Fálkinn - 25.04.1936, Side 11
P Á L X I N N
11
Þú ræður
hvort þú trúir því...
PURÐUSTRANDIR
má vel kalla norSurströnd Afríku,
þar sem nú eru löndin Marokko, Al-
sír og Tunis. Fyrir 200 árum voru
ibúar þessara landa alræmdir fyrir
sjórán og enda þangað til á síðustu
öld. í borginni Tarifa, sem nú er
smáþorp, voru krafðir tollar af skip-
um, sem fóru um Njörvasund —
þaðan er komið orðið „tarif“ eða
gjaldskrá, sem notað er í flestum
tungumálum Evrópu. Ripley ferðað-
ist þarna urn árið 1931 og fara hjer
á eftir nokkrar ótrúlegar athuganir
hans úr ferðinni:
Kahena Berbadrotning í Alsír var
ekki eftirbátur karlmannanna, sem
höfðu kvennabúr. Hún liafði kavla-
búr og safnaði til sín 400 mönnum.
En af skiljanlegum ástæðum gat lmn
ekki eignast eins mörg börn eins
og karlmennirnir þar syðra, enda
voru þeir sumir þungir á metunum.
Þannig átli Moulai Ismael konung'ir
í Melcnes 888 börn. —
Þorpið Bidonville i Casablanca, er
að mestu leyti bygt úr ameríkönsk-
um niðursuðudósum. Þar er hægt að
kaupa sjer konu fyrir tólf tómat-
.lósir.
Árið 1908 kól 20 manns til bana
á sjálfri Miðjarðarlínunni, að kalla
mátti. Að visu var þetta upp til fjalla
en ótrúlegt samt og litt samrýman-
legt við hitana, sem Afrika er alkunn
fyrir.
f Marrakesh í Norður-Afríku er
jörð, sem Koutubia heitir og gengið
hefir að beinum erfðum lengur en
nokkur önnur eign á jörðinni. Hefir
hún verið i sömu ættinni i 1300 ár.
Fyrir 700 árum ljet Yakoub el Man-
súr soldán byggja þar turn guði sin-
um til vegsemdar og setti 900 böggla
af moskus í turninn. Leggur ennþá
ilm al' þessari fórn Yakoubs til
klúhameds. Á turninum eru þrjár
gullroðnar kúlur og eru þær fullar
af gulli, silfri og demöntum, sem
Yakoub hafði tekið herfangi af Al-
fons VIII. Spánarkohungi eftir or-
ustuna við Alarcos 1195. Fimm sinn-
um á dag er sendur prestur upp í
turninn til ]>ess að kalla fólk til
bæna. En hann er blindur. Síðustu
000 ár hafa aðeins blindir menn
fengið að koma upp i turninn.
----o---
MAÐURINN SEM LAS MEÐ
TUNGUNNI.
í Kansas City á heima litill grá-
liærður karl, MacPherson að nafni,
sem er bæði blindur og handalaus,
en er eigi að síður fluglæs. Hann
fæddist í Inverness á Slcotlandi 5.
febr. 1800 og var þá að öllu leyti
heill á sál og líkama, og fjekk gott
uppekli. Árið 1893 giftist liann og fór
til Ameríku og nokkru siðar var
liann kominn í grjótnámu vestur i
Colorado. Þar varð liann fyrir spreng
ingu og kastaðist þrjátíu fet i loft
upp. Þegar hann fanst aftur liafði
hann blindast á báðum augum og
mist báða handleggina. —■ Honum
var því ómögulegt að notfæra sjer
blindraletur eins og aðrir blindir
inenn. En hugur ræður hálfum sigri.
()g þó að tungunni sje einkum ætlað
að finna bragð og mismun liita og
kulda, þá einsetti McPherson sjer að
nota hana til þess að læra að lesa.
Og honum varð ótrúlega vel ágengt.
Hann drap tungubroddinum á upp-
hleypta stafi en um leið var sömu
stofum þrýst á milli herðablaðanna
á honum, þar seni hörundið er mjög
tilfinninganæmt. Og nú er tungan
orðin svo næm, að hann getur lesið
Skák nr. 3.
Franski leikurinn.
Hvítt: Svart:
l’. S. Millner-Barry. R. H. Newman.
1. e2—e4 e7—e6, 2. d2—d4 d7—d5,
3. Bbl—c3 Ilg8—fö, 4. Bcl—g5 Bf8—
e7, 5. e4—e5, Rf6—d7, 6. h2—h4
(Þennan leik ljek dr. Alekhin fyrstur
manna í þessari stöðu, enda má
segja að alt þetta afbrigði af franska
leiknum sje líkt skákmeistaranum:
„hasarderað" og viðsjált, en ekki að
sama skapi heilbrigt og örugt) a7—
a6 (Maroczy’sleikurinn, útilokar Rc3
—b5 og undirbýr sókn drotningar-
megin. Hættulegt væri 6....Be7 x
g5, 7. li. 4xg5 Dd8xg5, 8. Rgl—h3
I)g 5—e7, 9. Rh3—f4 h7—h6, 10 Dg4
o. s. frv.), 7. Ddl—g4 Ke8—f8, 8.
f2—f4 c7—c5, 9. Rgl—f3 Rb8—c6,
10. 0—0—0 b7—b5, 11. Hhl—h3 h7
—h5, 12. Dg4—g3 (Betra virðist 12.
Bg5xe7f, næst Dg4—g5) 1.......b5
—b4 (Svart gat unnið biskupinn á
g5 við f7—fö, en ávinningurinn er
mjög vafasamur), 13. Rc3—a4 c5—
c4, 14. Bg5xe7f Rc6xe7, 15. b2—b3
Dd8—a5, 16. Kcl—bl c4—c3, 17 Rf3
el Bc8—b7, 18. Dg3—f2 (Hjer átti
bvítt að leika a2—a3) 18...Bb7—
cö, 19. Kbl—al Bc6xa4, 20. b3xa4
Da5xa4, 21. Hdl—bl g7—g6, 22. Bfl
—e2 Ha8—b8, —23. g2—g4 höxgt.
24. Be2xg4 Re7—cö! 25l h4—h5
Tb8—b5, 26. Rel—d3 Það er engin
björgun til Hbl—b3 veitti þó frekar
viðnám).
26..... Da4xa2f! 27 gefið. Skákin
var lefld um meistaratitil Lundúna-
borgar s.l. vetur.
á bók — finnur hvar svertan er á
pappírnum.
----o---
SKJALDBAKAN ER GERÐ FYRIR
HRAÐA.
Allir hafa heyrt söguna um veð-
málið milli skjaldbökunnar og hjer-
ans og vita að skjaldbakan vann
kapphlaupið.
Og það var ekki nema eðlilegt,
þvi að sköpunarlagið á skjaldbökunni
er mjög vel lagað fyrir hraða. Hafa
menn komist að því, eftir að farið
var að nota sjer straumlinukenn-
inguna. Þeir bílar, sem einkum eru
gerðir fyrir liraða, eru næsta líkir
skjaldböku i laginu. „The Golden
Arro\v“ kappakstursvagn Seagrave
majórs var með því lagi og komst
hann 231 enska mílu á klukkustund.
Og „The Blue Bird" kappaksturs-
vagn Malcolm Campbells, sem komst
245,7 mílur var nauðalíkur skjald-
böku.
----o---
Franska skáldið Victor Hugo átti
handrit sitt að bókinni „Vesaling-
arnir“ hjá forleggjara einum og lang-
aði til að vita um hvort hún yrði
tekin. Sendi hann honum brjef, sem
hljóðaði svo: Forleggjarinn svar-
aði: „!“. Eru þetta talin stytstu
brjefin, sem skrifuð hafi verið í
heiminum.
----o---
Göniul kona liafði tekið að sjer að
fóstra páfagauk frænda síns meðan
iiann var í siglingum. En henni
blöskraði svo munnsöfnuður páfa-
gauksins, að hún tók upp þann sið
að breiða yfir búrið á sunnudögum,
til þess að heyra ekki orðbragðið,
sem henni fanst síður en svo sunnu-
dagslegt. Svo var það einn mánudag
að presturinn kom að heimsækja
hana og flýtti hún sjer þá að breiða
yfir búrið aftur. Og presturinn varð
eigi litið hissa þegar hann kom inn
í stofuna og heyrði tautað úti í
horni: „Mikið fja.... hefir þessi
vika verið fljót að liða“.
— Hvað mundirðu gera, ef jeg
gæfi þjer hundrað krónur? spurði
Gyðingurinn son sinn.
— Telja þær, svaraði stráksi.
Það ber oft við, einkum þegar hitar ganga, að fiskar drepast hrönnum sam-
an í ánni Seine, vegna þess að eitur myndast i ánni við hitana. Myndin
að ofan sýnir torfu af dauðum fiski í vatnsborðihu.
Kaliforniskur verkfræðingur hefir smiðað þennan vjelbát, sem er smíðað-
ur með straumlínusniði og líkastur lival í laginu. Á bakvið sjást bor-
unarturnar i oliunámunum.