Fálkinn - 04.03.1933, Blaðsíða 9
F Á L K I N N
9
Myndin sýnir haustplægingu og
hún sýnir um leið, að vjelabúskap-
urinn hefir ekki alstaðar náð yfir-
ráðunum. Þó að akurinn sje stór,
þá notar bóndinn hestana fyrir
plóginn eins og áður. En það er
samtals eklci smáræðislengd á
plógfarinu, sem hestarnir rista upp
á hverjum degi er alt gengur vel.
Hjer sjest nokkur hluti brúarinnar yfir Litlabelti, sem verð-
ur stærsta brú í Evrópu, þegar hún er fullgerð. Það er ekki
smáræðis atvinna, sem þessi smíði veitir núna í kreppunni.
í Frakklandi er afar mikil sykurrækt. Myndin sýnir fransk-
an bónda, sem er að aka heim til sín sykurrófum af akrinum
á kerru, sem ætluð er einum hesti. En hann beitir þremur
fyrir, Iwerjum fram af öðrum.
Þessi indverska pagóða er bygð á lausum kletti, grettistaki,
og er það trú Indverja, að það sje eút af höfuðhárum Búdda,
er heldur klettinum í jafnvægi. En líklega er það orðum aukið.
Þjóðvérjar halda hálíðlegan „dauðradaginn“ á hverjum vetri
í nóvembermánuði. Myndin hjer að ofan er tekin í þýskri
kirkju á „dauðradaginn" og sýnir fólk á bæn fyrir látnum
ættingjum.