Fálkinn - 20.06.1931, Qupperneq 8
8
F Á L Ií I N N
Matvælaráðherra Þjóðverja,
Schiele hefir öllum á óvart beitt
sjer fyrir, að hækka innflutn-
ingstoll á smjöri um helming,
eða úr 50 upp í 100 mörk á hver
100 kg. Er smjörframleiðslu-
þjóðum eins og Dönum illa við
þetta, en jafnframt virðist mál-
ið ætla að valda sundrungu itxn-
an stjórnarinnar. Að minsta
kosti hefir verkamálaráðherr-
ann, Stegerwald hótað því að
segja af sjer, ef frumvarpið nái
fram að ganga. Efri myndin er
af Schiele en sú neðri af Steger-
wald.
Snowden fjármálaráðherra Breta hefir nýlega lagt fyrir neðri
málstofuna fj'umvarp um jarðskatt, samkvæmt kenningum IIen-
ry George. Vill hann láta jarðeigendur greiða einn penny af
hverju sterlingspundi sem jarðeignir þeirra eru metnar. Á
myndinni sjest Snowden er hann leggur frumvarpið fram. Segir
hann að verkamannaflokurinri muni fylgja þessu frumvarpi
með oddi og egg.
Til Turin munu margir korna í
sumar, eigi síst kaþólskir, menn,
því að þar verður til sýnis í
fyrsta sinn á þessari öld, einn af
helgustu dómum kaþólsku
kirkjunnat: likklæði og sveita-
dúkur Krists. Er það grófgerður
dúkur, en sýnir rnynd af líkama
Krists, þar sem blætt hefir úr
likamanum: af sárinu eftir
spjótlagið á vinstri hlið og eftir
naglaförin á höndum og fótum.
Líkklæði þetta hefir varið rann-
sakað af vísindanefndum, sem
Alveg nýlega voru tilraunir gerðar til gagnbyltingar af hálfu konungssinna á Spáni. Hafa
þeir róið undir af kappi og tekist að vekja blóðugar óspektir víðsvegar, einkum í hinum
stærri borgum. Eitt aðalblað þeirra, sem heitir „A. B. C.“ hefir einkum staðið framarlega
í flokki um þetta. En lýðveldisstjórnin tók röggsamlega í taumana og Ijet hart mæta
hörðu. Fangelsaði hún ýmsa helstu forsprakkana og batinaði útkomu skæðustu blaðanna,
ennfremur hefir hún sett af lögreglustjóra í ýmsum bæjum, er þeir hafa ekki sýnt sig því
vaxna, að bæla niður óeirðirnar. Fjöldi borga er enn í umsátursástandi, þar á meðal Se-
villa og Cadix, en frá síðarnefndri borg er myndin hjer að ofan. Stjórnin dregur ekki dul
á, að hún ætli sjer að gera upptækar allar eignir Alfons konungs sem til næst og hefir enn-
fremur sett menn til að rannsaka öll framlög til hans, eftir að Rivera komst til valda 1923,
því að hún gefur í skyn, að konungurinn hafi gert sig beran að fjárdrætti.
páfastóllinn hefir skipað og
hafa þær talið það upprunálegt
og ekta, og draga ekki í efa, að
þetta sje dúkur sá, sem líkami
Krists var sveipaður í, þegar
hann hafði verið tekinn af
krossinum. Fyrst var dúkurinn
eign fjölskyldu einnar í Jerú-
salem. Þegar Arabar unnu
landið helga var hann fluttur til
Miklagarðs en þaðan fluttu
krossferðamenn hann lil Trois
í Frakklandi og síðan var klæðið
gefið konungsfólkinu af Savoy-
ættinni og var um tíma geymt í
dómkirkjunni í Milano, en árið
1568 var það flutt til Turin og
komið fyrir í loftþjettu silfur-
skríni, en sjerstök kapella var
bygð fyrir skrínið. Skrínið er
ekki opnað nema við sjer-
staklega hátíðleg tækifæri; hef-
ir páfinn einn lykil að því,
erkibiskupinn í Turin annan oy
krónprins Italíu hinn þriðja. Á
síðustu öld var skrínið aðeins
opnað sjö sinum og nú verður
það optiað í fyrsta sinn á þess-
ari öld. Vitanlega heldur dúk-
urinn sjer betur fyrir það að
hann verst árásum lofts og ryks
í hinum góða geymslustað. Á
myndinni sjest að ofati partur
af dúknum með mynd af and-
liti Krists en að neðan silfur-
skrínið á sínum stað í kapell-
unni í Turin.