Fálkinn


Fálkinn - 10.12.1932, Blaðsíða 14

Fálkinn - 10.12.1932, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N Veist þú Jimmy hvar de Saint Anna höllin og Valera hrúin eru?“ Jimmy kinkaði kolli. „Jeg get sagt með isanni að jeg þekki hvern þumlung af landi þessu“. Hann leit vonaraugum á Tony. Hefur þjer dottið nokkuð í liug, sem að gagni mætti verða?“ ? ■ „Ekki ennþá“. Þessvegna kallaði jeg þenn- an ríkisráðsfund saman“. Hann sneri sjer að Guy. „Þú ert elstur okkar frændi sæll. Hvað dettur þjer í hug? Þú skalt taka fyrst- <ur til máls“. „Mjer líst vo á að eina ráðið til þess að Gjarga Isabellu sje að gera það með valdi, og verður þá eina spurningin, sem svara þarf, á hvern hátt við eigum að haga atlög- unni“ sagði Guy, eftir að liafa liugsað sig um stundarkorn. „Þakka þjer fyrir Guy“, sagði Tony. „Þetta var einmitt ráðið, sem jeg bjóst við frá jmanni, með jafn frekjulegt skaplyndi og þú hefur. Og hvað dettur þjer í liug Jimmy?“ Jimmy stóð upp og sagði liátíðlega. „Jeg líef þann lieiður að vera alveg á sama máli og háttvirtur síðasti ræðumaður. Jeg liefi ætíð kosið að ganga beint að verki. En livað segir vor æruverði sálnahirðir sjera Monk?“ „Jeg segi að þetta er einhver mesta heimska, sem jeg nokkurntíma hefi heyrt tvo menn vera sammála um“, sagði Molly skýrt og ákveðið. „Mjer þykir leitt að þurfa að vera áhefluð við yður herra Oliver, en þetta áform ykk- ar er óframkvæmanlegt með öllu. Haldið þjer------Dettur yður í hug að þó að við kæmumst til Valónabrúarinnar, sem er al- veg óvíst, að okkur yrði leyft að flækjast ])ar fram og aftur? Áuðvitað mundu þeir ]>egar vita hvert áform okkar væri“. „En við vitum hvenær þetta skeður, og yrðum að sjá um að koma þangað á sama augnabliki og orustan hefst“ mótmælti Jimmy. „Og hvað svo?“ sagði Molly reiðilega „Haf- ið ])jer þá vopnaðan flokk, sem vill taka að sjer að myrða lieilt herfylki til þess að hjarga stúlkunni? Dettur yður i hug að þeir mundu leyfa yður að sletta yður fram í málefni þeirra? Það er fremur ólíklegt. Jeg býst við því, að það væri eins gott fyrir okkur að fremja sjálfsmorð hjer úti á skipinu“. Guy ypti öxlum. „Þjer hafið rjett að mæla. En livað anqað er liægt að gera? Hjer er fckki um annað ráð að ræða“. Molly laut ofurlitið áfram, og hláu augun hennar tindr- uðu af geðshræringu. „Jú, jeg lief annað úáð“, sagði hún rólega. Þau þögðu um stund. „IJaltu bar áfram“, sagði Tony. „Við hlýð- um á“. „Ef við getum komist til Valona“ hjelt Molly áfram, og talaði hratt. „Hver getur þá varnað okkur að komast alla leið til de Saint Amea hallarinnar?“ „Hamingjan góða!“ sagði Jimmy; en átt- aði sig svo, og settist niður. „Já“, sagði Molly í hrifningu. „Að vísu er þetta allmikil áhætta“. ,,Það er algerlega vonlaust fyrirtæki“, tók Guy fram í. „Lát þú Molly ljúka máli sínu“, sagði Tony. „Við getum svo fundið að því á eflir“. „Heyrðu mig“, sagði Molly. „Eftir því er jeg best veit er engum af Pjeturs mönnum kunnugt um veru okkar hjer i Lívadiu. Það er trompfásinn okkar, og ef við ekki spilum honum út, þá getum við hætt spil- inu undireins“. Hún sneri sjer að Jimmy. „Hvar er þessi höll? Getið þjer sagt mjer það? Er hægt að komast þangað í bifreið, án þess að fara um Portrigo, eða Valona?“ Jimmy kinkaði kolli. „Það er liægt að fara út af aðalveginum uppi í fjöllunum, hjer um bil fimm mílum frá Braxa. Eftir þvi, sem jeg hefi heyrt sagt mun liægt að fara þá leið til hallarinnar í bifreið. En ef dæma skal eftir því, sem hersirinn sagði við Tony, þá er litil von til þess að við kom- umst áleiðis". „Þá hlið málsins skuluð þjer ekki kæra yður um“, sagði Molly kuldalega. „Ef að ])jer eruð kunnugir leiðinni, þá skuluð þjer láta mig um hitt“. Hún stakk hendinni í barm, og tók upp þykka pappirshlaðið, sem leit svo tignarlega út, og hún liafði áður sýnt Tony. „Ef þetta hjálpar okkur ekki til að komast í gegn um lítilfjörlegan hermanna- vörð“, bætti hún við; og henti blaðinu á borðið, „þá getum við þegar snúið skipinu lieimleiðis“. „Jeg lilýt að vera mjög lieimskur“, sagði Guy nsestum því ruglaður. „En mjer er ó- mögulegt að sjá hvað þið ætlið að gera þó að þið komist til hallarinnar“. Molly dró djúpt andann. „Það er aðeins eitt, sem hægt er að gera“, sagði hún liægt og skýrt. Prinsessan og jeg vgrðum að skifta um hlutverk, á einn eður annan hátt. Það er eina ráðið, sem um er liægt að ræða“. Guy leit út eins og sprengikúlu hefði lost- ið niður við fætur honum, og jafuvel Jimmy, sem þó kallaði ekki alt ömmu sína, glápti á liana eins og tröll á lieiðríkju. „Skipta um hlutverk", endurtók Guy loks- ins, „Er yður alvara með að gera það“. „Já, auðvitað er mjer alvara“, sagði Molly óþolinmóð. „Er yður ekki ljóst hve það er þægilegt? Eftir því sem mjer hefur verið sagt erum við Isabella svo líkar að varla er hægt að þekkja oklcur í sundur. Þó enginn geti trúað því, sem aðeins hefur sjeð mig i þessum húningi. Sjáið til, ef liægt væri að koma því svo fyrir að við Isabella gætum verið tvær einar í svo sem einn stundarfjórð- ung, þá þyrftum við aðeins að skifta um föt, og getur liún þá farið óáreitt leiðar sinnar í minn stað“. IJún leit á þá sigri lirósandi. „Jeg skal veðja hundraði á móti einum, um að enginn sjer þetta, það er að segja ef að Isabella er nógu hugrökk til að leika sitt lilutverk“. „Jeg skal ábyrgjast hugrekki hennar", sagði Tony. „Það er eitt af því, sem Isabella hefur í ríkum mæli“. „Er það áform yðar að koma í stað Isa- bellu í framtíðinni?" Það var Jimmy, sem spurði. „Auðvitað“, sagði Molly. „Til þess er jeg liingað komin“. Hann starði á liana með mikilli aðdáun, án þess að koma upp nokkru orði. „Hvert í þyngjandi", varð honum að orði. „Þjer liafið taugar i lagi! En hvað haldið þjer að gert verði við yður?“ Molly hrosti vingjarnlega. „Jeg ímynda mjer að jeg verði með heiðri og sóma gift Pjetri í dómkirkjunni í Portriga. Mjer er ekki Ijóst livað þeir geta annars tekið til bragðs. Þeir eru tilneyddir að lialda brúð- kaup, og þar sem jeg er fús til þess að leika prinsessuna, og sennilega engum dettur i hug að lcoma upp um mig, þá hýst jeg við því að þeir reyni að gera svo mikinn mat úr þessu, sem unt er“. Tony lagði vindlinginn frá sjer og hall- aði sjer aftur á halc. „Molly“, sagði hann. „Þú ert eins gáfuð og þú erl falleg“. „Þetta er framúrskarandi ráð“, sagði Jimmy, ennþá yfirkominn af undrun, og aðdáun. „Hið erfiðasta verður að gefa yð-

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.