Fálkinn - 12.12.1931, Side 4
4
F Á L K I N N
Stóri Kláus
og
Litli Kláus
Þessar Ivær myndir eni af áf-
hjúpun minnisvarða Hannesar
Hafstein 1. desember síðastlið-
inn. Sjest líkneskið óafhjúpað á
annari myndinni oy Matthías
Ólafsson við fótstallinn að
halda ræðu sína, en á hinni
myndinni sjest likneskið af-
hjúpað. Rjett er að geta þess, að
það var ranghermt í síðasta
blaði, að Matth. Ólafsson væri
formaður minnisvarðanéfndar-
innar. Formaður nefndarinnar
er Kristján Bergsson fiskifje-
lagsforseti.
Leikfjelagið hefir nýlega tekið
til sýningar barnaleikinn „Stóri
Kláus og Litli KIáus“ gerðan
eftir hinu vinsæla æfintýri Ii'.
C. Andersens. Eru það aðallega
ungir leikendur, nýliðar hjá
leikfjelaginu, sem leika í þess-
um leik, nema frú Marta Kal-
man, sem hefir þar stórt hlut-
verk. Leikur þessi á fyrst og
fremst erindi til barnanna, en
fullorðið fólk hefir líka gaman
af að horfa á hann. Því að hann
er skemtilegur og fjörlega leik-
inn. Birtast hjer nokkrar mynd-
ir úr leiknum.
Frú Marie Ellingsen verður
fimtug á morgun.
Dýraljéð.
Dr. Guðmundur Finnbogason
hefir valið úr ljóðum íslenskra
skálda ýms kvæði sem snerta dýrin
og ísafoldarprentsmiðja gefið út.
Hefst bókin með hestavísum og ljóð-
um og endar sá kafli með kvæðinu
„Fákar“ eftir Einar Benediktsson.
Næst kemur kveðskapur um kýrnar,
þá kindurnar, þá hunda og ketti og
tófur. Og áfram er haldi'ð, músinni
er ekki gleymt, ekki selnum og vit-
anlega ekki fuglunum. Virðist valið
á ljóðunum hafa tekist prýðilega
eins og vænta mátti af dr. Guð-
mundi.
Útgáfan er vönduð, hæði að prent-
un og pappír, og er þó verð bókar-
innar lágt. Framan við aðalkaflana
i hókinni eru ágætar myndir af ýms-
um dýrum. Verða eflaust margir til
að kaupa bókina. Þarna eru kvæði
rúmlega 50 höfunda, kvæði sem sýna
hið nána samband þjóðarinnar og
dýranna.
Apinn, sem reykir sígarettur.
Sjimpansi nokkur í dýragarðin-
um í London, gerir ákaflega mikla
lukku, af því að hann reykir sígar-
eltur og ber sig engu ver að því
cn vönustu menn. Hann heir Bo-Bo.
Er hann ákaflega sólginn í þetta, og
rjetlir hann altaf út hendurnar eft-
ir nýrri og nýrri sígarettu.
Slanda menn í hópum fyrir framan
apabúrið og þykir mesta gaman af
því að sjá hann reykja.
er fallegt
barómeter.
Stórt og gott
órva! i
Gleraugnabúðírml, Laugaveg 2.