Fálkinn - 20.06.1931, Blaðsíða 9
F Á L K I N N
y
Múhameðstrúarmenn bygðu sjer musteri (moské) í París fyrir
nokkrum árum og er það einskonar aðalhof þeirra í Véstur-
Evrópu. Fyrir skömmu hjeldu þeir fórnarhátíð í musterinu og
sýnir myndin sauðina, sem fórna skal.
Þýsku unglingarnir eru hneigðir lil ferðalaga og i öllum lönd-
um gera „farfuglarnir“ vart við sig. Fara þeiv syngjandi um
vegina eða leika á hljóðfæri, lil þess að Ijetta sjer göhguna.
Hjer á myndinni sjest gamalt og nýtt mætast. Myndin er tekin
skamt frá Kairo oy sýnir ferð á bifreiðum og úlföldum.
Willingdon lávarður hefir nú tekið við stjórn Indlands. Þó að
fyrstu kveðjurnar sem hann fjekk væri kaldar, gera menn sjer
vonir um, að hann verði vinsæll í Indlandi og að kyrt verði í
landinu um sinn, því að á indversku ráðstefhunni i vetur Ijetu
fíretar undan um ýmislegar rjettarbætur, svo að Gandhi hjet
því að láta af hinni neikvæðu andstöðu við fíreta, ef loforð ráð-
stefnunnar yrðu haldin. Hjer á myndini sjest Willingdon er
hann kom i fyrsta sinn til fíombay og heilsaði ýmsum indversku
furstunum.
Htl MWMilwftwMÍW
Nýlenda Spánverja í Marokko hefir löngum verið þeim erfið.
Hafa Spánverjar jafnan orðið að hafa þar mikinn her og stund-
um varið ðgrynni fjár til þess að halda landsmönnum i skefj-
um en þó ekki tekist. Hinsvegar hafa Spánverjar sem engar
tekjur af landinu. Hefir það þvi komið til mála hjá nýju stjórn-
inni, að sleppa öllu tilkalli til Marokko og láta Kabylana lifa
eins og þá listir.