Fálkinn


Fálkinn - 08.11.1930, Blaðsíða 9

Fálkinn - 08.11.1930, Blaðsíða 9
F A L K I N N 9 í Bolivíu l Suð- . ur-Ameriku . þykir stjórnar- . farið oftast . ganga á trjefót- um og . upp- reisnir eru þar tíðar. En Boli- vía er ríkt land. Þar eru silfur- námur ótæm- andi og þó að írlega sje unnið þar mikið af Hefir silfur verið unnið þar að staðaldri síðan 15¥.) og sjer þó eigi högg á. Á hverju ári er þar unnið silfur fyrir margar miljónir króna. Lord Mayor Lundúnaborgar a , ./ ,, .. , , ferð i Kaupmannahöfn i sumar. Fyrir allmorgum arum var danska myndhoggvaranum Gustaf Borglum falið að gera stærsta minnismerki í heimi. Atii hann að höggva myndir á 700 feta hátt standberg í Georgíufylki og þess- ar myndir áttu að sýna aðalforingja suðurríkjanna í þrælastríð- inu, sem háð var milli norður- og suðurfylkjanna í Bandaríkj- unum fyrir nær sjötiu árum. Fyrst og fremst átti þetta minnis- merki að vera Robert Lee hershöfðingja til vegsemdar. Borglum er nú langt kominn með þetta verk, en það má heita stórvirki, því að sumar myndirnar, t. d. riddaramyndirnar eru um 200 feta háar og öll lágmyndin á berginu um 1100 fct á breidd. Kostnað- urinn við minnismerkið er um 3y2 miljón dollara og er gert ráð fyrir, að þvl verði lokið á sjö árum. — En nú hefir missætti orð- ið milli Borglum og forstöðunefndarinnar og hefir hann verið sviftur verkinu og öðrum manni falið að tjúka við það. Borglum hefir að sögn verið hólað fangelsisvist ef hanri komi inn fyrir landamæri fylkisins, því að nefndin hefir hann grunaðan um að vitja eyðileggja frumdrættina að því, sem ógert er af minnis- merkinu. — Að ofan sjest mynd af parti úr minnismerkinu og t. v. mynd af Gustaf Borglum. Hve hátt er hægt að byggja í New York? Chrysler bílakongur hefir metið sem stendur og er skýjakljúfur hans 77 hæðir. Keopspýramýdinn er 170 metrar á hæð, en Chrysler-Buildings 310 metrar. En hvað lengi verð- ur Chrysler hæstur? Nú hefir Waldorff-A storia-gistih úsið ver- ið rifið og þar á að fara að reisa 85 hæða byggingu, sem heitir „Empire States Building“ og á að kosta 50 miljónir dollara. Iljer að ofan sjest Chrysler- byggingin. íslenskar stúlkur á Alþingishá- tíðinni í sumar sem leið, undir erlendu fánaröðinni.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.