Fálkinn


Fálkinn - 18.11.1933, Qupperneq 5

Fálkinn - 18.11.1933, Qupperneq 5
F Á L K I N >' ;> Marian Marsh (Warner Brcs segir: „Talmyndirnar heimta mikið be- tra útlit og fe- gurra liörund en. aJit annaö, þvi nota jeg Lux H a n d s á p u n a. Jeg eiska hana.“ Fegurðin eykst aú frá degi Híifio j>jer teki'S eftir því, a'Ö filmstjörnur- nar sýnast )>ví fegurri, J>ví of’tar, sem]>jer sjáiS þær á tjaldinu. „Þær hljóta aS nota einhver fergurSarmeSul" segiS ]>jer, og pæS er rjett. Þær uota allar Lux Handsápu. Hiö mjdka ilmandi löSur hennar, heldur viö íeg-urS hörund- sins. TakiS pær til fyrirmyndar. LUX HANDSÁPAN Notuð af stjörnunum í Holliwood LEVF.R BROTHERS LIMITED, PORT SUNLIGHT, BNGLAND X-LTS 2 30-5 O I C En hann var á besta aldri, að- eins hálffertugur, og gafst ekki upp. Og hann hafði gifst konu sjer samhentri, sem stappaði í liann stálinu. Og nú skeður það merkilega og fátíða: Ilann af- ræður að gerast skáld til þess að ná sjer upp úr skuldafeninu, gerast trúr köllun sinni, sem hann hafði ekki þorað að sinna áður, af liræðslu við að hún mundi ekki gefa sjer brauð. Þessi ásetniugur er svo sjer- slæður, að það má fullyrða, að engmn norskur maður hafi fyr eða síðar ráðist í annað eius. Nú ætlaði liann að helga skáld- skapnum orku sína, „yrkja sig skuldlausan“. Og það var mikið áform í Noregi eins og hann var í þá daga. Nú hefst nýr þáttur í æfi Jón- asar Lie, þáttur sem er svo merkilegur að norsk bókmenta- saga á sjer tæplega annan eins. Og konan sem stóð bak við, Tliomasina Lie, á ekki minni þakkir skilið fyrir hvernig hon- um lauk, en Jónas Lie sjálfur. Sonur hjónanna, Erik Lie segir svo frá þáttaskiftum þessum, í bók er hann hefir ritað um for- eldra sína: „Það var 26. maí 1868, að Jónas Lie á ferð til Osló, sagði konu sinni frá hvernig komið væri, að hann væri eigi aðeins efnalega öreigi heldur bundinu æfilangt af skuldum. Hann var í öngum sínum, örvona og beygð ur - var að hugsa um að svifta sig lífi. Það var nú svo, — liann átti konu — börn — æruna. Hver veit nema lífið gæti aftur orðið þess ver að lifa því, ef liánn byrjaði í öðru landi á nýj- an leik. Til dæmis í Ameríku. . ?“ En frú Lie fannst, að líkt væri um skömmina og skaðann hvort hann væri í Noregi eða annars- staðar. Þau yrði að reyna að bjarga sjer eins og best gengi. Lifa spart og reyna að borga af skuldunum. Og nú gæti hann lielgað sig allan bókmentunum. — Síðdegis sama dag fóru þau út í Bygdö við Osló og höfðu með sjer smurt brauð í nesti. Og þau urðu sammála um hvað gera skyldi. Þau fluttust skömmu siðar til Ósló. Þannig liófst rithöfundaferill Lie, haustið 1868. Horfurnar voru ekki glæsilegar. í fyrstu sneri Lie sjer einkum að blaða- menskunni. IJann skifaði eina grein i viku í „Morgenposten" og fjekk þrjár spesíur fyrir, og vikuyfilit um skandinaviska við- burði í „Norsk Folkeblad“, sem Björnson stýrði. Ennfremur við og við í „Dagbladet“, „Cliris- ianiaposten“ og „Aftenbladet“. Heltberg rjeð hann stundakcnn- ara í norsku við „stúdentaverk- smiðju“ sína, en starfið varð skammvint, því að Lie hjelt fyrirlestra í stað þess að kenna. Meðal nemenda hans þar var Olaf Thommesen síðar ritstjóri „Tidens J'egn". Lærisveinarnir afsögðu kennarann með þeim ummælum að þeir gæti ekki not- að fyrirlestra lians við prófborð- ið. Öðru hverju tók liann að sjer lögfræðisstörf, einkum fyrir þá sem höfðu orðið að snúa við fiá öðrum málafærslumönnum. Hann seldi skóga fyrir menn og hafði talsvert upp úr því. Og svo orkti hann tækifæriskvæði fyrir peninga. En haustið 1870 hafði hann lagt síðustu liönd á „Den frem- synte“ (ísl. þýðign: Sagan af Davíð skygna, eftir Björn Jóns- son). Björnson fékk að heyra söguna og kom henni á fram- færi við Gyldendalsforlag í Khöfn sem gaf haan út fyrir jólin sama ár. Og Lie varð á svipstundu frægt skáld. Hann fjekk skálcta- styrk um vorið, 250 spesíur, til ferðalaga um Norður-Noreg og viku síðar 400 spesíur, „til þess að dvelja erlendis og fullnuma sig sem skáld“. Haustið 1871 fór hann til Par- ís og þaðan fluttist hann búfcrl- um til Róm og dvaldi þar i tvö ár. Þar skrifaði hann „Fortæll- inger og Skildrinnger fra Norge“ „Tremasteren Fremtiden“, sem bæði komu út 1872 og „Lodsen og hans lmstru“, sem kom út 1874. Það ár kom hann aftur heim til Noregs og var þá í einu hljóði veitt á stórþinginu jafnhá skáldalaun og Björnson og Ibsen höfðu áður lial't, 400 spesiur. Konungur sæmdi liann fyrstan heiðurspeningi þeim, er hann hafði látið slá til minningar um krýningu sína í Þrándheimi 1873 og gerði hann að riddara tveim- ur árum síðar. Stjórnin taldi Lie sinn mann, en Björnson hins- vegar uppreisnarmanninn. En Lie brást þeirri trú. Nú var Lie í Noregi næslu fjög ur árin, til 1878 og gaf út drama- tiskt ljóð „Faustine Strozzi“ og sögu frá Kristjaníu, „Thomas Ross“ en bæði þessi rit urðu til vorbrigða þeim, sem höfðu les- ið „Den fremsynte“. Lie leið illa þessi fjögur ár og misti álit. Hann gerðist þögull og gramur og afréð loks að yfirgefa ætt- jörðina í annað sinn. Eftir 1878 mátti varla lieita að hann dveldi í Noregi nema sem gestur. Ilann dvaldi lengstum í París eftir þetta en á sumrum var hann oft í Tyrol. Sumarið 1893 var liann i Noregi og var þá hyltur á ýmsan veg á sextugsafmæli sinu um haustið Svo flytjast þau hjónin heim lil Noregs 1906 og setjast að í Frédriksværn og bygðu sjer þar hús. Höfðu þau þá dvalið er- lenclis undanfarin 13 ár. Þá um haustið kom Björnson í heim- sókn til fornvinar síns, sem hann hafði verið í missætti við undan- l'arin 20 ár, og sættist við hann heilum sáttum. En árið eftir missir Lie konuna, og eftir það var liann ekki nema hálfur mað- ur. Honum fór hraðhnignandi eftir þetta, þvi að eigi hafði hún aðeins verið sú, sem hafði alla stjórn á fjárliag þeirra lijónanna heldur hafði hún verið samverka maður manusins síns um bækur hans. Eftir andlát hennar eirði .Tónas Lie ekki i Fredriksværn en flakkaði stað úr stað og dvaldi þá oftast hjá ættingjum sínum. Hann var orðin mjög heyrnar- sljór og nálega blindur. Sein- asti dvalarstaður hans var í Fleskum hjá syni hans, Erik Lie. Iiann var á leið til Fredriks- værn er hann veiktist. Samt vildi liann hafa ferlivist og hann dó alklæddur á sófanum i stof- unni á Fleskum 5. júlí 1908. Jarðarför hans fór fram á rik- isins kostnað og lik hans var flutt til minningaathafnar í Þrí- einingarkirkjuna í Osló en þaðan til Fredriksværn, þar sem liann liggur grafinn við hlið Thoma- sine Lie. Nú er Marlene Dietrich hætt að ganga í buxum. Það var auglýsing- arst.jóri hennar sem fjekk hana til að taka upp á þessu og reyndist það að vera góð auglýsing. Því að í öllum blöðum heims komu myndir af Marlene i buxum. Skraddararnir hafa líka grætt á þessu, því að fjöldi ungra stúlkna vildi vera eins og Marlene og ljet sauma sjer sams- konar buxur og hún var í. ----x---- Áttræð kerling i London er um þessar mundir i hjónaskilnaðarmáli. Maðurinn hennar er 78 ára, en kerlingin, Esther Bennett, ber fram þá ástæðu fyrir skilnaðarbeiðninni, að karlinn sje farinn að draga sig eftir ungri stúlku. ----x---- Á tímabilinu 23. til 31. ágúst var talið að 5000 Kínverjar hafi farist, í jarðskjálftunum í Szechuanhjer- aðinu. Hafa heil þorp lagst í rústir. •---x---- tíók Hitlers „Mein Kampf“ hef- ir nú verið bönnuð i Tjekkóslóva- kíp. En í Þýskalandi koma í sifellu nýjar útgáfur af bókinni og hafa nú verið prentuð miljón eintök af henni en höfundurinn fengið 2 miljón mörk í ritlaun. Hitler er talinn ríkasti maður af forustumönn um nazista og eiga 15 miljón mörk, Fyrir 12 árum átti hann ekkert en lifði af 35 marka hermannastyrk á mánuði. í Englandi er hafin hreyfing í þá átt að færa klæðaburð og skemt- anir í það horf sem var á ‘síðasla áratug 19. aldarinnar. Fjelögin sem að þessu starfa haf einkum lagt stund á að taka upp gamla dansa og síð pils. ----x---- Frú Jacqueline Montgaste i París átti 17 börn með 14 mismunandi eiginmönnum.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.