Fálkinn


Fálkinn - 11.05.1935, Síða 5

Fálkinn - 11.05.1935, Síða 5
F A L K I N N 5 ítalskt herliö að fara um borð áleiðis til Afriku í ófriðinn gegn Etiopum. ast þeir vera komnir í’rá Jerú- salem og hafa mjög svipaöan átrúnaÖ og gyðingar. En hinir eiginlegu Etiopar, sem nú ráða í landinu eru mjög ólíkir þess- um þjóðflokkum í útliti. Þeir eru langir i andliti, hafa fall- egt nef, þykkar varir, svart hár og gisið skegg, eru í meðallagi á hæð og sterklega vaxnir. Þeir kalla sig kristna en eru í trú- málaflokki fyrir sig, etiopiska kirkjufjelaginu. ítalir hjeldu þvi fram, er verið var að taka Etiopa inn í alþjóðasamhandið, að þeir væri á svo lágu menningarstigi, að þeir væri ekki hæfir til að skipa þar sæti. Að nokkru leyti má þett% til sanns vegar færa. Þeir eru annálaðir fyrir leti, huglausir og hverflyndir og óþrifnir í meira lagi, svo áð það er undantekning ef ó- lúsugur maður fyrirfinst þar. Þó hefir þetta batnað á síðustu árum. Nautnamenn eru þeir miklir, og mestu óreiðumenn í öllum viðskiftum. Þeir eru gestrisnir við landa sína en am- ast mjög við útlendingum og sýna þeim litla kurteisi. 1 sið- um og klæðaburði eru þeir á lágu stigi. Þeir lifa nær eingöngu á landbúnaði, en mjög eru vinnu- aðferðir þeirra á lágu stigi. Rækta þeir allar venjulegar korntegundir og að aulci ban- alia, sinnep, kaffi, tóbak og bómull. Samgöngutækin erú mjög ófullkomin og háir það utanrikisversluninni. Helstu út- flutningsvörur þeirra eru kaffi, gull, fílahein, hunang, gúmmí, skinn og myrra. Addis Aheba, höfuðborgin, og Harrar, eru mestu verslunarborgirnar og er járnbraut frá Harrar til höfuð^ borgarinnar Diibouti við Aden- flóa i Enska Somalilandi. Fei langmestur hluti útflutningsins um Diibouti. — — Það er núverandi stjórnandi landsins, sem gengst fvrir þeim umbótatilraunum, sem þessi ár- in eru gerðar í Etiopíu. „Kon- ungur konunganna af Etiopíu, ljón Júða, guðs útvaldi", fyrr- um prins eða .,Ras“ Negus Ta- fari, hafði stjórnað hæði v'el og lengi þegar hann ljét krýna sig keisara í Etiopiu árið 1828 og tók sjer heitið Haile Selassie 1. Hann komst til valda árið 191(5, þegar þjóðin sneri baki við harðstjóranum Lei Jasu, sem var hlyntur Múhameðsmönnum í trúmálum og hafði þessvegna verið ger rækur úr söfnuðum kristinna manna. Hinn ungi keisari Haile Selasie hann varð fertugur í fyrra — hefir stjórnað með myndugleik og verið óspar á að reyna nýj- ungar. Landið skyldi taka framförum, hvað sem það kostaði, og þegar peningunum varð ekki náð á annan hátt skattlagði keisarinn höfðingj- ana, sem áður höfðu verið skattfrjálsir. Hann reisti full- kominn skóla í Addis Ababa og setti á stofn fyrirmyndarbú; hann keypti hraðpressu frá Ev- rópu og síðustu árin liefir hann einkum unnið að því, að af- nema þrælaverslunina. Ilann hefir sent fjölda ungra manna til náms til höfuðborga Ev- rópu. Og þegar hann fór sjálf- ur í hið mikla Evrópu-ferðalag sitt árið 1924, þá hafði hann með sjer tuttugu prinsa til þess að gefa þeim tækifæri lil að kynnast heiminum og sjálfur var hann með nefið niðri í öllu. í þeirri ferð keypti hann sjer hifreið og óhemju af vekjara- klukkum, sem hann gaf æðstu embættismönnum sínum, þeg- ar hann kom heim! Ýmsir kunnir menn iiafa alla umbótaviðleitni keisarans að háði og spotti og skýra frá því með mikilli ánægju, að fram- kvæmdir hans sjeu mjög illa þokkaðar í Etiopiu, þvi að landið hafi engin skilyrði til áð gera sjer mat úr þeim. Þjóð- in sje á svo lágu þroskastigi ennþá, að hún verði að lifa á- fram við gamla háttu og siði. Það er gamla sagan um, að þjóðirnar megi ekki læra nýja siði fyr en þær sjeu orðnar „þroskaðar“ fyrir þá - sama kenningin, sem Mustafa Kemal liefir svo eftirminnjlega sniiið í villu hvað Tyrki snertir. Haile Selassie hefir meðal annars gert alt sem hann hefir getað til þess að koma þjóð sinni í samband við Evrópu- þjóðirnar og brotið þar í bága við innilokunarstefnuna, sem frá alda öðli hefir verið ráð- andi í Etiopíu. llann hlaut á- mæli af því að láta Etiopíu ganga í þjóðabandalagið árið 1923. En það sýnir sig nú, að einmitt með kynningu sinni við Evrópuþjóðirnar, liefir hann trygt sjálfstæði landsins. Ef Etiopia væri ekki í alþjóða- sambandinu uú, mundu ítalir hafa þar frjálsar hendur, svo og aðrar þjóðir, og gætu farið eins að ráði sínu þar og Jap- anar hafa gert í Mandsjuko — lagt landið undir sig þegjandi og hljóðalaust, án þess að nokkurt stórveldanna hreyfði hönd eða fót. En nú ber al- þjóðabandalagið ábyrgð á sjálf- stæði ríkisins. Því að þó Etiopíumenn seg- ist hafa 800.000 manna her og nóg af skotvopnum, má gera ráð fyrir, að þeir mættu ekki við ítölum. MIÐDEGISBLUNDUR GAMLA MANNSINS. Vorsýningin á Charlottenborg í Kaupmannahöfn stendur yfir um þessar mundir og var að venju opn- uö með konungsheimsókn og drotn- ingar. Meðal mynda sem athygli vekja ó sýpingunni núna, er sú sem sjest hjer að ofan og er eftir rríál- arann Sand Hblm. Hún heitir „Mið- degisblundur gamia mannsins". Sögurnar um „ríka frænda í Am- eríku“ rætast stundum. Svo reyndist að minsta kosti frú Záuner í Wien nýlega. Hún rekur þar kaffi hús, en hefir ekki tekist að verða rík. Þang- að til að hún um daginn fjekk brjef frá Ameríku um að hún hefði erft ;ty2 miljón dollara eða 15 miljón austurriskra shillinga eftir frænda sínn, sem fluttist til Ameríku fyrir mörgum árum. -----x---- „Komið og litið inn til mín við tækifæri1, er Mae West kvikmynda- leikkona vön að segja að skilnaði, þegar hún talar í útvarpið. Martin Ttjen frá Skagway i Alaska tók hana á orðinu og gerði sjer ferð alla leið til Hollywood til að heimsækja hann. Hann fjekk bestu viðtökur og var gestur Mae West meðan hann stóð við í Hollywood. -----x---- Fyrir nokkru auglýsti franskt for- lag eftir manni til áð þýða bók úr ensku. Það var glæpasaga og gerð- ist að miklu leyti í fangelsi og úði þar og grúði af allskonar orðatil- tækjum, sem aðeins fangar kunna að nota. Forlagið auglýsti því, að þýð- andinn yrði að sanna, að hann hefði verið i fangelsi í Englandi og Frakk- landi tvö ár minst og yrði auk þess að vera góður málamaður. Tíu gáfu sig fra'm og einn var tekinn, því að hailn var lögfræðingur auk þess að hann uppfylti settu skilyrðin. Þýð- ingin var gefin út og reyndist ágæl. En þegar forlagið ætlaði að fara að borga þýðingarlaunin, vildi þýð- andinn ekki taka einn eyri. Hann kvaðst hafa þýtt bókina að gamni sinu og ekki þurfa á fje að halda, því að hann væri fyrir löngu orð- inn fjáður maður. ——x------ Huey Lohg lieitir landstjórinn í Louisiana og er einvaldur þar. Nú kveðst hann ætla að bjóða sig fram við næstu forsetakosningar í Bándaríkjunum og er þegar farinn að halda skammarræður yfir Roose- velt í útvarpinu og gefa kosninga- loforð. Það eftirtektarverðasta þyk- ir, að hann vill gera upptækar all- ar einstaklingseignir, sem nema meiri en fjórum miljón dollurum til þess að bæta úr atvinnuleysinu. Verði það gert eignast rikissjóður 165 miljard dollara — og fyrir það er hægt að gera mikið — segir hann.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.