Fálkinn - 10.12.1932, Page 7
F Á L K I N N
7
I RJÓSÖM SKJALDBAKA
í Ástralíu reka menn skjaldböku-
bú, að sínu leyti eins og strútabú
eru rekin i Afríku og refabú á
Norðurlöndum og víðar. Skjald-
bökukjötið þykir afbragðs maima-
fœða og eru sum dýrin alin til
slátrunar, en önnur til undaneldis.
Líka er tekið tiilit til þess við val
á skjaldbökunum að skildirnir sjeu
fallegir. Skjaldbökurnar verpa eggj-
um og skifta þau hundruðum hjá
sumum tegundunum. Þau eru graf-
in niður i sandinn og ungast þar
út í sólarliitanum á þremur til átta
vikum hjá sævarskjaldbökum, en
egg fenjaskjaldbökunnar eru á ann-
að ár að ungast út. Hjer sjest skjald
baka með unga sína á skjaldböku-
búi í Ástralíu.
FURSTABRULLAVP í KOBURG
Hinn 19. og 20. október fór fram
óvenju viðhafnarmikið brúðkaup,
er Gústaf Adolf, sonur ríkiserfingj-
ans sænska og Sibylja dóttir her-
togans i Koburg voru gefin sam-
an. Fyrri daginn voru þau gef-
in saman borgaralega í Alte-Yesle-
höllinni, af borgarstjóranum í Ko-
burg og voru ekki aðrir viðstadd-
ir en ýmislegt tiginborið fólk, sem
boðð var i brúðkaupið, en það var
05 talsins. Um kvöldið var haldin
almeiin brúðkaupshátið og allir
viðstaddir, sem vetlingi gátu vald-
ið, en 4000 manns gengu í blysför
um göturnar, en íþróttasýningar og
ræður voru haldnar. Daginn eftir
fór svo fram kirkjulega vígslan, svo
að eiginlega eru ungu hjónin tvi-
gift.
Þó að gestirnir, sem boðnir voru
væri 65 urðu þó sumir að senda
afboð. T. d. gat Gústaf Svíakonung-
ur, afi brúðgumans ekki komið og
sömuleiðis ekki prinsinn af Wal-
es. Alt fór þetta fram eins og kon-
ungleg hjónabönd gerðu fyrrum,
þó að furstinn, faðir brúðgumans
hafi engjn völd lengur. Þarna voru
fyrst og fremst foreldrar brúð-
hjónanna, Ferdínant Búlgarakon-
ungur, kona Cyrills stórfursta, sem
telur sig keisara Rússlands, Rupp-
recht konungur af Bayern og kona
lians, stórhertogahjónin af Olden-
burg, Vilhjálmur Prússapríns —
all fólk, sem hefir mist tignina
fyrir löngu. Ennfremur var þarna
fjötdi sænskra prinsa og prinsessa,
Haraldur Danaprins með konu og
krakka og Ólafur Norðmannaprins
og kona hans. Ástæðan til þess,
að brúðkaupið fór fram í þessum
stíll má eflaust telja núverandi
stjórnarstefnu í Þýskalandi. Þar
var enginn lýðveldisbragur á, en
Nazistar höfðu sig mjög i frammi.
Koburgs-furslaættin er siðan á
11. öld og hefir ráðið yl'ir mark-
greifadæminu Meissen við Elbu.
Furstadæmið er mjög lítið og telur
aðeins 00.000 ibúa. En furstaættin
hefir breiðst mjög út og af Ko-
burgættinni er fólk í fjölda mörg-
um af hinum gömlu konungsættum
álfnnnar. T. d. eru konungsættirn-
ar í Portugal, Spáni, Belgiu og
Bulgaríu af þeirri ætt, sömuleiðis
Maria Rúmenadrotning. Vicloria
Bretadrotning var dótturdóttir
KAFAtíl 700 METRA
Um líkt leyti og próf. Piccard
tókst að komast 17 kílómetra i
loft upp i sumar vann ameriskur
vísindamaður, William Beebe að
nafni annað þrekvirki, sem fór í
öfuga átt, í orðsins fylstu merk-
ingu. Hann ljet gera sjer kúlu úr
stáli, svo sterka, að hinn geysi-
mikli þrýstingur undirdjúpanna
vann ekki á henni og komst á
henlii á 700 metra dýpi. Gluggi
var á kúlunni og ljósaútbúnað
hafði Beebe, svo að liann gat tek-
ið myndir af dýralífinu þarna í
undirdjúpunum og sá þar marga
skepnuna, sem ekkert mannlegt
auga hefir áður augum litið i því
ástandi, sem Beebe sá. Því að djúp-
hafsfiskar afskræmast allir er þeir
koma upp á yfirborðið, tútna út,
vegna þess að þrýstinginn vantar
til þess að halda þeim saman. Kúl-
an vóg tvær smálestir og var þó
ekki nema hálfur annar meter í
þvermál, en liurðin ein vóg 400
pund. — Hjer á annari myndinni
sjest stálkúlan, þegar hún er að
síga fyrir borð, en á hinni sjest
dr. Beebe koma upp frá því að hafa
kafað kúlulaus.
—-—x-----
LEYNIGIFTING
Fyrir nokkru var dótlir hljóm-
sveitarstjórans Toscanini gifl á laun
af borgarstjóranum í Búdapest. ---
Eins og allir vita vill Mussolini ekki
téyfa hjónaskitnað og þvi siður að
skilið fólk gifti sig aftur. En Ung-
verjar eru miklu frjálslyndari i
þessum efnum og þessvegnn leita
Frans hertoga i Koburg og Albert
maður hennar var líka af Koburg-
ættinni Karl Edward núverandi
hertogi af Iíoburg -er sonur Leo-
polds prins, bróður Játvarðar sjö-
unda.
Ungu brúðhjónin fá bústað í
sænsku höllinni í Haga nálægl
Stokkhólmi, sem hefir verið endur-
bygð og umbætt. Þau sjást hjer á
myndinni.
■----x-----
ítalir ofl yfir landamærin og ger-
ast ungverskir borgarar um stund-
arsakir til þess að fá að giftasl
eftir vild sinni.
Árið 1929 sótti greifmn Rezzinico
frá Milanó um að t'á að verða ung-
verskur ríkisborgari. Og undir eins
á eftir sótti hann um skilnað frá
konu sinni, sem var itölsk og beidd-
ist jafnfranit þess að mega gifta sig
á ný. Og skömmu síðar kom Vally
Toscanini, unnusta hans og dotlir
hins heimsfræga hljómsveitarstjóra
i Milano til Budapest og bað um
borgararjett. Ilún fjekk hann eftir
nokkra bið og giftist greifanum. Nú
eru þau komin aftur til ítaliu -—-
harðgift og ungversk! Hjer er
mynd af hjónunum.
----x-----