Fálkinn


Fálkinn - 18.11.1933, Blaðsíða 7

Fálkinn - 18.11.1933, Blaðsíða 7
F Á L K I N N / liátta ennþá. Gordon þekti alla iierbergjaskipun og háttalag og vissi, að fyrir hálfima liðnuin liefði Terrington komið ofan og spurt sir Robert með mikilli undirgefni, livort alt væri eins og hann óskaði. Og svarið liefði verið játandi og þá hefði Terr- ington dregið sig í hlje. Eftir hálftíma mundi sir Robert fara að dæmi hans. Nei, hann rnundi ckki gera það. Það mundi gerasí óyæntur atburður sem hamlaði þvi. Og enginn mundi frétta um þennan óvænta athurð fvr en í l'yrramálið. Gordon þreifaði sig áfram að hurðinni á svölunum og inn i hókastofuna. Aldrei þessu vant hafði Terrington brugðist skyldu sinni. Hurðin var ólæst.... Við eldstóna stóð þungi sófinn, sem sir Robert var vanur að sitja i. Hann gat sjeð skuggan af hand- leggjum hans á gólfdúknum. Hurðin opnaðist alveg og liann í'ór inn. En livað alt var liljótt. Sir Rohert var líklega sofandi. Hann var svo skelfing kvöld- svæfur. Það var ennþá betra. Engin mótstaða, engin hróp. Gordon lieýrði lijartasláttinn í sjálfum sjer. Það hamaðist eins og rnótor. Hann lyfti hendinni með hansk anum, tók spanskan rýting sem hjekk á veggnum og læddist inn gólfið á mjúkum dúknum. Hann sá höfuð sir Roberts yfir stól- liakið, en það bærðist ekki. Það var greinilegt að liann svaf. Og jafnvel þó hann liefði vaknað var of seint fyrir hann að búast til varnar. Gordon stóð nú við stólinn og ! allaði sjer yfir sofandi mann- inn, albúinn þess að reka í hann rýtinginn. En.... vopnið datt úr máttlausri liendi hans og það kom korrhljóð úr háísinmn á honum. Sir Roherl svaf ekki. Hann a. dauður. Einhver hafði rekið liníf í brjóstið á honum. Ein- ver.... Gordon sneri sjer skyndilega við. Hurðin hafði verið ólæst þegar hann kom. Morðinginn hafði auðvitað farið þá leið. Hvar var hann nú? Hafði hann falið sig í einhverju skotinu? Hann hlustaði. Steinshljóð. Og úti á svölunum? Þar liafði liann einmitt verið sjálfur rétt áðan. Gordon James Idó. Hann liafði sloppið við þetta óþægilega verk, sem hann ætlaði sjer að fram- kvæma. Þetta ódæðisverk! Nú voru allar miljónirnar hans eign. Hann tók rýtinginn upp af gólf- inu og hengdi hahn á sinn stað á veggnum. Svo gekk liann aftui að stólnum. Sir Rohert var dauð- ur hlaut að vera dauður. Eng- inn læknir gat hjálpað honum, enginn læknir í í öllum lieimin- um. En nú var best að hverfa svo liægt og hljóðlega sem kost- ur væri. Ef hann gengi til Mar- lesbv gæti hann tekið stræt- isvagninn þar og verið kominn íil London nógu snemma til að láta segja sjer dánarfregn frænda sins. Þetta var að vísu langur gangiir, en. . . . Hurðin innan úr salnum opn- aðist og Terrington stóð á þrösk- uldinum. Rak við hann sást garð- yrkjumaðurinn, sterkur heljaki og handfastur. „Mjer heyrðist jeg heyra ein- hvein umgang hjerna. mælti Terrington. „Hr. Gordon, eruð þjer hjer?“ Mennirnir tveir komu inn í stofuna og komu nú auga á dauða manninn í stólnum. Terr- ington hljóp til og dró hnífinn út úr sárinu. ,,Sir Rohert! Sii Röhert! kall- aði Iiann. En liann fjekk ekkerí svar. Gordon faiin að tekið var föst- um tökum um úlfliðina á hon- um og hann reyndi að snúa sig úr greipum garðyrkjumannsins. „Drottinn minn! Þlð lialdið þó ckki að jeg hafi gert þetta? liróp- aði hann. „Við höldum það sem við sjá- iím“, sagði Terrington sem alí í einu liafði breyst úr þjón i herra. „Hversvegna ljetuð þjer eins og þjer færuð í kvöld, hr Gordon og hversvegna eruð þjer nú einn hjá hinum mvrta?“ Jeg hið ekki um neitt svar, því jeg hefi ekki rjett lil þess“. „Ef þjer ætlið að reyna að sannfæra einhvern þá skuluð þjer hyrja á lögreglunni“, sagði garðyrkj umaðurinn. „Það verður liægðarleikur“, sagði Gordon Jarnes. En honum tókst eklci að sann- færa lögregluna um sakleysi ,.itt. Og kviðdóminn ekki heldur. Þessi mynd er tekin uf Lindberg og konu hnns þegar þan voru að leggja af stað frá Kaupmannahöfn iil Sviþjóðar. Síðan hafa þan far- ið um Finnland, Rússiand, Estland, Noreg, England og nú loks til Spánar. OPERAN „FALSTAFF". Þegar hið heimsfræga tónskáld Verdi á gamals aldri fór að lita yfir æfistarf sitt, en það var mikið, þvi að hann safndi feiknin öll af óperuin, tók hann eftir þvi, að hann hafði ekki samið neinn gaman-söng- ieik og tók ]iá til við það. Var þetta 28. söngleikurinn frá hans hendi, ('iperan „Falstafi'" bygður á leikrit- um Shakespeares. Leikur þessi var sýndur á kgl. leikhúsinu í Khöfn núna í haust og birtast hjer nokkr- ar myndir úr honum. Frá vinstri: Tenna Kraft, Holger Bruusgaard og Iilse Trepiele og Holger Byrding. Leikur þessi er talinn með bestu söngleikjum Verdis. CHANG HSU LIANG hinn alkunni kínvérski hershöfð- ingi, um eitt slceið undirkonungur i Mandsjúriu og nú hermarskálkur Ivínaveldis, er einn þeirra manna, sem mikið hafa komið við sögu Kínverja undanfarin ár, þó ekki sje hann nema 33 ára. Nú muu hann vera orðinn þreyttur að „stríða“ enda ræður hann ekki við neit, og virðist ætla að fara að halla ser að friðsamlegum störfum. Að ininsta kosti kom hann nýlega alla leið vestur til Kaupmanna- hafnar, leigði sjer mörg herbergi á Hotel d’Angleterre og sagðist ætla að fara að kynna sjer landbúnað og fleira. Hver veit nema hann komi hingað einhvern daginn til að skoða Flóaáveituna og skurðgröf- una í Safamýri, byggið á Sámsstöð- um, og ódýru vínberin á Reykjum, þessi sem Balbo fjekk.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.