Fálkinn


Fálkinn - 21.02.1931, Blaðsíða 11

Fálkinn - 21.02.1931, Blaðsíða 11
P A L K I N N 11 Yngstu lesendurnir. Barna golf. I. Kafli. Þið hafið sjálfsagt lieyrt getið um þennan merkilega leik, sem skyndi- lega er nú farið að leika um víða veröld. Og það sem allur heimurinn hefir gaman af, hlýtur líka að vera ykkur til skemtunar. Við skulum nú búa okkur til leik nieð níu brautum. Það er algengast. Það er um að gera að bað kosti ekki mikiS, því nú er ekki svo mikið um peninga sem stendur, og það er vel hægt fyrir laghenta drengi og telpur að búa það helsta til sjálf. J2 5 2. Önnur braut er búin til úr þak- rennuspotta. Við Iátum annan endann A. Öll brautin. f staðinn fyrir kylfu getum við notað göngustaf, sem við snúum við. En kúluna sjálfa komumst við ekki hjá að kaupa. Það verður að vera rjett tegund. Hindranirnar búum við til úr fjölum, sem eru hálfur annar sentímeter að þykt. x Miðho'lan er búin til úr stifum ]>appa, er hann vafinn upp eins og ])egar búin eru til kramarhús, klipt- ui' til og límdur þannig saman, síð- an er oddurinn kliptur af. Það má einnig láta búa hann til úr blikki hjá blikksmið. Ilolan á að vera 15 senti- metra að þvermáli, sjálfur hringur- inn um 40 sm. að þvermáli. „Kram- arhúsiS" má ekki vera hærra en 4 sentimetra því þá verSur erfitt að komast i holuna. Það er nefnilega ætlunin að hægt sje að slá kúluna með einu höggi gegn um hindran- irnar og inn í holuna. li. Fursta braut. 1. Fyrstu braut látum við vera hlið. Það er búið til úr spítu, sem er 30 sm. löng og 10 sm. há, opið er 7 sm. breitt. Að aftan er það stutt með tveimur þríhyrningum. hvíla á þrepi um 20 sm. háu. 3. Þriðja braut er brú, sem vegur salt á tveimur ásum og vígishlið að baki. Brúin á að vera 10 sm. breið og 35 sm. liing. Ásinn, sem brúin velt- ur á, á að vera nákvæmlega undir miSri brú og liggja 8 sentimetra liátt á stólpunum. HliSiS á að vera 8 sm. hreitt. skiftum því sundur í miSju með slólpa. Breidd alls hliSsins á aS.vera 14 sentim. Stólpinn er negldur aftan á hliðið ofanvert. 1). Fimta braut. 5. Nú komum við að hábrúnni. Hún er 25 sentimetrar að hæð með af líðandi brekkum upp og niður af henni og handriðum báðum megin alla leið. fc 7 0. Brekka og stökkpallur. Brekkan er 25 sentim. löng og hækkar svo hún verður 10 sm. Stökkpallurinn á að vera 12 sm. hár og er látinn vera 10 sm. frá brekkunni. E. Sjöunda braut. 7. Hæð með gildru, 25 sentimetra breið að neðan og 18 sm. að ofan. Þeim megin sem slegið er, eru negldir nokkrir naglar sitt livoru megin við brautina, svo rennaiv sem knöttur- inn á að fara í gegnum verSur ekki breiðari en 8 sentimetrar. F. Áttunda braut. 8. Lögregluþjónninn og bilarnir. Lögregluþjónninn stendur svo gleitt að það eru nákvæmlega 7 sentimetrar milli pallanna, sem hann er festur á. Fjórar bækur eru lagðar á hvolf í áttina til miSholunnar, þannig að kúlan hlýtur að fara í ákveSna átt. F. Níunda braut. 9. Hliðin eru tvö og tvöfaldar hindranir. Þessi braut er 40 senti- metra löng og 25 sentiinetra breið. 3 sentimetrum frá endánum er búin til girðing úr stórum nöglum. Á miðri brautinni er látinn vera auð- ur vegur sem er 10 sentimetrar á breidd. 10 sentimetrum lengra niðri á brautinni er búin til önnur hindr- un, það er stór skrúfa, 10 sentimetr- um frá henni eru hliðin. Hliðin eru 8 sentimetra víð. Stykkið milli hlið- anna 4 sentim., 10 sentim. frá þvi ei hallandi. II. Kafli. Leikreglur. Kúlan er látin vera 75—100 senti- metra frá hindrununum, eftir því hvað leikvöllurinn er stór. Hún er slegin gegnum hindranirnar inn í miðholuna i hvert skifti. í hvert skifti, sem slegið er með kylfunni, fær sá sem leikur eitt stryk. Það má slá fjórum sinnum til þess að komast gegnum hverja hindrun. Hepnist honum ekki i þessi fjögur skifti að komast inn í miðholuna með kúluna (það þarf náttúrlega ekki að vera í sama höggi og hann komst gegnum hindranirnar) fær hann finun stryk að heldur svo á- fram að næstu hindrun án þess að cndurtaka tilraunirnar við hið fyrra. Það er um að gera að komast eft- ir brautinni meS sem fæslum stryk- um; 15 stryk er mjög gott, 22—24 er algengast. III. Kafli. Hvernig á að haga sjer við hindr- anirnar. 1. Kúlan er lögð eins og sagl hefir vcrið frá og er slegin beint inn í miðholuna. 2. Kúlan verður að fylgja rennunni alla leið, hoppi hún út yfir brúnina fær leikandinn eitt stryk og verður að byrja aftur. 3. Kúlan er slegin upp eftir brúnni, um leið og hún fer yfir brúarásinn á hann að vera svo liSugur að brúin falli strax niður þeim ntegin, og síð- á kúlan að renna áfram inn í gegn- um hliðið. jieppnist þetta ekki i einu höggi verður að byrja fyrir framan brúna aftur og leikandinn fær eitt stryk. 4. Farið að eins og í 1. 5. Farið að eins og í 2. 0. Kúlan á að renna upp brekkuna og yfir pallinn. 7. Kúlan á að renna upp eftir allri hæðinni og fara gegnum gildruopið. 8. Kúlan á að renna milli fóta lög- regluþjónsins og velta alla leið milli bókanna í einu höggi. Mishepnist það verður að byrja að nýju, og leikand- inn fær eitt stryk. 9. Kúlan á að fara gegnum hliðið á girðingunni inn um annað hliðið og fara alveg af brautinni í einu höggi. Munið það að í hvert sinn, sein kúlan hefir farið gegnum hindrun á hún að fara i holu. Það er best að leika þetta á stóru gólfteppi. Ef kúlan lendir þannig að ilt sje að komast að henni til að slá hana er leyfilegt að flytja hana 10 senti- metra í hagkvæmari átt. Eitl skulið þið gera þið skulið skíra alla stgðina, sem þið þurfið að komast í gegnuin einhverjum skrípilegum nöfnum. Það gerir leikinn skemtilegri. Þið getið málað nöfnin sjálf á hlutina. Gott ráð: Sláið ekki of fast. Eftir þessa nákvæmu tilsögn liljót- ið þið að verða afar dugleg og jeg óska ykkur góðrar skemtunar. Óður hundur beit nýlega kven- mann í fótinn suður í Budapest —• og konan ljest af því skömmu síðar. Hundaæði er mjög sjaldgæft, eða að minsta kosti mjög sjaldgæft að óðir hundar verði fólki að bana. -----x----- er bragðbest og drýgst. Húsmæður! Reynið einn pakka í dag. Fæst allsstaðar. Líftryggið yður þar sem kjörin eru best. Úr ársreikningi Lífsábyrgðarfjel. Thule h.f. 1929: Árstekjur .... kr. 4.621.189.52 Þar af til hluthafa — 30.000.00 (Hluthafar fá aldrei hærri upp- hæð, skv. samþyktum fjelagsins). Lagt i sjóði fjel. kr. 326.272.00 Til hinna trygðu — 4.264.917.52 (yfir 92% af öllum ágóða fjel.). Ágóðahluti hinna trygðu útborg- ast árlega að 5 tryggingarárum liðnum, og er ekki hærri 1929 en önnur ár. Lífsábyrgðarhlutafjelagið T H U L E . Aðalumboðsmaður fyrir ísland: A . V. TULINIUS, Eimskipafjelagshúsinu, 2. hæð. Simi 254. Simn.: TULIN. Umboðsmenn óskast allsstaðar, þar scm ekki eru umboSsmenn i nágrenninu.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.