Fálkinn - 15.11.1930, Blaðsíða 2
2
F A L K I N N
------ O'AMLA R ! O ----------
Briiður nr. 6$.
Þýsk hljóm- og talmynd eftir
skáldsögu P. Bolt, um konulausa
landið.
Aðalhlutverk leika
Conrad Veidt og
Elga Brink.
Afarspennandi og efnisrík mynd,
snildarlega leikin.
Verður sýnd bráðlega.
PálIíÍtlH er viðlesnasta blaðið.
1 ainlllll er besta heimilisblaðið.
„J?aé getur verió jeg sé gamaldags*4
Þvotta r
mínir
veröa
hvítari
með
RINSO
segir húsmóðirin
„En jeg er ekki svo heimsk, að jeg snui
baki við einhverju góðu, af pvi )>;í$ er
nýtt. Til dæmis Rinso. Gamla aðfer-
ðin, að núa og nudda tímum saman og
brúka sterk bleikjuefni til að gera ]>vot-
tana hvita, vann vcrkið helmingi ver en
Rinso. Rinso gefur ljómandi sápusudd,
nær út öllum óhreinindum og gerir
pvottanahvíta. Þcirpurfa enga bleikju og
cndast pví miklu lengur. Fylgdu með
tímanum eins og jeg og pvoðu með
Rinso.“
Er aðeins selt i pökkum
— aldrei umbúðalaust
Lítill pakki-
Stór pakki
-30 atir.-i
-55 aura
W-R 22-047A
N Ý J A B í 0
Söngur hjartans.
Tón- og talmynd frá kvikmynda-
fjelaginu Ufa.
Aðalhlutverk:
Dita Parlo og
Willy Fritsch.
Aukamynd:
Ungversk Rapsodi nr. 2.
eftir Liszt, leikin af 80 manna
hljómsveit.
Sýnd bráðlega.
Kápuvikan.
Vetrarkápur
ineð ekta skinni.
Mikið úrval og gott,
við allra ltæfi,
verður selt með
201,
afslætti
vikuna
16 til 22. nóventber í
SOFFIUBUÐ
S. Jóhannesdóttir.
Austurstræti 14. Reykjavík.
Odinil er besti telkniblýanturinn
Talmyndir.
SÖNGUR HJARTANS
Bráðlega sýnir Nýja Bíó mynd,
sem heitir „Söngur hjartans", tón-
og talmynd, sem gerist í Budapest
og segir sögu fátækrar sveitastúlku,
sem kemur til borgarinnar og trúlof-
ast þar ungum manni. En svo lendir
hún i klóm svívirðilegrar kerling-
ar. sem selur hana í eitt af pútna-
hiisum borgarinnar. Unnustinn kemst
að þessu og yfirgefur hana, en hún
fylgir honum eftir, en hann vill eng-
um sáttum taka. Hún ver síðasta
eyri sínum til þess að kaupa handa
honum hest og vagn, sem hann hefir
langað til að eignast, og fleygir sjer
síðan í Dóná.
Þó að aðalþráður myndarinnar
sje þannig raunasaga, þá er bjart yf-
ir henni samt, því að leikstjóranum
hefir tekist að ná svo miklu af þjóð-
lífi hinna ljettlyndu Ungverja inn i
myndina. Og ekki er hún sist merki-
leg fyrir hin undurfögru lög, sem
leikin eru í henni og eru svo marg-
vísleg, að maður fær góð kynni af
ungverskri músik.
Sem inngangur að myndinni er
ieikin — af 80 manna hljómsveit
— hin stórfenglega ungverska rap-
sodi nr. 2 eftir I.iszt, svo un'durvel
að áheyrandamim finsl hann vera
kominn í hljómleikahallir Stórborg-
anna. Utlend blöð sögðu um þessa
hljómmynd, þegar hún kom frnm,
að hún væri það fullkomnasta, sem
gert hcföi verið i þeirri grein í
Þýskalandi.
BRÚÐUR NR. 68.
Svo heitir þýsk tón- og talmynd
tekin eftir alkunnri skáldsögu eftir
P. Bolt. Er efnið í stuttu máli þetta:
Um síðustu aldamót sendi enska
stjórnin heila skipsfarma af kven-
fólki til Ástraliu, sem þá var kallað
„kvennalausa landið“. Til Ástralíu
höfðu sem sje nær eingöngu ein-
hleypir menn farið, þar af fjöldinn
allur af sakamönnuin, því að Ástralía
var um langt skeið notuð sem saka-
mannanýlenda Englendinga og menn
sendir þangað i útlegð. En það sann-
aðist hjer sem fyr, að það er ekki
gott að maðurinn .sje einsamall, og
því tók stjórnin það til hragðs að
senda þangað stúlkur, nauðugar vilj-
ugar.
Á einu af þessum kvennaskipum
var kona, sem Evelyn hjet, og gekk
undir nafninu „Nr. 68“. í þessari
ferð deyr kona ein og Evelyn er
dæmd til þess að koma í skarð henn-
ar.
Símritarinn Dick Ashton, scm upp-
haflega hafði átt að fá „brúður nr.
68“ verður reiður er hann frjettir
um þessa ráðabreytni og að gull-
grafarinn Steve Parker hefir fengið
konu ])á, sem honum var ætluð. Hann
reynir að ná fundum Evelyn, en er
gripinn höndum og liefði verið drep-
inn ef læknir einn hefði ekki skorist
í leikinn.
Steve Parker hcfir lagt út í óbygð-
irnar og finnur þar auðuga gull-
nánni, en missir vatnsforðann, sem
hann hefir haft með sjer. En þarna
el' hvergi vatn að fá og eina lífsvon
Steve er sú, að slíta símþráðinn
sem neyðarmerki tii þess að við-
gerðarmenn - komi.
Meðan þessu fer fram hafa þau
Evelyn og læknirinn orðið ástfang-
in hvort af öðru og vonar hún að
maðurinn hennar komi aldrei aftur.
Þegar I)ick Ashton verður var við
neyðarmerkið lætur hann sig það
engu skifta og verður það til þess
að fjelagi Steve deyr, en liann kemst
sjálfur til bygða og tekur Evelyn
frá lækninum.
AUGLÝSINGAKVIKMYND
fyrir bensín og vjelaolíur hefir Shell-
fjelagið látið gera og hefir hún ver-
ið sýnd á Nýja Bíó undanfarin
kvöld. Mynd þessi sýnir hve mikils
virði það er að nota rjettar tegundir
af beiisíni og olíum og hverjar eru
aigengustu ástæðurnar til þess, að
erfitt er að koma hreyflum á stað.
Er þetta gert skiljanlegt með því
að sýna myndir innan úr hreyflun-
urn og hvaða áhrif áburður og mis-
munahdi bensín hefir á þá. Myndin
er einkar skýr og fróðleg, enda fjekk
hún verðlaun cnsks stórblaðs, sem
efnt hafði til samkepni um góðar
auglýsingamyndir.