Fálkinn - 27.06.1931, Síða 9
F Á L K I N N
Evrópu flestum stundum, og aldrei orðið neitt að. Og i byrjun
næsta mánaðar er gert ráð fyrir að skipið komi lil Reykjavíkur
ef næg þáttaka farþega fæst og ef nógu margir vilja senda brjef
með loftskipinu. Því nú tekur það pósi, bæði til Reykjavíkur og
frá og þó að burðargjaldið sje nokkrum sinnum lxærra en það
venjulega, mái búast við að margir vilji nota sjer tækifærið,
vegna frímerkjanna. Umstögin af brjefum, sem send eru með
Zepþelin-skipinu þessa ferð, komast nefnilega áreiðanlega i mjög
hádl verð vegna þess hve sjaldgæf þau eru, og ekki er hvað síst
áistæða til að ætla að svo verði með íslensku frímerkin, sem
fyrirfram eru sjaldgæfari en flestra þjóða frímerki. — Myndin
að ofan I. v. er af dr. Eckener og Lehmann skipstjóra, en t. h.
af Sir Hubertus Wilkins og þar bak við mynd af leiðinni sem
hann ætlar að fara. Myndin að neðan t. v. er af „Graf Zeppelin“
er hann flaug nýlega yfir ráðhúsið í Kaupmannahöfn. En að
neðan til hægri sjest kafbáturinn „Naulilus“. Sennilegast er að
hann komist aldrei iil norðurheimskautsins, því að báðar hreyfi-
vjelarnar biluðu á leiðinni yfir Atlantshaf og var báturinn
nauðulega staddur, svo að skip urðu að koma honum til hjálpar
og draga hann. Wilkins kennir því um að yfirbygging bátsins
sje svo mikil, að hann eigi erfitl með að sigla um rúmsjó, ef
storma gerir, og áður en hann fór frá New York Ijet hann svo
ummælt, að leiðin austur yfir Atlantshaf mundi verða erfiðasti
áfanginn í ferðalaginu. En báturinn hefir margsýnt, að hann er
svo ótraustur, að það má heita óðs manns æði að leggja honum
í ferðalag undir heimskaulaísana.
Um fált hefir verið meira lalað í vor, en hina fyrirhuguðu
för kafbátsins „Nautilus“ neðansjávar norður að heimskauti.
Hinsvegar er mimui um það talað, að „Graf Zeppelin“ ætli til
heimskautsins um sama leyli og jafnvel hitta Wilkins þar. Því
að svo mörg frækileg ferðalög á „Graf Zepp“ nú að baki sjer,
til dæmis kringum jörðina og margsinnis yfir Atlantshaf, að
fæstum dellur annað í hug, en það sje honum barnaleikur að
komast á heimskautið. En kafbátsförinni hafa menn minni trú á,
enda blæs ekki byrlega fyrir henni. Bátnum hleklist á er hann
var á leiðinni austur yfir Atlantshaf og varð að draga hann til
London. Er mjög óvíst að leiðangursmenn hafi hug til að leggja
upp á honum í hina miklu hættuför, efiir skakkaföllin, sem
hann hefir þegar orðið fyrir. Og í öðru lagi er ekki ialið viðlit
að leggja í ferðina seinna en 10. júlí en menn efast stórlega um,
að káfbáturinn verði ferðbúinn frá Spitzbergen svo snemma.
Er þá i ráði að reyna bátinn í stuttar ferðir undir ísbrúnina
fyrir norðan Svalbarða.
„Graf Zeppelin" hefir i sumar verið í skemtiferðum um