Fálkinn - 24.08.1935, Blaðsíða 14
14
F A L K I N N
$ Þessi lituðu efni
/'r^ ^ erujafnfallegogr.ý.
— það gera
súrefnis-áhrif
RADION
FRUMBYGGJAVAGNINN.
Á síðustu hátíð Dana frá Vestur-
heimi, í Rœbild Bakke, en þar er
einskonar friðaður þjóðgarður er
þeir hafa gefið dönsku þjóðinni, af-
hentu Danir að vestan að gjöf gaml-
an uxavagn eins og þá, sem frum-
byggjar vestra notuðu fyrir eina tíð
og til skamms tíma hafa verið not-
aðir fyrir vestan, þangað til bíl-
arnir útrýmdu öðrum farartækjum.
Á þessum vögnum ferðuðust land-
nemarnir dag eftir dag til fyrir-
heitna staðarins, þar sem þeir ætl-
uðu að nema land, ásamt fjölskyldu
sinni og allri búslóð og var það
erfitt ferðalag og ekki hættulaust.
Myndin hjer að ofan sýnir er Vest-
urheims-Daninn Andrew Jenson af-
hendir vagninn að gjöf, fyrir hönd
fylkisstjórans í Utah. Fremst á
myndinni sjást leikarar frá kgl.
leikhúsinu, klæddir á sömu vísu og
danskir innflytjendur voru um miðja
19. öld. í ræðustólnum sjest Andrew
Jensson ásamt fregnritara danska
útvarpsins, N. Rud.
Tveir ungir piitar í Sönderborg
í Danmörku, sem eru tvíburar duttu
nýlega í iukkupottinn. Fengu þeir
brjef frá Ástralíu þess efnis, að
þeir hefði erft þar stóra jörð eftir
móðurbróður sinn, sem ekki hafði
sjeð þó síðan þeir voru fimm ára,
og nú er nýlátinn, 77 ára gamall.
Bræðurnir eru nú í þann veginn að
fiytja til Ástralíu til að taka við
jörðinni.
—-—x------
Ung persnesk kona, Zora Haidari
er nýlega komin í heimsókn til
London. Þykir för hennar merkis-
RIDDARAVARÐLIÐIÐ DANSKA.
Riddaravarðliðið danska, sem nú
er fyrir löngu lagt niður gekk sem
snöggvast í endurnýungu lífdaganna
á liermannamóti, er nýlega var
haldið i Kaupmannahöfn. Á mynd-
viðburður, því að talið er að hún
sje fyrsta persneska konan, sem
hefir fengið vegabrjef fró stjórn
sinni til að ferðast til útlanda.
----x-----
Ung stúlka í London var nýlega
dæmd í fjögra mónaða fangelsi fyrir
ir að hafa skorið mann í andlitið
með rakhníf. Hún meðgekk að hún
inni sjest hinn forni „Hestegarde"
og eru riddararnir klæddir í fagra
búninga og brynjur. Einkennisbún-
ingar hermanna voru að jafnaði
viðhafnarmeiri í gamla daga en þeir
eru nú.
hefði gert þetta með vilja, til þess
að gera hann svo í útliti „að engin
stúlka viidi sjá hann“. Stúlkan heit-
ir Rose Luff og þegar hún heyrði
dóminn slepti hún sjer alveg og
var borin grátandi inn í fangaklef-
ann. Ástæðan til hermdarversksins
var sú, að maðurinn liafði verið
lofaður henni og svikið hana.
SKEMTISKIPIÐ „COLUMBUS",
eign fjelagsins Norddeutsher Lloyd
kom í sumar til Kaupmannahafnar
og reyndist það vera stærsta far-
jjegaskipið, sem nokkurntíma hafði
þangað komið. Það er 32.000 smá-
lestir að stærð, 750 fet á lengd og
ristir 33 fet. í þessari ferð hafði jjað
18000 skemtiferðamenn innanborðs,
KAPPRÓÐRAR Á BAGSVÆRD- myndin flokkinn sem vann í 8
VATNI. manna róðrinu. Er sá flokkur frá
Alþjóðlegt kappróðrarmót var ný- Köbenhavns Roklub.
lega haldið ó Bagsværd-vatni. Sýnir
HIÐ UNDURSAMLEGA SÚIl-
EFNISÞ V OTT ADUFT.
A LEV£B PRODUCT
Þetta er leyndarmálið við hinn undursamlega Radion-
þvott — SÚREFNISÞVÆLIÐ. Þvoið fötin úr Radion;
miljónir af smáum súrefnisbólum hjálpa yður við vinn-
una. Þær gera þvælinu kleift að þrýstast gegnum þvott-
inn — og reka úr föstustu óhreinindi og gera þvottinn
fallegan og hreinan eins og nýr væri. Vegna þess hve
þvælið er mikilvirkt þarf hvorki að núa þvottinn nje
nudda, en það slítur fötunum. Þess-
vegna gerir Radion fötin endingar-
betri. í Radion er alt það, sem með
þarf til þess að þvo þvoltinn fullkom-
lega í einni atrennu. Fáið yður pakka
í dag.
U-RAD 15 -50
RADION