Fálkinn - 04.03.1933, Blaðsíða 12
12
FÁLK I N N
Ef þjer viljið eignast
GÓÐA BÖK
þá kaupið
SAMLÍF-
ÞJÓÐLÍF
eftir
Dr. Guðm. Fiimbogason.
Fæst hjá bóksölum.
Send gegn póstkröfu um
alt land.
Verð kr. 5.50 bundin og
kr. 4.00 óbundin.
Fyrir eina
40 anra á viku
Getur þú veitt þjer og heim-
ili þinu bestu ánægju tvo
daga vikunnar, laugardag og
sunnudag. Ekkert blað er
skemtilegra og fróðiegra en
Ensk-lslensk orðabók
kom út nú í sumar, í 3. út-
gáfu. Geir T. Zoéga, rektor,
haföi lokið við að endurskoða
hana og búa undir prentun
skömmu áður en hann dó 1928.
Þessi 3. útgáfa er mikið aukin,
bæði að orðaforða, nýjum
þýðingum og einkum skýring-
ardæmum, setningum og tals-
háttum, enda er hún mun
stærri en 2. útgáfa, eða rúml.
44 arkir en 2. útgáfa var 35
arkir.
Verð bókarinnar í vönduðu
shirtingsbandi er kr. 18.00 og
er það mjög ódýrt sje tillit
tekið til eldri úgáfu bókar
þessarar. Nokkur eintök hafa
verið bundin í skinn og kosta
þau kr. 23.00 eintakið.
Bókin fæst hjá bóksölum og í
Bókaverslun
Sig. Kristjánssonar
Bankastræti 3. — Reykjavík.
Heitmann’s
kaldur litur til
heimalitunar.
ICOSNINGARNAR í ÍRLANDI.
Myndirnar hjer að ofan eru frá
ensku kosningunum 24. janúar. Til
vinstri sjást kjösendur vera að
merkja á kjörseðlana við kjörborð-
ið og má af myndinni sjá, að kosn-
ir.garnar eru ekki nærri eins „leyni-
legar“ og þær eru hjer, því að
menn geta vel sjeð á kjörseðlana
liver hjá öðrum. Til hægri sjest einn
af stræta fundum Cosgraveliðsins.
JOHS’ V. JENSEN SEXTUGUR.
Mesta skáld Dana, Johannes V.
Jensen varð 60 ára 20. jan. síðast-
liðinn og var afmælis hans minst
um öll Norðurlönd og víðar. Bár-
ust honum kveðjur fjölda frægra
rithöfunda, sem keptust um að
syngja honum lof.. Myndin er tekin
af skáldinu á skrifstofu hans dag-
inn eftir afmælisdaginn.
POUL BONCOURT Á QUAI D’OR-
SAY.
Stjórn Poui Bouncourts, sem nú
er fallin, fjekk við yaldatökuna 380
atkvæði gegn 166 i þinginu: og er
liún skifti méð sjer verkum tók
stjórnarforsetinn jafnframt við störf-
um utanrikisráðherra og settist að í
ráðherrabúsfaðnum Quay d’Orsay.
Og það Vakti athygli, að hann ljet
sjer ekki nægja sömu skrifstofurn-
ar og fyrirrennara hans heldur tók
liann sjer skrifstofur á efri hæðinni
í viðliafnarsölum liallarinnar, þar
sem innbúið er metið á 12 miljónir
franka. Sjest hann hjer á myndinni
i einum af þessum sölum, ásamt að-
stoðarmönnum sínum, Pierre Cot,
Eugene Frot'og M. G. Paul-Roncourt.
Það bar við seint í janúar að
Henry Ford bifreiðakonungur stöðv-
aði vinnu í hinum miklu verk-
smiðjum sínum í Detroit. Upptök
þessa voru þau, að verkamenn á
Briggs-smiðjunum, sem Ford hefir
keypt yfirbyggingar á vagna af,
gerðu verkfall. Voru þeir 6000 alls.
Ford svaraði óðar með þvi, að leggja
verkbann á þau 40.000 manns, sem
vinna í smiðjum hans sjálfs og skýr-
ir hann þetta tiltæki sitt svo, að
verkfallið hjá Briggs hafi verið gert
fyrir tilstilli ýmsra keppinauta sinna,
sem njóti stuðnings ýmsra stórbanka
til þéss, að reyna að setja Ford-
smiðjlinum stólinn fyrir dyrnar og
koma þeim fyrir kattarnef. Kvað
hann verkbannið eina vopnið til
þess, að afstýra frekari aðgerðum
keppinautanna. — En innan nokk-
urra daga hófst vinna aftur i Ford-
smiðjunum, svo að líklega hafa ein-
hverjir samningar tekist milli Fords
og keppinauta hans.
Best að aufllýsa i Fálkanum.