelagsins við drottin. jeg segi aftur: verið glaðir“. — Páll. Ekki eru allir glaðir, sem þó virðast liafa ástæðu til að vera það. Vegna hvers ekki? Þeir hafa ekki samfjelag við það er geti gert þá glaða. Hin ríkjandi liugs- un snýst ekki um þá hlið lífsins er getur veitt sólskini lífsgleðinn- ar og hamingjunnar inn í sálarlíf þeirra. Þeir hafa ekki nægilegt „samfjelag“. við liið góða — við Guð. Margir eru glaðir, sem virðast þó ekki hafa mikið lil að gleðjast yfir. Vegna hvers? Vegna þcss, að þeir lifa i heilnæmí því, er gleðin sprettur af. Þeir lifa í „samfje- lagi“ við uppsprettu lífsgleðinn- ar, í „samfjelagi“ við liið góða — við drotinn sinn. Til er fjelags- skapur sá, er gerir menn liam- ingjusama og einnig hinn, er gex*- ir menn óhamingjusama. Enginn fjelagsskapur er hetri en „sam- fjelagið við drottin“. Því það er hið sama og að lifa öllu því, sem er satt, fagurt, lireint, heilagt, rjettlátt og gott. Að lifa því, sem er fagurt og gera hið góða veit- ir lífsgleði. Reynsla er veigameiri en allar kenningar. Reynslan stað feslir, að góðverk færir gleði. Sá, sem gerir hið góða, sem lifir dygðinni og rjettlætinu, lætur gott af sjer leiða, hjálpar öðrum og gleður aðra; finnur hið innra með sjer einhverja þægilega sval- andi og gleðjandi tilfinningu. Hún er sjaldan liávær, en hún er holl og styrkjandi. Það var sagt um Krist, að Guð hans hefði „smurt liann með gleðinnar olíu fram yfir hans jafningja“, og það er sagt að slíkt haf iverið gert, sem bein afleiðing þess, að liann „elsleaði rjettlæti, en hat- aði ranglætið“. Þar var engin hálfvelgja, engin óheilindi. Hann hataði og elskaði. Hataði rang- indin, en elskaði rjttlætið. Þetta gerði hann öllum frernur og þekti því hina sönnustu og fullkomn- ustu gleði öllum fremur. Eins og ávöxturinn er afleiðing sáningar, svo er og gleðin afleiðing þess, að lifa rjett, liugsa i*jett og gera hið góða. Ormurinn nagar þann, sem ólyfjanina ber í sjer og eld- urinn brennir þann, sem kveikju- efnið fram leiðir. Skalct líf, er kvalalíf, er sorgarlif. Líf í sam- fjelagi við myrkur, rangsleitni, saurgun og fúlmensku, framleið- ir tómleik, lifsleiðindi og óham- ingju. Þess konar líf er tæringar líf. Lífsleiðindi og óhamingja eyðir lífskröftunum eins og ó- slökkvandi eldur“ og „ormur, sem ekki deyr“. En „glatt lijarta veitir góða heilsubót“, segir spek- ingurinn nxikli, og ennfremur „sá, sem vel liggur á, er sífelt í Frarali. á bls. 6. Ymsir íslenskir sjómenn kannast við eyjuna St. Kilda, því- að fyrir nokkrum árum sigldu íslenskir tog- arar stundum til vesturstrandar Eng- lands, einkum lil Fleetwood með ís- fisk sinn. Og sást fyr til þessarar eyju en til meginlands Skotlands, því hún liggur langt undan landi, útí í reginhafi. St. Kilda er heiti á fjórum eyjum smáum og heitir hin stærsta þeirra Hirta. En lítið er þarna um land kosti og árum saman hafa eyjaskeggj- ar orðið að berjast við óblíðu nátt- úrunnar. Þar var einmanalegt að lifa og á siðari árum hefir unga fólkið. þyrpst þaðan burtu en þeir einir orðið eftir, sem ekki gátu komist þaðan fyrir elli sakir eða æsku. Voru að lokum ekki orðin þarna eftir nem 70 börn og gamalmenni og tók stjórnin það ráð, að flytja alt þetta fólk burt af eyjunnn og útvega því jarðnæði á öðrum stað. Fólkið á St. Kilda lifði einkum á sjávarafla og sauðfjárrækt. Var sauð- fjeð haft í úteyjum tveimur, sem heita Boreray og Soay (Sauðey?) og var farið þangað einu sinni á ári til rúningar; ákvað þing eyjaskeggja, sem Mod var kallað (mót) hvenær farið skyldi. En mjög erfitt var að komast út í eyjarnar og svo fór að lokum, eftir að vinnufærum mönn- um fækkaði, að liætt var að hirða ullina. Svo hefir verið á Boreray í mörg ár og er fjeð nú orðið vilt þar, en á Soay er enn hægt að ná fjenu saman til rúningar. Norrænir vikingar bygðu fyrstir manna St. Kilda og eru flest staða- nöfn þar norræn. Hinsvegar eru mannanöfnin það ekki. Ættirnar hafa gifst saman og siðustu 00 árin hafa aðeins 5 ættarncfn — eða rjettara sagt ættir — verið á eyjunni. íbúarnir hafa orðið 110 mest, að þvi er menn vita; var það árið 1851, en siðan hefir þeim sífelt farið fækkandi og þó aklrci ens ört og síðan striðnu lauk. St. Kilda-fólkið er einrænt og vill sem minst afskifti hafa af öðrum. Spá því margir, að það muni ekki kunna við sig þar sem þjettbýlla er. Þegar skip komu til St. Kilda urðu eyjarskeggjar jafnan kvefaðir, svo að það var ekki að furða þó að þeim væri lítið um heimsóknir. Og ekki kærðu þeir sig um að taka þátt í þjóðfjelagsmálum. Þeir höfðu kosn- ingarrjett lil parlamentsins, en þess er aldrei getið, að þeir hafi notað hann; þeir lifðu i samræmi viðgamlar venjur sínar og samþyktir og þektu ekkert til enskra laga. Eigi hefir glæp- ur verið framinn á St. Kilda í manna minnum, n.je nokkur eyjaskeggja átt í málaferlum. Á St. Kilda er hvorki til trje eða runnur, slíkt þrífst ekki þar vegna storma og sjávarseltu. Fólkið sem flutt var í land hafði því aldrei s.jeð skóg. Og margt var það fleira, sem það hafði aldrei sjeð, ekki síst ýms verkleg tæki, svo sem járnbrautir, bílar og því um líkt. Og þó eyjan væri undir handarjaðri enska ríkis- ins. Og nú er hún auð og yfirgefin og á næstunni munu ekki aðrir hætta Konur frá Sl. Kilda i hinu nýja heim- kunni sinu. sjer þangað en vísindamenn, sem kynna vilja sjer náttúrueinkenni þessara fjarlægu eyja, sem nú hafa lagst í auðn. St. Kilda telst til Suðureyja og er 14 ferldlómetrar að stærð. Talið er að þar hafi verið bygð í þúsund ár. T. v. sjest „stræti” á St. Kilda, en t. h. sjást bændur flytja kindur sínar um borð er j)eir yfirgefa eyna,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.