Fálkinn


Fálkinn - 26.03.1932, Page 8

Fálkinn - 26.03.1932, Page 8
8 F A L K 1 N N Chicago er í svo mikilli fjárþröng, að til mála hefur komið að loka skólunum og taka upp útvarpskenslu í staðinn. Mynd- in hjer að ofan sýnir Michigan Boulevard í rigningu. T. v. sjesl hinn frægi skýjakljúfur Wrigleys, þess sem kent hefur heim- inum að tyggja jórturleður. Ameríkanskir verslunarmenn náðu í þennan 13 mámaða gamla fílsunga á Malakka og höfðu hann með sjer til Bandaríkjanna og sýna hann þar. Hann jetur finim lítra af hrísgrjönum og mjólk á dag, auk alls sælgætisins, sem áhorfendurnir gefa honum. Þrátt fyrir kreppu og óáran vill fólkið fá blaðið silt eins og vant er. Enginn getur verið áin þess, jafnvel ekki Rússar, nú orðið. Myndin hjer fyrir ofan er úr rússnesku þorpi og sýnir bæjarpóstinn koma með blaðið til bóndakonu einnar. Eins og kunnugt er fjekk Gand- hi kaldar viðtökur hjá ensku yfirvöldunum í Indlandi þegar hann kom heim af ráðstefn- unni í London í haust. Hann var sendur beinl í fangelsi. Enn- fremur var Vallabhai Patel for- seti sjálfstæðisþingsins settur inn og sömuleiðis kona Gandhis en hún var fljótt látin laus aft- ur. Iijer á myndinni sjást til hægri kona Gandhis og að neð- an Patel til hægri og Gandhi til vinstri.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.