Fálkinn - 21.02.1931, Blaðsíða 4
4
F Á L K I N N
ncðstu hæð aðalhússins er m. a.
bústaður dyravarðar og stór
sundlaug, sem ennþá er ekki full-
gerð, en á efri hæðunum 8 kenslu-
slofur á liverri og vita mót austri
en breiður gangur meðfram vest-
urhhð. I austurálmunni er kvik-
myndasalur á neðstu hæð, þar
eru lækningastofur o, fl. en fjór-
ar kenslustofur á efri hæðunum.
Á miðhæð er ennfremur kenn-
arastofa og skrifstofa skóla-
stjóra en ibúð hans er á efstu
hæð í austurenda álmunnar. Sjer-
stök stofa til náttúrufræðiskenslu
er einnig i þessari álmu. í norð-
urálmunni meðfram Bergþóru-
götu er á neðstu hæð m. a. aðal-
fimleikasalurinn og smíðakenslu-
salur, en á efri hæðunum minni
fimleikasalur, saumakenslustofa,
skólaeldhús og rainna eldhús fyr-
ir matgjafir, matsalur og söng-
salur, en honum hefir til bráða-
birgða verið skift í tvær kenslu-
stofur.
— Borð öll og stólar í kenslu-
stofunum eru með nýrri gerð,
sem ekki liefir sjest hjer áður.
Er það frá Þýskalandi. Á göng-
unum eru þvottaskálarogdrykkj-
arskálar, en svellþykkir linole-
umdúkar á öllum gólfum. Virð-
ist húsið vera mjög vandað ag
ekkert til þess sparað, enda mun
það kosta um hálfa aðra miljón
króna er það verður fullgert.
Eins og kunnugt er, er það alt
hitað með laugavatni og gefst
hitaveitan ágætlega.
Það er einkum í norðurálm-
unni, sem margt er ógert ennþá.
Þrjár systur.
---x----
URO-Punklal
Þessi gler eru heimsfræg! Þau
vernda augun gegn skaðlegum
ljósgeislum. Þau fást hjá BRUUN
Laugaveg 2. ókeypis — en aðeins
nákvæm gleraugnamátun. ódýrar
og sterkar umgerðir. Laugaveg 2.
Þannig mun matreiðslukensla
ekki geta orðið í skólanum í vet-
ur og smíðakensla ekki heldur.
Myndirnar, sem hjer fylgja
hefir Magnús Ólafsson tekið. Er
sú fyrsta af ganginum fyrir utan
kenslustofurnar í aðalhúsinu.
Efri myndin á þessari blaðsíðu
er af skólaliúsinu að utan, en sú
neðri af börnunum í einni
kenslustofunni.
Amerískur hattagerðarmaður ljet
festa upp auglýsingar á öll götuhorn
og auglýsingasúlur borgarinnar.
„Millers hattar eru þeir bestu í
heimi! Jafnvel Chaplin notar þá ein-
göngu!“ Næsta dag hafði keppinaut-
ur hans látið líma neðan á auglýs-
inguna orðsendingu á þessa leið: „Og
þess vegna hlær allur heimurinn að
honum!“
Sigríður Halldórsdóttir, Lauga-
veg 67, varð 76 ára ágúst.
Hagnh. Halldórsdóttir, Hólma-
hjáleigu í Landeyjum varð 70
ára 17. þ. m.
Ingibiörg Halldórsdóttir, Arn-
argötu 12, verður 66 ára 3. mars.