Fálkinn


Fálkinn - 24.08.1935, Qupperneq 6

Fálkinn - 24.08.1935, Qupperneq 6
6 F Á L K I N iN Herbergið John Chester hefði aldrei átt að verða stjórnmálamaður. Jeg er sann- færður um, að hann hefði orðið á- gætur skáldsagnahöfundur og sög- urnar hans hefðu runnið lit. En í stað þess að gera það, liafði hann nú setið á þingi í 2 ár. John Chester var hermannlegur í framgöngu. Hann líktist marskálki, með hvíta yfirskeggið og beina bak- ið. Hann þekkir alla, er alstaðar og á fleiri kunningja en flestir menn í Evrópu. Hann er þannig, að ja'fn- vel dulustu menn gera hann að trún- aðarmanni sínum. Fyrir viku snæddi jeg miðdegis- verð með honum í einu fínasta veit- ingahúsinu í borginni. Kunnur fyr- verandi ráðherra sat við næsta borð. Chester hafði verið óvenjulega þög- 1111, og jeg. fór að halda að hann væri i slæmu skapi. En þegar ráð- herrann stóð upp og fór, brosti hann og sagði: — Þarna fór merkilegasti maður- inn í öllu Englandi. Já, jeg veit það. Það er sjerstök gáfa hjá hon- um að geta ráðið gátur, sem enginn annar botnar í. Það var hann sem rjeð Farringham-gátuna. Og samt Chester þagnaði og horfði á mig, eins og jeg væri að trufla hann. Af og til, hjelt hann áfram hægt og bítandi og sneri skeggið, er jeg að velta því fyrir mjer hvort hann viti ekki meira úm það má! en hann lætur. Sem forsætisráð- herra ætti hann að gera það. Hann var nefnilega forsætisráðherra þeg- ar það gerðist. Þjer gerið mig forvitinn, sagði jeg. Chester tæmdi glasið. - Þjer hafið þá aldrei heyrt um Farringham-málið? Nei, það er ekki að furða. Það eru um þrjátíu ár síðan. Jeg kveikti í vindli og bjó mig undir að heyra eina af mörgum kynlegum sögum, sem Chester var meislari í að segja. Frú Farringham var falleg ekkja, lióf hann máls. Hún var sólg- in í að ferðast. Hún var rík og ferðaðist úr einu landi í annað, eins og aðrir fara milli klúbba. Hún hafði aldrei vinnustúlku með sjer, en dóttir hennar, sem ávalt var með henni, gerði alt til að vera henni tii aðstoðar. Jeg hitti þær einu sinni í Firenze. Dóttirin mun hafa verið um tvítugt og frú Farr- ingham um fertugt, þó luin væri ekki stórum ellilegri en dóttirin. Hún var með ítölskum prinsi, sem anri- að livort mun hafa átt að verða maðurinn hennar eða tengdasonur hennar. Jeg botnaði ekki í hvernig því var varið, og vildi auðvitað ekki spyrja um það. Hún bauð mjer að koma heim til sín þegar lnin kæmi til London. Jeg hafði hugsað mjer að þiggja þetta boð, þegar jeg kæmi heim, en nú skuluð þjer heyra hversvegna jeg fjekk ekki tækifæri til þess. Þetta gerðist árið sem sýn- ingin var í París, 1900. Farring- hamsmæðgurnar höfðu verið á ferða- lagi um Rússland og Tyrkland. Þær höfðu dvalið viku í Stambul og ætl- uðu sjcr þaðan austur í Asíu, en Jiað fór alt út um þúfur, því að frú Farringham fjekk alt í einu þá flugu að fara heim og kaupa gólf- dúka í stofurnar sinar í London. Mæðgurnar fóru til Thomas Cook. sem skýrði fyrir Jieim hvernig Jiam ættu að komast heim á Jiægilegastan og fljótlegastan hátt. Hann ráðlagði á fjórðu hæð. Saga eftir RALPH STRAUS. þeiin að staldra við tvo daga í París. Sýningin hafði sem sje nýlega ver- ið opnuð. Jeg held ekki að frú Farringham hafi kært sig neitt um liessa sýningu, en dóttir hennar var hrifin af ráðleggingunni og það varð úr, að þær skyldu standa við einn sólarhring i París. Þremur dögum síðar óku þær inn á járnbrautarstöðina í París. Klukk- an var átta að kvöldi. Þær höfðu snætt miðdegisverð i lestinni. Þær fengu sjer bíl og bílstjórinn náði i flutninginn, þrjú stór koffort og græna handtösku, sem hann setti ofaii á bílinn. En áður en hann ók af slað tók hann grænu töskuna ofan aftur og setti hana fram í, við hliðina á sjer. Hann mun hafa venð hræddur um, að hún dytti ofan af bílnum á leiðinni. Þegar þær koniu á eitt af stóru gistihúsunum — jeg man ekki leng- ur hvað liað hjet — báðu þær um tvö samliggjandi herbergi. Hótelstjórinn hristi höfuðið. — París er full af sýningargestum, sagði hann. Mjer er ómögulegt að útvega tvö herbergi saman. En ef frúin vill gera sjer að góðu herbergi á fjórðu hæð og ungfrúin annað á fimtu, þá skulum við reyna að láta fara eins vel um ykkur og unt er. Öll framkoma hans lýsti því, að vegna Jiess hve frúin var lagleg vildi hann gera alt sem í hans valdi stæði. Mæðgurnar gengu að þessu og rituðu nöfn sín í gestabókina. Ármaðurinn annaðist um koffortin og stúlka fylgdi mæðgunum til her- bergjauna. Herbergi frú Farringham var ekki stórt, en þægilegt og vist- legt. Herbergi dótturinnar var beint upp yfir. Ármaðurinn flutti tvö koffortin upp á herbergi dótturinnar en setti eitt stóra koffortið og grænu tösk- una inn í herbergi frú Farringham, eins og hann hafði verið beðinn um. Hann fjekk vikaskilding sinn * og fór. Stúlkan fór líka út og mæðg- urnar sátu einar eftir. Ungfrú Farringham sat um stund hjá móður sinni og hjálpaði henni að taka upp úr koffortinu. En hún var þreytt og hafði orð á að fara að hátta. Svona snemma? sagði móðir hennar. Klukkan er ekki orðin níu! - Jæja, sagði stúlkan. Jeg ætla liá að leggja mig svo sem hálftima og svo kem jeg niður til þin aftur. Og svo fór hún upp í herbergi sitt á fimtu hæð. Hún var ósköp syfjuð. Maður hlýtur að verða syfjaður þegar mað- ur ferðast tvo sólarhringa viðstöðu- laust án þess að hvilast. Hún lagðist á rúmið í öllum fötunum og var steinsofnuð eftir tvær mínútur. — Chester tók málhvild og helti a glasið sitt. — Ósköp venjuleg saga, finst yð- ur ekki? sagði hann. Jeg brosti. — Ef jeg þekki yður rjett Jiá fer hún að verða spenn- andi, svaraði jeg. — Klukkuna vantaði tíu mínútur í tólf Jiegar unga stúlkan vaknaði aftur, hjelt hann áfram. Hún fór niður á fjórðu hæð og drap á dyrn- ar lijá móður sinni. En liað kom ekkert svar. Hún opnaði hurðina og fór inn. Það var dimt i herberginu og hún kveikti. Itúmið var ósnert og leit út fyrir, að herbergið hefði verið búið undir að nýr geslur kæmi þangað. Hún hjelt fyrst að hún hefði farið inn í skakt herbergi og fór fram á ganginn. En öðru megin við dyr tóma herbergisins var bað- klefi en við dyrnar hinumegin stóðu karlmannsstígvjel. Hún Jióttist líka viss um, að hún hefði munað núm- erið rjett. Hún hringdi á stúlkuna. — Jeg hefi víst vilst, sagði hún. Jeg hjelt að þetta væri herbergi móður minnar — þetta er fjórða hæð er ekki svo? Stúlkan liorfði undrandi á hana. - Jú, þetta er fjórða hæð, en hvað eigið Jijer við? Það var enginn með yður þegar Jijer komuð á gistihúsið. Þjer voruð alein! — John Chester horfði á mig yfir borðið, á líkan hátt og jeg hugsa mjer að stúlkan hafi horfl á ung- frú Farringham. Það leið nærri liví mínúta liangað til hann hjelt áfram. Jeg hafði enga hugmynd um hvað hann ætlaði sier að segja, en mjer fanst við vera komnir langar leið- ir burt frá gildaskálanum sem við sátum á. Jeg hallaði mjer li! hans yfir borðið. — Haldið þjer áfram, sagði jeg. Ungfrú Farringham stóð og starði á stúlkuna, hjelt hann áfram. — Yður hlýtur að skjátlast, sagði hún. Það voruð Jijer sem fylgduð okkur til herbergjanna liegar við þegar við komum hingað klukkan hálf níu í kvöld. Stúlkan virtist alls ekki botna í þessu. Á jeg að hringja til ármanns- ins spurði hún. Ungfrú Farringham kinkaði kolli. Ármaðurinn kom upp og ung- frú Farringham kannaðist við hann aftur. Hún endurtók spurningu sína, en árangurslaust. Ármaðurinn sagði, að ungfrúin hefði verið alein, hann hefði sjálfur borið koffortin henn- ar tvö upp i herbergið á fimtu hæð. Hvernig gat hún spurt svona? Ungfrú Farringham vissi ekki hverju hún átti að trúa. Þetta hlaut að vera grátt gaman. Eftir stutta stund mundi hún hafa náð fundi móður sinnar aftur. Hún hvesli augun á Jijónustufólkið. — Sækið hótelstjórann, sagði hún svo. Hann kom að vörmu spori. Hvað væri að? livorl ungfrúin væri ekki ánægð með herbergið? Gæti hann orðið henni að einhverju liði? Unga stúlkan gerði grein fyrir málinu. Móðir liennar hefði fengið herbergi á fjórðu hæð. En síðan hefði hún hlotið að flytja í annað herbergi. Hvar hún væri nú? Hún spurði Jiessara spurninga mjög ró- lega, Jió að hjartað hamaðist í brjósti hennar. Framkoma hótelsstjórans breyttist í einni svipan. Hann ljet greinilega á sjer sjá, að hann væri gramur Jiví, að láta vitlausa enska stelpu gabba sig upp á fjórðu hæð. Þjer leyfið yður að gera að gamni yðar, sagði hann kuldalega. .4 Jiessu augnabliki fann ungfrú Farringham fyrst í raun og veru hve óttaslegin hún var. Væri móðir hennar horfin þá stóð hún ein uppi í París. — Mamma og jeg komuin í sama bílnum af brautarstöðinni, sagði hún skjálfrödduð. Þjer útveguðuð okkur herbergin sjálfur. Þjer af- sökuðuð, að við gætum ekki feng- ið samliggjandi herbergi, því að Jiað væri svo gestkvæmt. Þjer mun- ið Jió víst að við skrifuðum nöfnin okkar í gestabókina? Forstjórinn ypti öxlum. — Jeg endurtek, að þjer hljótið að vera að gera að gamni yðar. Hann sneri sjer að ármanninum. — Sækið Jijer gestabókina! Bókin kom og ungfrú Farringham skoðaði hana. Loks fann hún nafnið silt — það stóð í línu milli ein- hvers greifa og ensks aðalsmanns. Nafn móður hennar var alls ekki í bókinni. Það má hugsa sjer hvernig henni hefir orðið við. — Ungfrúin er má- ske Jireytt eftir ferðina, sagði hótel- stjórinn stimamjúkur. Hann vissi af reynslu, að enskar stúlkur eru á- kaflega viðkvæmar. — En — móðir mín? stamaði stúlkan. Hvað á Jietta að Jiýða? Jeg skil Jiað ekki. — Það er læknir hjerna á hotel- inu, ef ungfrúnni .... Hún tók fram í. — Þjer haldið að jeg sje veik, en það er jeg ekki. Það verður að rannsaka alt gisti- húsið. Kanske móðir mín hafi hitt einhverja kunningja, og að hún hafi farið niður í veitingasalinn. Jeg er svo hrædd. Þjer verðið að hjálpa mjer. Forstjórinn ypti öxlum, en skip- aði að leita um alt húsið.------— John Chester rjetti mjer vindlinga hylkið sitt. — Já, hjelt hann áfram, það var leitað liátt og lágt um gisti- húsið en frú Farringham fanst hvergi. Forstjórinn gerði alt sem i hans valdi stóð. Honum tókst meira að segja að ná í bílstjórann, sem hafði ekið stúlkuna af brautarstöð- inni. Ungfrú Farringham þekti hann þegar í stað aftur. Þjer munið víst eftir mjer? sagði liún. — Já, ungfrú. Þjer komuð um klukkan átta og lijer voruð ein. Jeg ók yður hingað. Þjer höfðuð tvö koffort með yður. ■— Munið þjer ekki Jiegar Jijer fluttuð grænu töskuna um leið og Jijer voruð að leggja af stað? Þjer hafið víst haldið að hún mundi ekki tolla á þakinu. Þjer settuð hana við hliðina á yður. Ó, þjer hljótið að muna það. En bilstjórinn mundi það alls ekki. — Það var engin græn taska sagði hann. Jeg man vel, að flutn- ingurinn var tvö koffort. Jeg man líka að jeg Jióttist vita að ungfrúin mundi vera ensk eða ameríkönsk úr Jiví að hún væri ein á ferð. Ungfrú Farringham sat kyr um stund og starði framundan sjer. Svo hnje hún niður meðvitundarlaus. Hún var lögð upp í rúm og henni lofað að senda skeyti til Englands. Daginn eftir fór hún. Á Charing Cross stöðinni tóku kunningjar hennar á móti henni og urðu jafn undrandi yfir tiðindunum og hún hafði orðið sjálf. Og sama kvöldið varð hún hættulega veik. Heilabólga. En móðirin? spurði jeg. Móðirin. Hún hefir ekki gerl vart við sig siðan. — — Nú var Ghester kallaður i símann og jeg varð að bíða eftir fram- haldinu. Því að jeg þóltist sann- færður um, að sögunni væri ekki lokið. — Jeg kein eftir tíu minút- ur, sagði Chester. Nú getið Jijer reynt að ráða gátuna á meðan. Ráð- herrann hafði einmitt tíu mínútur til að leysa hana. Auðvitað gat jeg ekki ráðið neitt, og Jiegar Chester kom aftur, var jeg fullur eftirvæntingar. Hann settist og kveikti sjer í nýrri sigarettu. Loks hjelt hann áfram. — Jeg hefi oft brotið heilann um, hversvegna frú Farringham fór alt í einu að hugsa um að kaupa nýja gólfdúka i húsið silt. Kanske hei'ir þetta bára verið fyrirsláttur, kanske hefir hún hætt við Asíuferðalagið vegna þess að heilsa hennar hefir ekki verið eins góð og skyldi. Jeg veit ekki. — En eitt er víst. í París gerast viðburðir, sem geta hvergi gerst

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.