Fálkinn - 04.03.1933, Blaðsíða 8
8
F Á L K I N N
Umhirða skrautgarðanna í erlendu
stórborgunum er ekkert smáræð-
isverk. Umsjónarmennirnir hafa
fjölda fólks í þjónustu sinni, þar
á meðal lærða garðyrkjufræðinga,
til að gróðursetja blóm og hirða
um trjen. Og þegar trjen hafa felt
lauf á haustin þarf lieila hersingu
af fólki til að raka burt laufinu,
eins og sjá má af myndinni.
Myndin sýnir brú, sem varla getur hugsast af einfaldari gerð.
Tveir strengir eru settir samsíða yfir ána og bílnum ekið' eft-
ir þeim, en hringirnir þó teknir af áður. Má varla mikið út
af bera, að bíllinn fari í ána, enda virðast farþegarnir við
því búnir. Þeir eru allir í baðfötum.
Myndin er frá síðustu radiosýningunni í Kaupmannahöfn.
Sjest þar kúlan úr „himnafari“ Piccards, sem svo mörgum þótti
fróðleg að sjá. Mennirnir á litlu myndinni eru próf. Vald.
Poulsen, heiðursgestur sýningarinnar og aðstoðarmenn hans
tveir, Sörensen verkfr. (t. v.) og Benny Dessau forstj. t. h.
Til dæmis um neyðina í stórborgunum má nefna, að nú er
það algeng sjón, sem eigi þektist áiður, að sjá börn vera að
safna saman kvistum og rusli í skemtgörðunum og bera heim
til sín, til þess að hafa í eldinn. Líklega er þetta þó Ijelegt elds-
neyti. En nota flest í nauðum skal.
Myndin hjer að ofan er ein hinna sjaldgæfari mynda af
Björnstjerne Björnsson, tekin átta árum áður en hann dó.