Fálkinn - 18.11.1933, Page 11
F Á L K I N N
11
Yngstu lesendurnir
Fljótur og
auðveldur
þvottur
með
Rinso
Það er ljett verk að þvo þvott.
Þegar Rinso er notað. Leggið
þvottinn í Rinso-upplaustn nætur-
langt, og næsta morgun sjáið
þjer, að öll óhreinindi eru laus
úr honum yður að fyrirhafnar-
lausu. Þvotturinn þvær sig sjál-
fur, á meðan þjer sofið. Rinso
gerir hvítann þvott snjóhvítan,
og mislitur þvottur verður sem
nýr. Rinso verndar þvottinn frá
sliti og hendur frá skemdum,
því alt nudd er óþarft.
Reynið Rinso-aðferðina þegar þjer
þvoið næst, og þjer notið aldrei
gamaldagsaðferðir aftu*-.
Rinso
VERNDAR HENDUR,
HELDUR
ÞVOTTINUM
ÓSKEMDUM
M-R 79-33 IC
R. S. HUDSON LIMITED, LIVERPOOL, ENGLAND
Skemtileg
Nú er kominn kaldur vetur og
þið fáið ekki tækifæri að leika
ykkur úti nerna endur og eins. Og
svo dimmir líka snemma í skamm-
deginu og þegar dimt er orðið þá
eiga börnin ekki að vera úti. Þess-
vegna ætla jeg í þetta sinn að benda
ykkur á ýmislegt sem þið getið
skemt ykkur við inni í frístund-
unum.
Svolílil teiknilist.
Þegar þið eru orðin leið á bók-
unum og leikföngunum er stund-
um gott að leita athvarfs hjá blý-
antinum sínum. Þegar þið hafið
tekið hann i hönd opnast margir
og skemtilegir möguleikar.
Það eru ekki allir listamenn, en
samt geta allir teiknað grísinn,
sem myndin hjer að ofan er af.
Fyrsta myndin er ekki erfið, en
þegar hún er búin er næsta myndin
ennþá auðveldari og svo höldum
við áfram, eins og sýnt er á mynd-
unum 3 og 4 og áður en þið vitið
er grísinn fullgerður. Þó ætla jeg
að minna ykkur á eitt: að strok-
leðrið er nærri þvi eins nauðsyn-
legt og blýanturinn.
dægradvöl.
Allir hafa gott af að dunda við
eitfhvað og prófa sig áfram. Þess-
vegna skulum við gera það! Hjerna
að ofan sjerðu skrítna mynd; þar
er alt í hrærigraut og þú botnar
víst ekki i neinu. Þú sjerð víst elcki
einu sinni hvað upp er og hvað
niður.. Þessvegna verðum við að
Iaga myndina, svo að bæði þú og
aðrir geti sjeð, hvað hún á að sýna.
Ilver veit nerha þú eigir einhver-
staðar gamlan litarkassa eða ef það
er ekki, þá stokk með allavega lit-
um blýöntum, því að það er ein-
mitt annaðhvort af þessu, sem þú
þarl't að nota.
Svo reynirðu að gera myndina
skiljanlega með því að mála alla
reitina, sem merktir eru með sömu
tölu með einum lit, aðra sem merkt-
ir eru með annari tölu með öðrúm
lit og þannig koll af kolli þangað
þú ert búinn að mála alla reitina.
Og þá skaltu sjá til að þú skilur
myndina.
Merkilegt töludýr.
Úr því að við erum nú farin að
eiga við teikningu á annað borö
þá finst mjer að jeg megi til að
sýna ylckur þetta einkennilega dýr,
sem er gert úr eintómum tölum.
Þessvegna er það kallað töludýr.
Og tölunum er svo sniðuglega fyrir
komið, að teikningin hefir orðið
falleg.
Reyndu nú að geta, hvað summ-
an af öllum tölunum er há. Þú gel-
ur meir að segja náð i aðra krakka
og fullorðna líka, og látið fara fram
verðlaunasamkeppni.
Þeim ykkar, sem ekki getið rjett
skal jeg segja töluna áður en jeg
skil við .ykkur.
Snúrulaust hringspil.
Útvegaðu þjer litla trjeplötu, 50
sentimetra á hvern kant. Skrúfaðu
svo i hana þrettán króka, eins og
sýnt er á myndinni og svo skrifar
Jiú lága tölu við hvern lcrók. Svo
verður þú að útvega þjer nokkra
litla hringi, t. d. gluggatjaldahringi;
hver veit nema hún mamma þín
geti tánað lijer Jiá. — Þvínæst heng-
ir þú plötuna upp á vegg og þú og
fjelagar þínir skiftást á um að kasta
hring tíu sinnum á krókana. Vitan-
lega verða allir að standa í sömu
fjarlægð þegar þeir kasta. sá sem
fær hæstan stlgafjölda hefir unnið.
Annað hringspil.
Tennikojt-hringspil er afar mikið
iðkað á sumrin, en af livi að Jiað
er útileikur, sem við getum ekki
leikið núna, skal jeg kenna ykkur
annan leik, sem hægt er að nota
áhöldin við inni.
Þú festir gamalt kústskaft á trje-
plötu þannig að það standi beint
upp úr plötunni. Og svo standið
þið í ákveðinni fjarlægð frá skai't-
inu og hver fær að kasta hring tíu
sinnum. Sá sem hittir oftast á skaft-
ið hefir unnið.
Tóta frænka.
----x----
SUMMAN AF TÖLUFÍLNUM er
144.
LITMYNDUNIN. Til litmyndunar-
innar ráðleg.« jeg ykkur að nota:
+ svart, 1 ljósrautt, 2 rauft, 3 ljós-
brúnt, 4 brúnt, 5 gult, 6 dökkbrúnl,
7 ljósblátt, 8 ljósgrænt, 9 dökkgrænt.
Litmyndagerð.