Fálkinn


Fálkinn - 11.05.1935, Side 3

Fálkinn - 11.05.1935, Side 3
FÁLKINN 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—6. Skrifstofa i Oslo: Anton Schjöthsgade 14. BlaPifi kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.50 á mánuði; kr. 4.50 á ársfjórSungi og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. Aughjsingaverð: 20 aura millimeter flerbertsprent, Bankastræti 3. Skraddarabankar. Óttinn við að ofgera. ÞaS er ástæðulaust af þjer að hafa beyg af þvi að sýna manngöfgi. Versti óttinn er beygurinn af aS vera göfugmenni. Og smásálarlegasta ánægja ntanns- er sú, aS gera sig ánægðan meS aS vera eins og aSrir. Ef þú sýnir einhverjum vini þin- um tiltrú þá sýndu honum tiltrú gegn um þykt og þunt. ÞaS getur auðvitað komið fyrir, aS þú hafir vonbrigði af honum og að hann sýni sig ekki verðugán traustsiii». En þjer er miklu betra, aS hann bregðist tiltrú þinni, en að þú trúir honuin ekki nema að noltkru leyti. Ef þú elskar konuna þína, þá elskaðu hana takmarkalaust. ÞaS getur vel verið að hún kunni ekki að meta það. En það er betra að elska án þess að fá viðurkenningu, en að fara á mis við þá gleði, sem fullkomin ástúð veitir. Vertu elcki hræddur við að „kasta perlum fyrir svín“. ÞaS er betra en að setja þær undir mæliker. Og Jesús, sem orðin talaði, kastaði sin- um perlum. Vertu ekki feiminn við að fyrir- gefa. Sá, sein í hlut á, er ef til vill ekki verður þess, að þú fyrirgefir honum; en fyrirgefning þín er eigi minna virði fyrir það, heldur þvert á móti. Vertu ekki hræddur við að sýua alúð, því að einmitt með því gerir þú þig vináttu verðan. Vertu ekki hræddur við að vera bjartsýnn og vonast eftir því góða. ÞaS er betra að hið misjafna komi eins og þjófur á nóttu, alveg á c- vart, heldur en að þú búist altaf við þvi og gerir ráð fyrir að það komi. Vertu ekki hræddur við aS vera alúðlegur. ,,í þessuin heimi“, segir Marivaux, „verður maður aö vera of alúðlegur ef maður á að vera nógu alúðlegur. Frank Crane. LEIKHÚSIÐ: Alt er þá þrent er! Fyrir nokkrum árum sýndi leik- fjelagið einkennilegan leik, sem Draugalestin hjet og var eftir enska höfundinn Arnold Rid'ey. Nú hefir leikfjelagið tekið annan leik þessa höfundar til sýningar hjer og var hann sýndur í fyrsta sinn á sunnu- daginn var. Nefnist hann í þýðing- unni „Alt er þá þrent er“. Þessi leik- ur er stórum skemtilegri en hinn fyrri og persónuteikningar hans svo sjerkennilegar, að það margborgar sig að horfa á hann. Má þar ein.t- um nefna aðalpersónurnar sira Fear, sem Alfred Andrjesson leikur og „kavaler undirheimanna", g’æpa- manninn Meggitt, sem Brynjólfur Jóhannesson hefir gert aS bráð- skrítinni persónu. Leikurinn er þýddur af frú E. Waage, en leik- stjórnina hafði Gunnar Hansen og er þetta síðasti leikurinn sem hann liefir undirbúið á leiksvið hjer á þessu leikári. Heildaráhrif leiksins eru mjög góð óg það er áreiðanlegt, að flestir sjá leikinn sjer til óblanct- innar skemtunar. Myndirnar sýna i efri röð frá v.: Alfred Andrjesson, Brynjólf Jóhannesson og Gunnar Möller, en í neðri röðinni sjást Gunnþórunn Halldórsdóttir, sem ráðskona prestsins, Nini Stefánsson og Karl SigurSsson og Arndís Björnsdóttir. Knutson þingmaður i Minnesota hefir flutt frumvarp um að banna Bandaríkjamönnum að bera orður erlendra rikja. Má enginn þiggja orðu eða bera, nema hún sje feng- in fyrir frækilega framgöngu í styrjöld. ----x---- Fjörugt brúðkaup var nýlega haldið i Grodno i Póllandi. Gest- irnir urðu ósáttir og fóru að berj- ast með hnífum, öxum og öðrum vopnum sem til náðist. Og smám saman flæktust allir „vopnfærir þorpsbúar i bardagann. Að leiks- lokum lágu þrir fallnir i valinn en tvær hlöður höfðu verið brendar til ösku. Þriðji sonur Alfons Spánarkon- ungs hefir trúlofast prinsessunni Maríu de las Mercedes. Ef konung- dæmi kemst aftur á i Spáni er það þessi prins sem stendur til rikis- erfða því að hinir eldri synirnir báðir hafa fyrirgert rjetti sinum til ríkisins með því að giftast ótign- um stúlkum. Pjetur Hjaltested stjórnarráðs- ritari verður 70 ára 12. mai. Jón Guðmundsson bóndi í Ljár- skógum varð 65 ára 7. maí. Ekkjan Agnes Gíslad. Bakka- koti verður 70 ára 14. mai.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.