Fálkinn - 26.03.1932, Blaðsíða 9
F Á L K I N N
9
•.vV'-
WmSilk
■ SSM
Þessi mijnd er fra Tatra, sem er í Karpatafjöllnm, milli Pól-
lands og Tjekkóslóvakíu, og sýnir pólska bændur á leið heim
til sín frá kirkju, í hinum einkennilegu sleðum, sem þeir nota
þar í fjallabygðunum. Er oft sprett úr spori niður i móti, því
karlarnir eiga góða hesta.
fíula styrjöldin magnast í sífellu og stórveldin eða þjóðabanda-
lagið geta ekki við neitt ráðið og verða að viðurkenna van-
mætti sitt. Framan af voru það aðeins smáskærur, sem urðu
milli Japana og Kínverja, en efiir að Japanar settust um
Shanghai fór gamanið að grána og þótti sýnt að Japanar ætl-
uðu að kúga Kínverja með því, .að taka fyrir alla flutninga
til þeirra, en Shanghai er mesta verslunarborg Kína, sem kunn-
ugl er. Hafa orðið mannskæðar orustur í náind við Shanghai og
auk þess er barist á norðurvígstöðvunum, í Mandsjúríu. Hafa
Japanar nýtísku hergögn, fjölda flugvjela, ágæt herskip, lang-
drægar fallbyssur og gnægð af handsprengjum. lijer á mynd-
inni siest að ofan iapönsk fluav
I>að þykir spennandi er knötturinn fer i mark, hvori heldur
er í knattspyrnu eða i hoekey. Fólkið þorir varla að draga and-
ann — þangað til knötturinn er kominn í markið og ærslin
byrja. Myndin er tekin í Davos, af hockeyleik milli Englend-
inga og Þjóðverja.
Rjetl áður eix afvopnunarstefnan í fíenf hófst hleyptu
Bretar af stokkunum nýjasta kafbáti sínum, sem skírður hefir
verið „Sturgeon“. Er hann einn af þremur stórum kafbátum.
sem fíretar ákváðu að smíða árið 1929.
Myndin er tekin í Lake Placid í Bandaríkjunum, þar sem
skauta- og skíðasamkepni Olympsleikjanna fór fram í febrú-
ar í vetur. Norðmenn urðu hlutskarpastir, þá fíandaríkjamenn
og næst Canadamenn.