Fálkinn - 15.11.1930, Qupperneq 11
F Á L K I N N
11
Yngstu lesendurnir.
Með pappír og skærum.
VitiS þið hvaða börn það eru, sem
leiðist mest? Það eru börnin, sem
eiga svo mikið af ieikföngum, að
foreldrar þeirra vita ekki hvað þau
geta fundið til að gefa þeim á næstu
jólum eða afmælisdegi. Þau fleygja
frá sjer leikföngunum að kalla má
samstundis og rella um að fá annað
i staðinn. -— Altaf nýtt og nýtt.
Þessi börn vita ekki hvað það er
gaman, að geta búið sjer til leik-
föng og annað sjálfur. Leikfangið
þarf ekki að vera stórt eða dýrt
til þess að það sje gaman að því.
Og eitt er víst: að það er meira
gaman að leikfangi sem maður hefir
búið til sjálfur, en hinu, sem keypt
er i búð. Þó að heimatilbúna leik-
fangið sje máske ekki alveg eins
fallegt og hitt, þá bætist þetta upp
með þvi, að maður veit, að það er
eftir mann sjálfan. Og svo hafa pen-
ingarnir sparast og þá er hægt að
nota til einhvers þarflegra.
Til þess að búa til það, sem jeg
ætla að segja þjer frá i dag þarf
maður ekki annað en skæri, svo-
lítið lím og svo pappír. Og þetta er
til á hverju heimili. Og nú skuluð
þið prófa, hvort ykkur þykir elcki
gaman að búa þetta til, sem jeg segi
ylckur frá, og hvort öðrum krökk-
um þykir ekki gaman að leika sjer
að því.
Að setja upp tímatöfluna stna.
Nú eruð þið víst farin að fara í
skólann og eigið tímatöfluna. Þið
viljið náttúrlega fara vel með hana
svo að hún skemmist ekki, og nú
skal jeg segja ykkur hvernig á að
setja hana upp. Þið takið töfluna
og leggið hana á fallegt pappaspjald,
gerið ráð fyrir að spjaldið nái al-
staðar út fyrir, eins og rammi og
skerið svo spjaldið til. í spjaldið
gerið þið fjórar stungur á ská, til
þess að stinga hornunum á töflunni
inn í. Þið mælið með töflunni hvar
stungurnar eiga að vera. Ef pappir-
inn i töflunni er mjög þunnur, er best
að líma hann á pappann.
Brúðuvagga.
Gaflarnir í vögguna eru skornir
úr þykkum bláum pappa og límdir á
eldspítnaöskju. Svo má klippa út
hjörtu eða stjörnur úr öðruvisi litum
pappír og líma á gaflana. ef vagg-
an á að vera veruléga falleg verður
að líma glanspappír með sama lit
og gaflarnir erú, á báða enda.
Brúðuhúsgögn.
t brúðuhúsgögn verðurðu að kaupa
þjer svolitið af hrjúfum pappa, hann
er ákjósanlegur i þau. Litinn get-
urðu valið eftir eigin geðþótta.
Borðplatan og seturnar í stólana
eru skornar út úr venjulegum pappa.
Lim er borið á randirnar á setunum
og síðan er uppistaðan gerð úr hrjúfa
pappanum og setan límd á. Lika má
líma á stólseturnar fóðri; i það get-
urðu áreiðanlega fengið pjötluaf-
ganga hjá henni mömmu þinni.
Borðfótinn býr þú til úr gildri spítu
og vefur hrjúfum pappa utan um, en
festir þunt pappaspjald neðan á hann
svo borðið standi.
í legubekk þarftu ekki annað en
litla pappaöskju, nokkrar pjötlur úr
sirsi og eina silkipjötlu.
Þú leggur pjötlurnar í lag á öskju-
lokið, svo að hann verði mjúkur
(líka má brúka ull) og síðan festir
þú silkipjötluna ofan á, þannig að
hún nái alt í kring undir brúnina á
lokinu, og límir hana þar. Og svo
fóðrarðu hliðarnar á öskjunni, með
sama efni. Og þá er legubekkurinn
orðinn svo fallegur, að þú færð ekki
hans líka í neinni búð.
B
Biðjið kaupmann yðar um
Holmblaðs-spil
^^Greinilegar myndir.=
—=^Haldgott efni.-—
:
| Tækifærisgjafir!
■
■
Naglaáhöld, Burstasett,
■
Ilmvatnssprautur, Ilm-
vötn, Crem, Andlits-
duft, Perluhálsfestar,
■
Armbönd, Hringir,
Eyrnalokkar, ] ömu-
■
töskur og Veski í stóru
úrvali, Samkvæmistösk-
ur, Blómsturpottar, kop-
ar og látún.
■
■
■
| ódýrast í bænum.
■
■
■
■
! Versl. Goðafoss
j Laugavefí 5.
Sími 436.
Vindmyllan er gamalt leikfang,
sem bæði foreldrar okkar og for-
eldrar þeirra hafa líklega búið sjer
til, þegar þau voru lítil. En mjer
datt í hug, hvort að þið kynnuð það.
Að vísu er hægt að fá þær í leik-
fangabúðunum, í öllum mögulegum
litum og gerðum, en úr því að við
getum búið þær til sjálf, þá er betra
að gera það.
Maður tekur sterkan pappa, strik-
ar hann eins og sýnt er á myndinni
og brýtur hann eftir strikunum. Síð-
an opnar þú pappaspjaldið aftur og
klippir frá hornunum fjórum, sem
merkt eru með a, þangað til þig
vantar 1% centimeter á að komast
að miðdeplinum. Nú tekur þú öll
hornin a og heygir þau inn að miðj-
unni, svo að kantarnir nema saman.
Svo stingurðu tituprjón gegnum
miðdepilinn á pappanum og festir
hann í spítu, sem þú notar fyrir
handfang. Myllan snýst enn harðar
ef þú setur glerperlu á prjóninn,
niilli vængjanna og spítunnar.
■ BorS
S Brauð
S Kjöt
! Búr
S Tomat
S Kartöflu
* Ávaxta
■ Smjör
5 Osta
■ Dósa
S Franskbrauðs
S Vasa
j Úrvalið mest. Verðið lægst. ■
j Verslun Jóns Þórðarsonar. j
■ ■
■ ■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
S
Gramiófón-
fjaðrir.
Höfum nú grammófónfjaðrir j
af öllum stærðum fyrirliggj- :
andi. — Viðgerðir hvergi eins j
fljótt og vel af hendi leystar. j
ORNINN,
Langaveg.
Veggfóður I
fjölbreytt úrval
fyrirliggjandi.
■
■
J. Þorláksson & Norðmann j
Bankastræti 11.
Simar 103, 1903 & 2303.
Aðalumboð fyrir
Penta og Skandia.
C. PROPPÉ.