Fálkinn - 15.11.1930, Blaðsíða 4
4
F A L K I N N
Fjelagsprentsmiðjan á fertugsaf-
mælimæli í ár.En uppruna hennar er
að leita til prentsmiðju þeirrar, sem
Sigmundur heitinn Guðmundsson
stofnaði samkv. leyfisbrjefi 8. nóv.
1883 og var vönduð mjög og hafði
hraðpressu. Rak hann hana til 1887
að hann seldi hana Sigfúsi Eymunds-
syni og fleirum, en Sigfús seldi hana
aftur árið 1890 Halldóri Þórðarsyni
bókbindara og þrem öðrum og hefir
hún heitað Fjelagsprentsmiðjan sið-
an. Stjórnaði Halldór prentsmiðjunni
síðan í 25 ár eða til 1915 að hann
seldi hana núverandi eigendum, þeim
Brynjólfi Björnsyni tannlæknir,
Pjetri Gunnarssyni stórkaupmanni,
Konráð lækni Konráðsyni (en nú er
ekkja hans eigandi að hans hluta)
og Steindóri Gunnarssyni fram-
kvæmdarstjóra. Hafði Steindór verið
yfírprentari prentsmiðjunnar í mörg
ár í.tíð Halldórs og annast rekstur
hennar að mestu leyti. —
Eftir að eigendaskiftin síðustu
urðu fór prentsmiðjan óðum að færa
út kvíarnar. Árið 1916 keypti hún
prentsmiðju Skúla Thoroddsen og
1917 prentsmiðjuna Rún og húseign
hennar við Ingólfsstræti, en þar var
fyrsta sjálfsileggjarapressan, sem
kom hingað til lands. Fluttist Fje-
lagsprentsmiðjan þá í Ingólfsstræti
og er þar enn, en húsið hefir verið
mikið stækkað síðan og er verið að
stækka það á ný þegar þetta er skrif-
að. Hefir fyrirtækið farið mjög stækk
andi síðustu 15 árin undir stjórn
Steindórs Gunnarssonar.
Prentsmiðjan eignaðist fyrstu setj-
aravjelina sem kom hingað til lands
en nú hefir hún þrjár. Ýmsar ný-
ungar hefir hún flutt inn i landið,
svo sem áhöld til að gera með upp-
hleypt letur, dálkastrykunarvjel, á-
höld til gúmmístimplagerðar o. fl.
í Fjelagsprentsmiðjuni hafa verið
prentuð mörg kunn rit, svo sem ís-
lendingasögur. Dagblaðið „Vísir“
hefir verið prentað þar i mörg ár.
Yrði of langt að fara út i upptalning
á þvi, sem prentsmiðjan hefir látið
á „þrykk út ganga“ jafnvel þó að-
eins væri getið þess helsta, því jafn
stórt fyrirtæki og Fjelagsprentsmiðj-
4<J ofun sjast tvær
nijndir teknar sín
frá hvorum enda
setjarasalsins á 2.
hæö. Myndin til
vinstri er af Hall-
dóri Þóröarsyni,
eiganda og for-
djóra prentsmiöj-
unnar í 25 ár, en
til hægri er mynd
:if húsinu á Lauga
veg 2, þar sem
prentsmiöjan var
alla hans tíö.
Til vinstri: mynd
af Steindóri
. Gunnarssyni, .
elsta starfsmanni
FjelagsprentsmiÖj
unnar og fram-
kvæmdarstjóra
hennar og meÖ-
eiganda síöastliö-
in 15 ár. Til
hœgri: Hiö reisu-
lega hús Fjelags-
prentsmiðjunnar
i Ingólfsstræti.
an er, framleiðir ekki neitt smáræði
á ári hverju.Væri það því eigi óálit-
legt bókasafn, ef saman væri komið
á einn stað það af bókum blöðum og
ritum, sem prentsmiðjan hefir látið
frá sjer fara öll hin mörgu liðnu ár.
— Auk þess hefir prentsmiðjan jafn-
an lagt mikla stund á smáprentun
(accidens). Hinir mörgu skiftavinir
prentsmiðjunnar um land alt munu
óska prentsmiðjunni til hamingju
með afmælið.
l
' 'Z'V",
Úr vjelasalnum á neðstu hœö.