Fálkinn - 21.10.1933, Blaðsíða 9
F A L K I N N
y
Zigaunar á leið til sjávar með
Maríumynd til að blessa sjóinn
áður en veiðarnar byrja.
Svanur með unga sinn á bak-
inu.
Myndin hjer að ofan er af ökrum þeim, sem Mussolini hefir
látið rækta í mýrunum nálægt Róm og sýnir þegar verið er að
undirbúa þá undir næstu uppslceru eftir að sú fyrsta hafði
verið hirt. Italir nota uxa fyrir arðinn að gömlum sið, en
aðeins lítið nýtísku vjelar en eigi að síðúr hefir landbúnaður
aukist afar mikið hjá þeim síðustu árin.
Myndin gefur hugmynd um hve mikið var að gera í þinginu
í Washington í vor áður en það var senl heim. Forsetinn hafði
krafist þess, að það legði í snatri síðustu hönd á afgreiðslu
ýmsra mála, sem honum þótti ekki mega dragast oy afleið-
ingin af þessu varð sú, að þingmenn urðu að vinna bæði dag
og nótt, snöggklæddir.
A Madagaskar kemur reiðhjólið líka í góðar þarfir. Myndin
sýnir innfæddan mann vera að koma heim af krókódílaveið-
um, á reiðhjóli.
Það þykir gott ráð til að bæta úr vatnshræðslu barna að láta
þau hafa bolta til að leika sjer að, þegar þau fara í vatnið.