Fálkinn - 09.02.1935, Blaðsíða 8
8
F Á L K 1 N N
Myndin að ofan t. v. ev ekki af
tuskubjörniinum, sem fást í búðun-
um heldur af lifandi bjarnarungum
í skógum Ástralíu. — Hjer að ofan
sjást nemendur við Eton-skólann
vera að leika sjer, i svonefndum
„wallgame‘‘ leik.
Svíar voru meðal þeirra, er sendu
herlið til Saar, til þess að gæta laga
og reglu meðan atkvæðagreiðslan
færi fram. Hjer sjest Svíakonungur
vera að kveðja herdeildina, á
myndinni t. v.
Myndin að neðan t. v. sýnir ara-
biska kaupmenn gera bæn sína í
eyðimörkinni Sahara og snúa sjer
til Mekka meðan á bæninni stendur.
— Að neðan sjást skólastúlkur í
Adrianopel í skrúðgöngu i minn-
ingu þess, að bærinn frelsaðisi úr
klóm Tyrkja 1921—22.
<