Fálkinn


Fálkinn - 09.02.1935, Blaðsíða 5

Fálkinn - 09.02.1935, Blaðsíða 5
FÁLKíIN'N 5 ur sjöundi, var blaðið gefið út í 112.000 eintökum. Þessir tveir menn, Barnes og Delane eiga mestan þátt í þvi áliti, sem The Times hlotnað- ist og hefir haldið jafnan síðan. En aðrir eins snillingar og þeir eru ekki á hverju strái. Eftir að Delane ljet af ritstjórn þótti blaðið setja niður og verða þurrara og einhæfara, þó að enginn neitaði því, að það hjeldi trútt við þá gömlu venju að vera áreiðanlegt og hlutlaust. Það gerði sjer ekki eins mikið far og hin nýju hlöð sem hlupu af stokkunum á þeim árum, um að flytja gífurtíðindi og flenna stórar fyrirsagnir yfir þverar síðurnar; enn þann dag í dag sker The Times úr öðr- um blöðum að því leyti, að það notar tiltölulega smátt fyr- irsagnarlelur. Og önnur ensk hlöð lærðu af því að nota smá- an stíl. The Times liefir löngum átt fleiri aðdáendur og tryggari vini í Englandi en nokkurt annað blað og einu sinnni var það að þessir vinir urðu á- hyggjufullir um örlög þess. Það var þegar Northcliffe lá- varður náði yfirráðum yfir Tlie Times. Meðal eiganda hlaðsins voru ýmsir ætlingjar Jolin Walters og móti vilja þeirra eignaðist Alfred Harmsworth sem síðar varð Northcliffe lá- varður — meiri hluta hlutafjár- ins árið 1907. Fyrstu árin Ijet hann blaðið halda sama striki og áður, en árið 1912 gerði hann Geol'frey Dawson sem nú er ritstjóri blaðsins — að rit- stjóra. Nortlicliffe vildi aulca kaupendalölu hlaðsins, og setti verð þess niður í einn penny, en það hafði þau áhrif, að kaupendal'jöldinn steig upp i 150.000 á einum degi. Þetta var 14. mars 1914. Svo kom heims- styrjöldin og með því óeðlileg- ur blómatími fyrir The Times eins og öll önnur Dlöð, en sá ofvöxtur, liefir víðast haft aft- urkipp í för með sjer. Það var The Times sem kom fram kröf- unni um, að sett væri á stofn sjerstakt liergagnaráðuneyti undir stjórn Lloyd George og það var sama blað, sem geksl fyrir samskotum til Rauða- krossins enska og söfnuðust þar sextán miljónir punda. Og The Times hafði betri og fljótari frjettir frá vígstöðvunum en önn- ur blöð. Einu sinni var það, að hlaðið fjekk merkilegt skeyti — það var um undanhaldið hjá Mons — og þótti blaðinu skeyt- ið svo ótrúlegt, að það þorði ekki annað en strika yfir það merkilegasta úr því, áður en það var sent til blaðaskeyla- skoðarans, sem þá var Birken- head síðar lávarður. En Birken- liead samþykti alt það, sem strikað hafði verið yfir, og sagði að það mætti birtast og tók því um leið á sig ábyrgðina á því Ramakveini, sem varð um alt landið, þegar fólk frjetti ósigur enska hersins við Mons. Árið 1922 varð hlaðið aftur eign Waltersættarinnar og John Jacob Astors majórs, sem nú er formaður í stjórn blaðsins. Og jafnframt því og þessi eig- endaskifti urðu var búið svo um linútana, að trygt þykir, að hlaðið geti aldrei orðið valda- gráðugum blaðkongum að hráð framar. Sjerstök nefnd hefir verið skipuð til þess að sjá um, að blaðið komist aldrei undir völd manna, er nota það í eig- inhagsmunaskyni. í þessari nefnd sitja m. a. forseti hæsta- rjettar, forstjóri Englandshanka formaður fjelags löggiltra end- urskoðenda og vísindafjelags- ins enska og á nefndin að gæta þess, að hlutabrjef fyrirtækis- ins komist aldrei í „viðsjálar" hendur. The Times lieldur afmæli sitt hátíðlegt með þvi að gefa út rit í þremur bindum, sögu sjálfs sín frá upphafi. Fyrsta hindið er komið út fyrir allöngu og nær fram lil ársins 1841. Eng- inn nafngreindur höfundur er að ritinu, en það er skrifað af núverandi og fyrverandi starfs- mönnum hlaðsins í sama anda og blaðið sjálft er skrifað — og nafnlaust eins og greinarnar í Tlie Times, þvi að þar skrifar enginn blaðamaður undir nafni eða merki. Bráðum á að byggja brú, sein kosl ar um 10 miljón krónur, yfir Mis- sourifljótið i Omaha. Meðal þeirra, sem keptu um teikninguna að brúnni var kornung stúlka, verk- fræðinemi, sem lijet Edilh Reed. Hún hafði meiðst við bílslys og datt í hug af rælni, að gera leikningu af brúnni meðan hún lægi í rúm- inu hvort eð var. Og það ólíklega skeði, að það var teikning stúlk- unnar sem var valin. -----x----- Svíar hafa veitt 15 miljón krón- ur á fjárlögum fyrir 1935 til end- urbóta á flugskilyrðum og nýjum flugvöllum. Meðal annars á að byggja í vor nýja flugvita, átla tats- ins meðfram vesturströndinni, alla leið frá Malmö og upp að landa- mærurn Noregs. En norska stjórn- in leggur til, að ekki verði veittar nema 315.000 krónur til bættra flug- skilyrða í Noregi. -----x----- Árið 1929 fiuttist Þjóðverjinn dr. Karl Ritter til Galapagoseyja ásamt frú einni, Hilde Lörwin. Voru þau bæði orðin þreytt á heimsborgar- lífinu og ætluðu að lifa eins og Adam og Eva í Paradísinni þarna á Galapagoe. Nýlega fundu amerískir veiðimenn tvö lík, af karli og konu niður við fjöru á Charles Darwins- ey á Galapagos og þykir víst, að það sjeu lík Ritters og frú Lörwin. Hafa þau dáið úr hungri. ----x----- Poincaré fyrverandi Frakklands- forseti liafði gefið ríkinu hús sitt í Sampigny áður en hann dó. Skal ekkja hans hafa ibúð þar til æfi- loka en síðan skal gera barnaheim- ili á staðnum. Ennfreinur hafði hann iagt fram fje í sjóð, sem skal varið til þess að gefa hverju barm dálitla peningagjöf um leið og það fer af heimilinu. ----x----- Þýska loftskipið L. Z. 129, sem nú er í siníðuin í Friedrichshaven á að hyrja farþegaflug yfir Atlants- hafið, milli Þýskalands og Lake- liurst eða Miami á Florida um iniðj- an júlí. Loftskipið teliur 50 far- þega og getur auk þess flutt 20 smá- lestir af póstflutningi. Flugtíminu er óætlaður 48 tímar vestur yfir hafið en 55 tímar austur og far- miðinn kostar 300 dollara. ----x----- Skáldsaga Kristmanns Guðmunds- sonar, „Morgun lífsins“ hefir birst sem framhaldssaga i þýska viku- blaðinu „Die Woche“ i sumar og er nú komin út i bókarformi á for- lag Piper & Ci í Múnchen. Þessi skáldsaga hefir einnig verið seid forlagi Heinemanns í London, Hol- ger Schildt í Stokkhólmi og Werner Söderström í Helsingfors. Auk þess kemur hún út á ítölsku á forlag Mondatori í Mílano og ætlar það forlag líka að gefa út „Sigmar", „Den förste vár“ hefir verið þýdd a þýsku, dönsku og hollensku, og „Den blaa kyst“, sem fyrir nokkru er komin út á þýsku, er að koma út á tjekknesku. Sama bók hefir verið þýdd á ungversku, nýgrísku, hollensku pólsku og frönsku. „Helga- fell“ er nýkomin út á dönsku lijá Hasselbalch og hefir einnig verið ]>ýtt ó ameríkuensku. ----x----- Innocenz Carzara gestgjafi í Berg- amo er nýlega orðinn pabbi í 23. skifti. Hann er nú 61 árs. f fyrsta hjónabandi átti hann tíu börn og lifa fjögur þeirra. í öðru hjóna- bandinu átti hann sex börn og af þeim lifa tvö. Og í þriðja hjóna- bandinu eignaðist hann 12 hörn, sem öll lifa. Hann á alls 18 börn á lífi, og segist geta bætt við mörgum enn. ----x----- Á strútabúi einu í Kaliforníu er verið að gera vísindalegar tilraun ir með því markmiði að kenna strútunum að fljúga. Eru valdir úr þeir fuglarnir, sem hafa best brjóst og vængvöðva. En vængir fuglanna eru óhæfir til fiugs. Þó ólíla vis- indamenn, að strúturinn hafi getað flogið forðum daga, því að annars liefði hann ekki verið skapaður með vængjum. Nú á að reyna að kenna fuglunum flugtökin og er búist við að það takist að gera strútinn fljúgandi. ----x----- Klukkan í Hollandi hefir hingað til verið 40 mínútur undan Mið- Evróputima og 20 mínútum eftir Greenwichtíma. Nú á að breyta þessu og vill innanríkisróðuneytið seinka klukkunni um 40 mínútur, svo að hún fylgi Mið-Eyróputíma. -----------------x----- Fellibylur varð fyrir nokkru í Shanghai og hafði lyft með sjer tveggja metra langri eiturnöðru, og lenti hún á götu í útlendingahverfi borgarinnar og kom öllu í uppnám. En huguðum manni tókst að drepa nöðruna áður en hún gerði ilt af sjer. ----x----- Ameríkanska kvikmyndakonan Edwina Booth, sem Ijek í mynd- iiini „Trader Horn“ fyrir nokkrum árum — en sú inynd var tekin suð- ur í frumskógum Afríku, hefir höfð- að mál gegn Metro-Goldwyn-Mayer og krefst þess að fjelagið greiði sjer 4 miljón krónur í skaðabætur. Ilún hefir verið rúmföst að mestu siðan hún var í Afríku. Þar hafði hún fengið sólstungu og malaria og það er óhugsandi að hún geti starfað að kvikmyndaleik framar. ----x----- Það er sagt um íbúa Rússlands nú á tíinum, að þeir brosi aldrei. Hinsvegar verður ekki annað sagt en þeir lesi mikið. 1 Moskva einni eru 2152 bókasöfn með 42.000.000 bókum. Samkvæmt skýrslum eru bókalántakendur í Moskva 3. 147.105 -----------------x----- ítalska lögreglan tók nýlega fasta tvo menn, sem versluðu með fölsk heiðursmerki. Þeir höfðu t. d. búið til „orðu hins heilaga Georgs af Belgiu“. Fjöldi manna hafði látið blekkjast af þessari verslun og höfðu borgað alt að 5000 lírur til þess að fá orðuna. ----x----- í Portland í Oregon dóu 24 manns af áfengiseitrun rjett fyrir jólin, en 10 urðu blindir. Áfengið höfðu allir fengið á sama staðnum, á leyniknæpu við höfnina. ----x----- Á skotmóti sem haldið var i New York í desember og Ameríku- menn, Þjóðverjar og Englendingar tóku þátt í, fjekk Ameríkumaðurinn Bond 400 stig af 400 mögulegum — hitti í blett í hverju einasta skoti. Gamla heimsmetið átti Englending- urinn Longhurst og var það 396 stig en fyrra heimsmet átti Svíinn Bertil Rönmark, 393 stig. En nýja metinu verður ekki hrundið. Skot- maðurinn skaut öllum skotunum liggjandi. ——x------- Hajli turninn í Písa er nú kom- inn að niðurlotum, til mikillar skapraunar öllum Písa-húum, sem hafa grætt miljónir á turninum. Ilann hallast nú meira og meira og nefnd sem skipuð var til að at- huga turninn hefir komist að þeirn niðurstöðu, að honum verði ekki við bjargað. Fregnin hefir vakið þjóðarsorg um alla Ítalíu. ----x----- Kirkjan í Meráker i Þrændalög- um átti 60 ára afmæli ýnlega. Það þótti sjerstætt við þetta afmæli, að sami organistinn, sem spilaði á or- gelið þegar kirkjan var vígð, er enn organisti kirkjunnar. ----x----- I Mojave í Ivaliforníu hefir ný- lega fundist gull í jörðu og hafa gullgrafarar þyrpst til bæjarins undanfarið. Þau fáu hús, sem voru í þorpinu eru orðin troðfull af námamönuum, en fjöldi liggur i tjöldum eða úti á víðavangi í von um að fá útmældan námuteig. Mest af þessu fólki eru atvinnuleysingjar. -----------------x----- Ufa-kvikmyndafjelagið hefir ný- lega lokið við kvikmyndina „Si- gaunabaróninn“, óperettu eftir Jó- hann Strauss og er að byrja á stór- mynd, sem heitir „Barcarole“ og gerist i Venezia. í Þýskalandi er verið að undirbúa töku þriggja sögulegra stórmynda; fjallar ein um Ágúst sterka Pólverjakonung, önn- ur um Oliver Cromwell og sú þriðja um Joh. Sebastian Bach og á að koma ó markaðin í ór, i til- efni af 250 ára afmæli tónskálds- ins. ----x----- Á eyjunni Ceylon hefir malaria- sótt gengið og verið skæð undan- farið. Snemma i desember voru um 800 malaria-sjúklingar ó spitölun- um og er það óvenjulega mikið. Skemtiferðaskipin hafa aflýst kom- um sínum þangað vegna sóttar- innar.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.