Fálkinn - 11.05.1935, Page 11
F Á L K I N N
11
YMft/W
LS/&H&URHIR
Ú t i I e i k i r.
ÞiÖ eigiö nú líklega ekki erfitl
með að finna ykkur eitthvað til
skemtunar þegar sumariö fer í
hönd og þið getið verið úti öllum
stundum. En jeg ætla samt að
minnn ykkur á nokkra útileiki, sem
þið sjálfsagt kannist við, en hafið
ekki gert ykkur grein fyrir hvað
lítið þarf til þess að leika þá með
og þessvegna gengið á snið við þá.
Ef þið leitið vel hjá ykkur
heima, þá efast jeg ekki um, að
þið finnið einhversstaðar gamalt
þvottaklapp, eða einhverja spítu,
sem líkist klappi. Og þá get jeg
ként ýkkur skemtilegan leik, sem
lítinn útbúnað þarf við, þó að það
sje vitanlega betra að hafa gamlan
tennisspaða en klappið. Líka getið
þið tálgað ykkur spaða úr fjöl, lil
þéss að hafa i þessum leik. Hann
heitir stangartennis.
Þið fáið ykkur þriggja metra
langa stöng. og grafið hana vel nið-
ur svo að hún skekkist ekki. Efsl
á stönginni hafið þið trissu og um
hana snæri, á að giska 5 metra á
lengd. í annan enda snærisins
festið þið tennisbolta eða annan
óholan gúmmíbolta; er best að
festa hann með því að ríða neti
utan um hann. Hinn endann bin.d-
ið þið fastan um stöngina að of-
an, þannig að boltinn verði uin
einn meter frá jörðu.
Og nú getur leikurinn byrjaö.
Þátttakendurnir eru tveir og hafa
þeir hvor sinn spaða eða klapp.
Standa þeir sinn hvoru megin við
stöngina. Og nú er leikurinn í því
fólginn að verða fyrstur til að slá
boltann í sífellu, án þess að missa
nokkurntíma af lionum, þannig að
snærið vefjist utan um stöngina
og boltinn komist alveg að henni.
Þetta er alls ekki auðvelt, því að
mótstöðumaðurinn gerir sitt til að
slá i boltann á móti svo að hann
fari í öfuga átt, svo að boltinn fari
öfuga leið kringum stöngina, þvi
að þá sigrar hann.
Það þarf mikla leikni til að hitta
boltann þar sem hann er á ein-
lægu iði í loftinu, og jeg er viss um
að þið hafið gaman af að glíma
við það.
Hefir ykkur nokkurntíma hug-
kvæmst livað það getur verið gam-
án af að hafa stökkstöng, eins og
strákarnir í Þjettmerski hafa, til
þess að hlaupa á yfir girðingar,
skurði og þessháttar. Á stökkstöng-
inni komist þið yfir allskonar tor-
færur og eins og þið vitið er stang-
arstökk mjög falleg íþrótt. Þið
skuluð stinga upp á því við kunn-
ingja ykkar að útvega sjer stökk-
stöng og svo skuluð þið hafa kapp-
hlaup með stökkstöngum, helst þar
sem nóg er af torfærum, og sjá
hver verður fræknastur.
1 Bandaríkjunum, þar sem svo
mikið er um bílana að fimti hver
maður á bil, hafa 'börnin fundið
upp nýja tegund af rólum. Þau
taka bíladekk, sem eru orðin ónýt
og hefir verið fleygt, og búa sjer
til rólur úr þeim. Ef þið eignist
gamalt bíladekk og finnið hentug-
an stað til þess að hengja upp
Einföld róla.
rólu, til dæmis þvottasnúrustólp.a
— þvi að ekki hafið þið nein trje
til að hengja róluna upp í eins og
strákurinn á myndinni — þá getið
þið reynt hvernig þessar amerík-
önsku rólur eru. Það skaðar ekki
að vita það. Rólan er aðeins með
einu bandi, svo að hún getur hreyfs.t
í allar áttir.
KROCKEY.
Ef þið eruð orðin leið á að spita
krocket þá getið þið breytt til og
tekið upp alla krocketbogana og
notað völlinn fyrir „krockey-völJ“.
Ef þjer notið hina in-
dælu ilmsápu Lux,
munuð þjer komast
að raun um, hversu
auðvelt það er að
hafa fallegt hörund.
Hlustið á
Claudette
FEGURÐARSÁPA KVIK-
MYNDADÍSANNA
846 af 857 helstu stjörn-
unum í Hollywood varð-
veita fegurð sína með Lux
sápu. Hún er notuð í öll-
um stóru kvikmyndahöll-
unum. Lux sápan gefur
mjúka og hressandi froðu,
sem hreinsar gjörsamlega
burtu öll óhreinindi, sem
safnast á húðina og í
svitaholurnar, og gerir
húðina blómlega ogsljetta.
Ef þjer notið ekki þegar
Lux, skuluð þjer breyta til
nú þegar og várðveita feg-
urð yðar, éins og kvik-
myndastjörnurnar.
Stjarna hjá Paramount.
Lux Toilet Soap
X-LTS 365-50 lever brothers hmited, port sunlight, enqland
Þið skiltið ykkur i tvo flokka
og gerið um eins metra breitt mai k
við báða enda vallarins. Svo takið
þið hver sína krocketkylfu og
veljið úr þá kúluna sem minstar
ójöfnurnar erú á og notið. hana
fýrir hnött.
Svo gilda sömu reglurnar í þess-
um leik. eins .og hockey eða knatt-
spyrnu. Leikurinn hefst á miðjum
vellinum og er í því fólginn að
koma kúlunni gegnum varnarlinu
andstæðinganna og i inark.
Tóta frænka.
Orðasafnlð.
í þessum leik geta verið svo marg-
ir sem vilja. Hver þátttakandi fær
sitt blað og svo á sá sem stý.rir leikn
um að nefna einhvern bókstaf, t. d.
B. Þá taka allir til óspiltra málanna
og skrifa á blaðið eins mörg orð
og þeir muna, og þau verða öll að
byrja á stafiiium sem nefndur var.
Eftir eina mínútur er leikurinn
stöðvaður og blöðín skoðuð og hef-
ir sá unnið, sem flest orðin hefir á
sinum lista. Þessvegna er um að
gera að velja svo stutt orð sem mað-
ur getur.
Andrevv Mellon fyrv. ráðherra i
Bandaríkjunum og auðmáður, ver
miklu fje til' málverkakaupa. Hann
hefir t. d. keypt fimm fi-ægustú rrtál-
verkin úr rússnesku veiðihöllinni
„Eremitage“ fyrir samtals 3.30U.000
dollara eða um 14 miljón krónur.
Þessi málvérk eru: „Altarislafla“
eftir Perúgino (fýrir 200.000 doll-
ara), „Tilbeiðsla konunganna“ eftir
Boticeííi (850.000), „Snyrting Venus-
ar“ eftir Tizian (500.000), „Madonna"
Rafaels (1.200.000) og „Boðunin"
eftir van Éyck (-500.000 dollarar).
Mellon á 8 myndir eftir Rembrandt,
þar á meðal eina sem fanst í Vahás
í Sviþjóð fyrir nokkrum árum og
hann keypti fyrir 1.500.000 doll-
ara. Nú ætlar Mellon að reisa bygg-
ingu fyrir fyrir listasafn sitt í
Washington.
----x-----
Metro-Goldwyn-Mayer-fjelagið 1
Hollywood kvað nú ætla að kvik-
mynda óperur fyrir um 2 miljónir
(lollara. Er hljómmyndin orðin svo
fullkomin, að það er talið borga
sig . að ráða dýra söngvara til þess
að syngja óperuhlutverk á kvik-
myndir.
Það eru fleiri . en filmleikararnir
sem græða peninga. Höfundar kvik-
mynda græða óspart líka. í Holly-
wood eru um 2000 manns sem lifa
á því að semja kvikmyndahandrit
og fá þeir að meðaltali 500 dollara
í kaup á viku en það er meira en
leikarnir fá að meðaltali.
----x-----
Amanullah fyrrum konungur i
Afganistan hefir verið búsettur i
Rómáborg i nokkur ár en fór ný-
lega þaðan til þess að takast á
hendur pílágrímsför til Mekka. Ætl-
.ar hann að biðjast fyrir við gróf
spámannsins ásamt hirð sinni.