Fálkinn - 14.03.1931, Síða 10
10
F A L K I N N
Komið eða
skrifið tU
URO-GLER
okkar.-------
sem útUoka hina
skaðlegu liósgeysla.
Ókeypis fller-
---------------- auflnamátun.
IEina verslunin sem
hefir sjerstaka ran-
sóknarstofu með öU-
um nýtísku áhöldum.
Laagavegs Apotek.
Vandlátar húsmæður
kaupa
Hjartaás-
smjörlíkið.
PABRIEKSMERK
„Sirius“ súkkulaði og kakó-
duft velja allir smekkmenn.
5 Gætið vörumerkisins.
Fyrir kvenfólkið.
DROTTNING EYÐIMERKURINNAR
Stúlka þessi, sem er arabisk að ætt,
komin af gamalli arbiskri konungs-
ætt, hefir í liuga að láta gera sig að
drotningu yfir nokkrum hluta Sahara
og landi því, sem liggur að Rauða-
hafinu. Sagt er að hún hafi um sig
öflugan flokk og ætli að halda honum
gegn hinum evrópisku yfirmönnum,
svo framarlega sem þeir ekki fallast
á fyrirætlanir hennar.
Kunnið þjer að sjðða
grænmeti?
Þrens er að gæta þegar sjóða á
grænmeli og það er: hragð, næring-
argildi og útlit, og j)ví miður verð-
ur eitthvað af því á hakanum í suð-
unni, svo við verðum að gera okk-
ur grein fyrir hvað við metum mest
af þessu þrennu, hvort það er hið
fagra útlit, bragðið eða þess að gæta
sem mesta næringargildi þessarar
fæðutegundar.
Það sem fyrst og fremst gerir
grænmeti að þýðingarmikilli fæðu-
tegund, er að það inniheldur málm-
sölt og bætiefni (vitamin), sem leys-
ast auðveldlega upp í vatni og hverfa
þessvegna að meira eða minna leyti
í suðunni. Grænt og mislitt „græn-
meti“ er einkum auðugt af hætiefn-
um.
Vanalega er sett dálítið af ,natroni‘
úl í pottinn þegar soðnar eru ýms-
ar grænmetistegundir, svo scin kál,
spínat, grænar haunir o. s. frv. til
þess að liturinn haldist, eða til að
gera hann ennþá sterkari. En natron
er eyðileggjandi fyrir bætiefnin, og
þessvegna verðum við að gera okk-
ur ljóst hvort við heldur i'iljum
missa.
Sje jeg spurð, hverju beri að mæla
með, skrifar hinn kunni danski mat-
fræðingur, frú Karen Brae, þá myndi
jeg segja að það væri undir þvi kom-
ið hverjar hinar fæðutegundirnar
væru og svo eftir árstiðum.
Sje nóg um aðra bætiefnaríka
fæðu, svo sem salöt, tómötur ávexti
eða annað, gerir ekkert tii þó eitt-
hvað af bætiefnunum, sem eru i
grænmetinu fari forgörðum, þess þá
heldur, sem það er gullin regla, sem
ekki má gleymast að maturinn er
ekki aðeins fyrir munninn, heldur
líka handa auganu — það eykur iyst-
ina að hann sje fagur ’á að líta. Það
má því skoða það, sem algilda reglu,
einkum þar sem mikið er um ávexti
að nota megi natrón á sumrin en
ekki á veturna.
Málmsöltin ieysast upp við suðuna
eins og þegar hefir verið nefnt og
það segir sig sjálft að jiað má ekki
sjóða grænmeti of mikið, eða meira
en nauðsynlegt er.
Sje grænmeti soðið við mikinn eld
hættir því við að meyrna og fara í
sundur að utan áður en það er soð-
ið að innan, en á hinn hóginn tap-
ar það ekki eins miklu af bæti-efn-
um og söltum eins og þegar það er
látið mollast yfir eldinum.
Það hefir ennfremur mikið að
segja fyrir útlit grænmetisins hve-
nær það er saltað. Grænar baunir
t. d. skorpna saman sjeu þær salt-
aðar of snemma, hlómkál verður
rauðleitt ef látið er of mikið salt i
vatnið, á hinn bóginn má ekki draga
að salta grænmetið þangað til það
er orðið meirt þvi þá sýgur það ekki
i sig saltið svo sem þarf.
Auk þess verður að muna það að
grænmeti, sem soðið er of mikið
er alt i senn ljótt, næringarlítið og
vont á bragðið.
Þegar alls þess er gætt, sjest að
það er meiri vandi að sjóða græn-
meti en margur heldur.
Yfirleitt má segja það, að best sje
að sjóða grænmetið þangað til það
er rjett aðeins orðið meyrt og meira
ekki. Það verður að vera stíft en
þó ekki hrátt að innan. Hvað „mis-
litt“ grænmeti snertir, verður jiað
best gert með þvi að sjóða það í eins
litlu vatni eins og hægt er að kom-
ast af með. Vatnið þarf ekki að fljóta
yfir grænmetið í pottinum en aðeins
þekja það að hálfu leyti eða jafnvel
ekki nema einn þriðja hluta þess.
Það er sett yfir eld svo að suðan
komi fljótt upp á því, þegar einn
þriðji liluti suðutímans er liðinn er
saltinu stráð yfir (samtímis er mat-
rónið sett útí, sje það annars notað)
og síðan er það soðið vel tillukt við
góðum hita, en helst ekki svo mik-
inn að það fari sundur.
Broddkál og Savoykál er soðið á
sama hátt, en áður skorið í fjóra
hluti.
Ilvitt „grænmeti“ verður best með
því að sjóða það í svo miklu vatni
að fljóti yfir. Það er látið sjóða og
saltað þegar það hefir soðið i 5 mín-
útur.
Sumir setja dálitið af sítrónusafa
eða ediki út í vatnið til þess að
skerpa litinn, en sje notað eins mik-
ið og þarf til þess að það hafi nokk-
ur áhrif, er mjög mikil liætta á að
það finnist bragð að kálinu, og naum
ast er það heldur til að auka bæti-
efnin.
Þessvegna er heppilegra að sjóða
það eins og fyr er sagt.
Gufusuða á grænmeti er mjög góð
með tilliti til næringargildis fæðunn-
ar, en verður vanalega dýrari.
Æfintýri þjónustustúlk-
unnar.
Þessi mynd er af þjónustustúlku
á írsku veitingahúsi í London. Um
daginn bar það við, að hún fjekk
Ferrosan
er bragðfíott og styrkjandi
járnmeðal
og ágætt meðal við blóðleysi
og taugaveiklun.
Fæst í öllum lyf jabúðum
í glösum á 500 gr.
Verð 2.50 glasið.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
VAN HOUTENS
konfekt og átsúkkulaði
er annálað um allan heim
fyrir gæði.
óvænt tilkynningu um, að maður
hennar væri orðinn lávarður og hefði
erft auð mikinn eftir föðurhróður
sinn. Maður hennar er daglaunamað-
ur-í Ástralíu. Hann var nefnilega at-
vinnulaus og fluttist þangað suður.
Var svo um talað milli lijónanna, að
hún skyldi verða eftir i Englandi og
eigi koma suður til Ástraliu fyr en
hann væri búinn að koma sjer vel v
á laggirnar þar syðra. Hún fjekk vist
á veitingahúsi og vann fyrir sjer.
Hvorugt hjónanna hafði hugmynd
um, að þau áttu arf og titil í vænd-
um. Þegar þetta er skrifað er maður-
inn ókominn frá Ástralíu, og hún er
áfram í vistinni. En undireins ag
hann kemur flytja hjóninn til írlands
og taka þar við afarstórum búgarði.
-----------------x-----
Á heimili einu í Le Havre varð
fyrir skömmu sá óvenjulegi atburður
að koddi húsbóndans sprakk. Var
sprengingin svo sterk, að rúðurnar í
lierberginu molnuðu í srnátt. Sem bet-
ur fór skeði þetla að degi til, því að
annars liefði húsbóndinn orðið illa
úti. Honum varð mjög um atburð-
inn, þvi að hann hafði sofið á þess-
um kodda í fjögur ár, án þess að
vita, að hann var stoppaður með —
skotbómulll