Fálkinn


Fálkinn - 04.03.1933, Síða 11

Fálkinn - 04.03.1933, Síða 11
F Á L K I N N 11 Yngstu lesendurnir. Ýmislegt til skemtunar. Hvaða leið fór hann? I>a'ð var eiit laugardagskvöld, að Fjetur sendisveinn var sendur út i liæ með iólf stóra böggla, sem urðu endiléga að komast til skila um kvöldið, þvi að það var í þeim mat- ur, sem átti að nota daginn eftir. Og vitanlega áttu þessir tólf böggl- ar að fara á tólf heimili. — Pjetur tók hjólið sitt og hjelt af stað og þeyttist nú stað úr stað, þangað til liann hafði kotnið af sjer öllum bögglunum. Þegar liann kom lieim aftur og fór að rifja upp fyrir sjer ferða- lagið varð hann hissa, er hann tók eftir því, að hann hafði aflokið öll- um erindum sínum án þess að aka sömu leiðina tvisvar sinnum eða l’.afa farið tvisvar framhjá sama skiftavininum. Þætti þjer ekki gaman að reyna að leika þessa list eftir Pjetri. Þú átt auðveldara með það en Pjelur, því að þú þarft enga böggla að l afa meðferðis og ekki að þreyta þig á að hjóla. Þú situr við borðið þitt með teikninguna fyrir framan ]>ig og á henni sjerðu húsin, sem Pjetur varð að koma í og eru þau tölusett, strikin sýna strætin í bæn- um. Reyndu nú! (Ráðningin er þessi: Pjetur fór í imsin í þessari röð: 9, 4, 11, 6, 0, 8, 1, 5, .12, 7, 2, 3, Vitanlega má lika fara í, alveg öfugri röð. Nokkuð fyrir spilafíflin. Fimm til sex spil eru beygð i liorn og sett upp á fjöl, sem lát- in er standa á ská, eins og myndin sýnir. Til endanna og hliðanna eru settir trjelistar á fjöjina eða borðið, il þess að kúlurnar, sem spilað er nieð velti ekki út af borðinu. Þálftakendurnir standa við hærri endann á borðinu og hver þeirra fær ofur litla steinvölu. A nú að reyna að láía völuna velta gegnum spilahúsin. Sá sem getur það fær tvö stig, en ef bann fellir spilahús- i'ð tapar hann einu stigi, en komist valan í gegn án þess að snerta spil- ið fær hann 3 stig. Marklinan, sem spilað er frá, er teiknuð á borðið með krít. — Sá sem fyrstur hefir náð 20 stigum hefir unnið. Erfið þraut. — Geturðu felt eldspítustokk? spyr jeg. — Hvernig? spyr þú. Taktu þá tóman eldspítustokk í hægri hönd og legslu á linje, leggðu frainhand- legginn á gólfið, þannig að olnbog- inn nemi við linjeð og settu svo frá þjer eldspítustokkinn, — en mundu að hann á að standa upp á end- ann! Þetta er alt saman auðvelt, en nú fer að vandast málið. Taktu saman höndum fyrir aftan bak og reyndu svo, þarna sem þú stend- ur á hnjánum að fella eldspýtu- stokkinn með nefinu. Þetta er mjög erfitt, og aðeins þeir, sem liprir eru i kroppnum geta gert það. — Mundu eftir að sýna listina kunningjum þínum og láta þá spreyta sig á henni. Sigling í baðkerinu. Mörg ykkar eiga eflaust lítil syst- kini og ef jeg þekki lítil börn rjett, þá er þeim ekki sjerlega vel við að ÞÝSKU FARFUGLARNIR Æskulýðurinn í Þýskalandi ferð- ast tiltölulega meira en æskulýður nokkurs annars lands. Einkum er svokölluð „farfuglahreyfing" orðin almenn í Þýskalandi. Þessi fjelags- skapur hefir smám saman eignast fjöldann allan af sæluhúsum víðs- vegar um landið, þar sem „farfugl- arnir“ koma við og fá gistingu fyr- ir lítið eða ekkert. „Farfuglarnir“ ferðast ódýrt, — þeir eru alveg ó- smeykir við að nota sjer gestrisni fólks þar sem þeir koma, og þykir suinum, sem fyrir átroðningi al' þeim verða það jafnvel um of. En þess ber að gæta, að flestir þessara farfugla hafa úr litlu eða engu að spila, svo að þá munar meira um að eiga að borga greiða, en hina um að láta hann úti þó ókeypis sje. ,,Farfuglarnir“ ferðasí eigi aðeins innan lands heldur og til annara landa og hafa sumir jafnvel komist til slands. eÞssi ferðalög eru mjögö ódýr. í sumar tóku „farfuglarnir“ upp á þvi, að taka á leigu gamalt skip, sem hafði legið ónotað í liöfn árum sainan og dytta að því. Rúm- fleíum var slegið upp í lestunum og síðan haldið af stað. Myndin, sem lijer sjest að ofan er af skipi og sýnir farfuglana i efri og neðri rekkjunum vera að vekja hverja fara ofan í baðkerið og láta baða sig. Þú hefir víst oft heyrt þau skæla, þegar hún mamma ykkar befir ætlað að fara að baða þau. Nú hefir mjer dottið nokkuð gott í hug. Rú þú til nokkra smábáta úr korktöppum. Þú notar stein í kjölinn. Mastrið er úr stálvír, seglið úr hvítum pappír og flaggið úr mis- litum pappir. Þegar þú heyrir næst orgað í bað- herberginu þá farðu í hirsluna þína, ] ar sem þú geymir bátinn eða bá - ana og farðu inn til litla • bróður þins og sýndu honum fallega bát- inn og láttu hann sigla i baðker- inu. Þá hættir hann undir eins að gráta og gleymir allri hræðslu við ”atnið. Járnkrossinn í einni klippingu. Taktu ferhyrnt pappírsblað, jafn- stórt á báða vegu og brjóttu það cins og myndin sýnir — eftir punktalínunum á myndinni. Gerðu fyrst lárjett brot, síðan lóðrjett brot og svo brot á milli horna, svo að þriliyrningur verði úr pappirnum sem er lokaður á hægri og vinstri l.'lið, en opinn að neðan. Bogna lín- an við (Z) sýnir livernig þú átt að klippa. Þegar þú flettir blaðinu sundur eftir klippinguna, þá kemur fram mynd af krossi, sem er alveg eins og þýski járnkrossinn í lögun. ÞVí nákvæmar, sém þú klippir, því fallegri verður krossinn. Tóta frænka. WOLF-HEINRICH, FURSTI AF STOLBERG var talinn trúlofaður erfðaprinsess- unni liollensku og hefði þvi ef alt hefði að óskum gengið orðið drotn- ingarbóndi í Hollandi. En líkléga hefir þeim ekki samið, því að fursl- inn varð afliuga Júlíönu prinsessu og vegsemd þeirri sem henni fylgdi. í stað þess fór hann að draga sig eftir borgaralegri stúlku, ungfrú Irmu Erfert, sem er dóttir spari- sjóðseiganda eins og þau giftust 21. janúar. Hjer er mynd af .höll furst- ans.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.